Forsætisnefnd - Fundur nr. 267

Forsætisnefnd

Ár 2020, föstudaginn 31. janúar, var haldinn 267. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Tjarnarbúð í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:30. Viðstödd voru Pawel Bartoszek, Sabine Leskopf, Dóra Magnúsdóttir, Eyþór Laxdal Arnalds og Marta Guðjónsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Elín Oddný Sigurðardóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vigdís Hauksdóttir, Kolbrún Baldursdóttir og Alexandra Briem. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Bjarni Þóroddsson sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 27. janúar 2020, þar sem tilkynnt er um fæðingarorlof Egils Þórs Jónssonar borgarfulltrúa. R20010186

    Fylgigögn

  2. Lögð fram beiðni borgarfulltrúans Alexander Witold Bogdanski, dags. 31. janúar 2020, um tímabundna lausn frá störfum. R20010362
    Vísað til borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 20. janúar 2020, varðandi afgreiðslu mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 15. janúar 2020 á tillögu um tilraunaverkefni um rafræna upplýsingagjöf, sbr. 3. lið fundargerðar sameiginlegs fundar borgarstjórnar og fjölmenningarráðs frá 30. apríl 2020, ásamt fylgiskjölum. R19050087

    Fylgigögn

  4. Lögð fram tilmæli forsætisnefndar, dags. 31. janúar 2020, vegna borgarstjórnarfunda. R20010186
    Samþykkt að fela oddvitum borgarstórnarflokka að kynna tilmælin fyrir borgarfulltrúum.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins telur margar af þessum reglum óþarflega stífar. Talað eru um að láta ritara vita hitt og þetta í tölvupósti t.d. frekar en að ganga að borðinu en upplifun er stundum sú að t.d. forseti fylgist ekki stöðugt með tölvupóstum. Einnig nægir vel að ávarpa aðra borgarfulltrúa með titli og eiginnafni. Einn helsti vandi á fundum borgarstjórnar að mati borgarfulltrúa Flokks fólksins er stundum hvísl forseta borgarstjórnar við ritara á meðan fluttar eru ræður. Þetta er reyndar mis slæmt en afar truflandi fyrir þann sem flytur ræðuna. Eins er oft erfitt að ná athygli forseta borgarstjórnar til að fá sig setta á mælendalista. Forseti borgarstjórnar þarf að líta oftar yfir salinn. Þá þurfa borgarfulltrúar ekki að berja í borð eða slá í tölvur til að ná athygli hans. Eins þarf forseti borgarstjórnar að tala skýrar en hann gerir og hægar. Flokkur fólksins vill að fólk sem kemur á pallana  finni sig velkomið. Borgarstjórn ætti að finna leiðir til að bjóða fólki að koma sem oftast. Einnig á gestum að vera sjálfsagt að klappa, finni einhver þörf og löngun til þess.

  5. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 4. febrúar 2020.

    Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)    Umræða um skýrslu innri endurskoðunar  um framkvæmdir við gas- og jarðgerðarstöð SORPU bs. á Álfsnesi, sbr. 31. lið fundargerðar borgarráðs frá 30. janúar 2020 (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna)
    b)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingar á stofnsamningi SORPU bs.
    c)    Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um framtíðarlandsvæði fyrir starfsemi skotfélaga
    d)    Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að bæta viðhaldsþjónustu Félagsbústaða í samvinnu við leigjendur
    e)    Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að víkka út Jafningjafræðsluna og jafningjafræðslu almennt séð
    f)    Kosning í fjölmenningarráð
    g)    Kosning í íbúaráð Breiðholts R20010182

  6. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um framsetningu lista fyrir móttökur, sbr. 21. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. ágúst 2019. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 14. janúar 2020. R18100244
    Samþykkt.

    Forsætisnefnd leggur fram svohljóðandi bókun ásamt áheyrnarfulltrúum Pírata, Miðflokksins og Vinstri grænna:

    Hér er verið að auka gegnsæi við framsetningu upplýsinga um mótttökur svo kjörnir fulltrúar geti sinnt eftirlitshlutverki sínu. Forsætisnefnd leggur áherslu á að rökstuðningur með hverri móttöku skuli vera knappur, lýsandi og kjörnum fulltrúum til glöggvunar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins þakkar jákvæða umsögn um tillöguna. Markmið Flokks fólksins með fyrirspurnum sínum og tillögu eins og þessari er að auka gegnsæi við móttökur. Með auknu gegnsæi aukast líkurnar á frekari hagræðingu og sparnaði á þessu sviði. Hagræðing og sparnaður á þó aldrei að verða til þess að fólk fái færri tækifæri til að koma saman og fagna. Það sem slíkt kostar oftast ekki neitt og sé um vettvang/staðsetningu í eigu borgarinnar sem ella stendur jafnvel autt þá er hægt um vik að fagna sem mest og oftast. Oft er ekkert um að vera í Höfða sem dæmi og því sjálfsagt að nota það hús sem mest og eins borgarstjórnarsalinn. Kostnaður er mestur í veitingum og þar er mikilvægt að skoða hagræðingu og sparnað. Flokkur fólks hefur beðið um að sjá sundurliðaðan kostnað yfir móttökur og væntir þess að sundurliðaðar kostnaðarupplýsingar verði lagðar fram næst þegar yfirlit yfir móttöku/viðburði verður lagt fyrir forsætisnefnd.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að ferðakostnaður og kolefnisfótspor kjörinna fulltrúa verði birtur opinberlega, sbr. 4. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 28. nóvember 2019 og 36. lið fundargerðar borgarráðs frá 21. nóvember 2019. Einnig er lögð fram umsögn þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 21. janúar 2020. R19110216
    Visað til þjónustu- og nýsköpunarsviðs til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar meirihlutans, borgarstjóri og embættismenn fara mikið til útlanda. Kostnaður skiptir milljónum á ári. Flokkur fólksins hefur gagnrýnt þetta harðlega sér í lagi þegar hópur fólks fer frá sama sviði, ráði/flokki. Það væri mikill ávinningur að draga verulega úr ferðum erlendis. Fjárhagslegur ávinningur væri mikill og einnig umhverfisávinningur. Þær ferðir sem farnar eru og allur kostnaður í sambandi við þær er sjálfsagt að setja á vef borgarinnar. Samkvæmt umsögn er því lýst að mikill kostnaður verði við að sundurliða þessar upplýsingar og koma þeim á vefinn. Halda mætti að hægt væri að yfirstíga hindranir í þessu sambandi bæði tæknilega og aðrar án mikillar fyrirhafnar eða stórkostlegs kostnaðar.  Borgarfulltrúi Flokks fólksins telur að gegnsæi eigi að vera í öllu sem borgin er að gera, stjórnsýslunni og starfsfólki í samræmi við reglur um persónuvernd að sjálfsögðu. Það er ekki einungis launin sem þurfa að vera opinber heldur annað sem tengist starfi borgarfulltrúa. Ferðir og dagpeningar er hluti af þeim upplýsingum sem á að vera aðgengilegar á vef Reykjavíkurborgar. Flokkur fólksins hefur lagt fram tillögu um að borgarfulltrúar kolefnisjafni ferðir sínar til útlanda og skráningar í því sambandi verði einnig á vef borgarinnar. Sú tillaga var reyndar felld.

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á niðurstöðum útboðs 14705, tæknileg þjónusta við fundi borgarstjórnar Reykjavíkur.

    Hugrún Ösp Reynisdóttir og Páll Hilmarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið. R19120113

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að tilraun verði gerð með óundirbúnar fyrirspurnir til borgarstjóra á fundum borgarstjórnar líkt og tíðkast á Alþingi sbr. þingskaparlög. Tilraunin hefjist að loknu sumarleyfi borgarstjórnar 2020, standi í eitt ár, og verði þá metin af forsætisnefnd með hliðsjón af framtíðaráformum í þeim efnum. Forseta borgarstjórnar, forsætisnefnd ásamt skrifstofu borgarstjórnar verði falin nánari útfærsla þessa dagskrárliðar.

    Greinargerð fylgir tillögunni. R20010402
    Frestað.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins:

    1. Hvernig hefur slembival í íbúaráð gengið eftir hverfum borgarinnar? 2. Hefur þurft að kjósa oftar en einu sinni í einhverjum hverfum? 3. Hversu oft hefur þurft að kjósa til að ná fulltrúa inn í íbúaráðin? 4. Er búið að kjósa í öllum hverfum og íbúaráðin þar með fullmönnuð? 5. Hvaða forsendur/ástæður lágu að baki því að þeir sem lentu í sembivali sáu sér ekki fært að taka sæti í íbúaráðunum tæmandi talið? R20010403

    Vísað til umsagnar mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu.

Fundi slitið klukkan 11:47

Pawel Bartoszek Sabine Leskopf

Marta Guðjónsdóttir