Hverfisráð Háaleitis og Bústaða
Hverfisráð Háaleitis
Ár 2004, mánudaginn 26. janúar, var haldinn 28. fundur Hverfisráðs Háaleitis. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsinu og hófst kl. 12:15. Viðstaddir voru Anna Kristinsdóttir formaður og Guðmundur Magnússon. Jafnframt sat fundinn Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir frá þróunar- og fjölskyldusviði sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Snjómokstur við Sogaveg.
Tekið fyrir erindi frá Elínóru Ingu Sigurðardóttur, dags. 24. janúar sl., þar sem kvartað er yfir takmarkaðri snjómoksturs- og söltunar/söndunarþjónustu í botnlöngunum við Sogaveginn. Samþykkt að vísa erindinu til Framkvæmdasviðs og athuga hvort þetta falli ekki undir þá heildarendurskoðun sem stendur yfir á gatna- og stígakerfi borgarinnar sem eru í séreign. Jafnframt að spyrja hvort ekki sé hægt að koma upp sandkistum við enda botnlangana svo íbúarnir geti sandað sjálfir.
2. Hverfafundir um forvarnarmál.
Lagt fram erindi frá Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar, dags. 19. janúar 2005, þar sem óskað var eftir samstarfi við Hverfisráðið vegna hverfafundar um forvarnarmál sem áætlaður er 14. mars nk.
Hverfisráðið bókaði:
„Hverfisráðið er tilbúið til samstarfs vegna forvarnarfundar í hverfinu. Hverfisráðið hefur hins vegar ekki gert ráð fyrir kostnaði tengdum fundinum á starfsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2005. Hverfisráðið óskar eftir því að forvarnarnefnd sjái um kostnað og skipulagningu fundarins en Hverfisráðið býður fram aðstoð sína.“
3. Kosning varamanns.
Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir lagði fram erindi frá borgarstjóra dags. 22. desember sl. Þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar þ. 21. desember sl. var samþykkt að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir taki sæti varamanns í Hverfisráði Háaleitis í stað Gísla Þórs Gíslasonar sem beðist hefur lausnar.
4. Sel á lóð leikskólans Jörfa.
Lagt fram erindi frá Leikskólum Reykjavíkur, dags. 30. desember sl. Erindið er svar við fyrirspurn Hverfisráðsins um framtíðarstöðu selsins við leikskólann Jörfa og almennt um notkun sela hjá Leikskólum Reykjavíkur. Skýrð er staða mála er varðar notkun sela við leikskóla hjá Reykjavíkurborg og að áætlað sé að flytja selið við leikskólann Jörfa eftir eitt ár þegar nýr leikskóli við Dalaland verður tekinn í notkun.
Rúna Malmquist kom til fundarins kl. 12:27.
5. Styrkumsókn.
Lagt fram erindi frá borgarráði dags. þ. 10. janúar sl. þar sem styrkumsókn frá Betra lífi í Bústaðahverfi, dags. þ. 24. október sl., er vísað til afgreiðslu Hverfisráðsins. Óskað er eftir styrk vegna hverfahátíðar á sumardaginn fyrsta að upphæð kr. 250.000. Samþykkt að veita styrk að upphæð 150.000. kr.
6. Fastur fundartími Hverfisráðsins.
Ákveðið að fastur fundartími Hverfisráðsins verði fjórði miðvikudagur í mánuði kl. 12:00.
7. Önnur mál.
7.1 Kynningarfundur um mat á umhverfisáhrifum gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar: Samþykkt að halda opinn fund í samstarfi við Framkvæmdasvið og Línuhönnun . 3. febrúar nk. þar sem kynnt verður mat á umhverfisáhrifum vegna gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Samþykkt að Hverfisráðið greiði fyrir dreifingu á fundarboði í aðliggjandi hús.
7.2 Samstarf við ungmennaráð hverfisins: Ákveðið að boða ungmennaráðið á næsta fund til að ræða um samstarf vegna opins fundar.
Fundi slitið kl. 12:55
Anna Kristinsdóttir
Guðmundur Magnússon Rúna Malmquist