Forsætisnefnd - Fundur nr. 42

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2006, föstudaginn 12. maí, var haldinn 42. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.32 Viðstaddir voru Alfreð Þorsteinsson og Árni Þór Sigurðsson. Jafnframt sátu fundinn Gunnar Eydal, Jónína Björgvinsdóttir og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir umsóknir um opinberar móttökur og afgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar, dags. 10. þ.m.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 16. maí n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Tillaga um mótun samgöngustefnu í Reykjavík (12. liður fundargerðar borgarráðs frá 11. maí).
b. Tillaga um stefnumótun í umhverfismálum, “Reykjavík í mótun” (13. liður fundargerðar borgarráðs frá 11. maí).
c. Tillaga um mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar (19. liður fundargerðar borgarráðs frá 11. maí).
d. Umræða um málefni Breiðholtshverfis (að ósk allra lista).
e. Umræða um málefni Miðborgarinnar (að ósk allra lista).

Fundi slitið kl. 9.42

Alfreð Þorsteinsson
Árni Þór Sigurðsson