Forsætisnefnd - Fundur nr. 85

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2009, föstudaginn 28. ágúst, var haldinn 85. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.10. Voru þá komnir til fundar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Dagur B. Eggertsson. Jafnframt sátu fundinn Þorleifur Gunnlaugsson og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir móttökur Reykjavíkurborgar, dags. í dag.

2. Lögð fram erindi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar frá 14. apríl sl. og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar frá 15. s.m. til innri endurskoðanda, ásamt svörum innri endurskoðanda frá 24. s.m. og 4. maí sl., sbr einnig bréf innri endurskoðanda frá 5. þ.m.

- Kl. 10.24 tekur Kjartan Magnússon sæti á fundinum.

3. Kynnt eru drög að greinargerð innri endurskoðanda um verklag um viðbrögð við brotum á siðareglum starfsmanna Reykjavíkurborgar – hlutverk innri endurskoðunar, dags. 26. þ.m.

4. Lagðar fram að nýju tillögur Ólafs F. Magnússonar og borgarfulltrúa Vinstri grænna varðandi upplýsingar um fjárstyrki vegna borgarstjórnarkosninga og aðdraganda þeirra, sem vísað var til forsætisnefndar á fundum borgarráðs 16. apríl sl. og borgarstjórnar 21. s.m. Jafnframt lögð fram umsögn innri endurskoðanda, dags. 5. þ.m.

- Kl. 11.02 víkur Dagur B. Eggertsson af fundi.

5. Kynnt er staða vinnu við siðareglur fyrir kjörna fulltrúa Reykjavíkurborgar.

6. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 1. september nk.

Fundi slitið kl. 11.45

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson

Kjartan Magnússon