Forsætisnefnd - Fundur nr. 319

Forsætisnefnd

Ár 2023, föstudaginn 17. febrúar, var haldinn 319. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:05. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Marta Guðjónsdóttir. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Sanna Magdalena Mörtudóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Líf Magneudóttir, Magnús Davíð Norðdahl og Sabine Leskopf. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal,  Ólöf Magnúsdóttir og Bjarni Þóroddsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 21. febrúar 2023. MSS23010044
    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
    a) Umræða um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar)
    b) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um endurskoðun ákvæða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins
    c) Umræða um hlutfall félagslegs húsnæðis í borginni (að beiðni borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands)
    d) Umræða um orsakir skólaforðunar og viðbrögð skólayfirvalda og fagfólks (að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins)
    e) Umræða um hvernig borgarstjórn endurheimti traust almennings (að beiðni borgarfulltrúa Vinstri grænna, Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar)
    f) Umræða um málefni Árbæjar og Norðlingaholts (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
    g) Kosning í menningar-, íþrótta- og tómstundaráð
    h) Kosning í stafrænt ráð 

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 15. febrúar 2023, varðandi breytt veikindaleyfi Guðnýjar Maju Riba varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar. MSS22110190

    -    Kl. 11:05 víkur Ólöf Magnúsdóttir af fundi.
    -    Kl. 11:15 víkur Líf Magneudóttir af fundi.

    Fylgigögn

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Sabine Leskopf Marta Guðjónsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 17.2.2023 - Prentvæn útgáfa