Forsætisnefnd - Fundur nr. 321

Forsætisnefnd

Ár 2023, föstudaginn 16. mars, var haldinn 321. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13:35. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Sabine Leskop og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Magnús Davíð Norðdahl. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal, Ólöf Magnúsdóttir og Bjarni Þóroddsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 21. mars 2023.
    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
    a) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um bráðaaðgerðir í málefnum barna á leikskólaaldri
    b) Tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna um stefnu í málefnum skólasafna
    c) Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að útrýma heimilisleysi
    d) Umræða um verkefnið Betri borg fyrir börn og skilvirkni þess (að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins)
    e) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um áskorun um áframhaldandi rekstur póstafgreiðslu í Mjódd
    f) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um upphituð biðskýli MSS23010044

Fundi slitið kl. 13:56

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Líf Magneudóttir

Magnea Gná Jóhannsdóttir Marta Guðjónsdóttir

Sabine Leskopf

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 16.3.2023 - Prentvæn útgáfa