Forsætisnefnd - Fundur nr. 221

Forsætisnefnd

Ár 2017, föstudaginn 13. október, var haldinn fundur í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Bárubúð í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 9.03. Viðstödd voru Líf Magneudóttir og Halldór Auðar Svansson. Einnig sátu fundinn Magnús Már Guðmundsson, Halldór Halldórsson, Jóna Björg Sætran, Helga Björk Laxdal og Linda Sif Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 17. október nk.
  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. október 2017, varðandi tillögu borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina frá 1. desember 2016 um ritun umræðna á fundum borgarstjórnar. Jafnframt er lögð fram umsögn fjármálaskrifstofu, dags. 4. ágúst 2017.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 11. október 2017, þar sem fram kemur að skrifstofunni hafi borist tilkynning frá Kristínu Soffíu Jónsdóttur sem verið hefur í veikindaleyfi að því sé lokið og hún komin aftur til starfa sem borgarfulltrúi í 50% starfi frá og með 1. október 2017. R16010250

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 10. október 2017, varðandi breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, ásamt fylgiskjölum.

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um sameiginlega fundi borgarstjórnar og fjölmenningarráðs og öldungaráðs.

Fundi slitið klukkan 09:37

Líf Magneudóttir

Elsa Hrafnhildur YeomanHalldór Auðar Svansson