Forsætisnefnd - Fundur nr. 43

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2006, fimmtudaginn 1. júní, var haldinn 43. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12.25 Viðstaddir voru Alfreð Þorsteinsson, Árni Þór Sigurðsson og Stefán Jón Hafstein. Jafnframt sátu fundinn Gunnar Eydal og Jónína Björgvinsdóttir, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir umsóknir um opinberar móttökur, dags. 31. f.m., sbr. afgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar, mál 1-6.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 16. maí n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

a. Tillaga Árna Þórs Sigurðssonar um skipulag sumarhúsabyggðar á Úlfljótsvatni
b. Tillaga um breytingar á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 638/2001 ásamt tillögu um samþykkt fyrir mannréttindanefnd
c. Umræða um Breiðholtshverfi (að ósk allra lista)
d. Umræða um Miðborg (að ósk allra lista)

Fundi slitið kl. 12.40.

Alfreð Þorsteinsson

Árni Þór Sigurðsson Stefán Jón Hafstein