Forsætisnefnd - Fundur nr. 38

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2006, fimmtudaginn 30. mars, var haldinn 38. fundur ar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.55. Viðstaddir voru Alfreð Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein. Jafnframt sátu fundinn Ólafur F. Magnússon, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 4. apríl n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Umræða um málefni Háaleitishverfis (að ósk allra lista).

2. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir umsóknir um opinberar móttökur og afgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar, dags. í dag.

3. Samþykkt að seinni fundur borgarstjórnar í apríl n.k. verði haldinn 25. apríl í stað 18. apríl.

4. Lögð fram drög að nýrri samþykkt fyrir hverfisráð Reykjavíkurborgar, dags. 21. þ.m., vísað til forsætisnefndar á fundi borgarráðs fyrr í dag.
Vísað til borgarstjórnar.

Fundi slitið kl 12.05

Alfreð Þorsteinsson

Stefán Jón Hafstein