Forsætisnefnd - Fundur nr. 15

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2005, fimmtudaginn 10. febrúar, var haldinn 15. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13.10. Viðstaddir voru Stefán Jón Hafstein og Alfreð Þorsteinsson. Jafnframt sátu fundinn Ólafur F. Magnússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lagt fram yfirlit móttökufulltrúa yfir gestamóttökur borgarstjóra og forseta og afgreiðslur skrifstofustjóra borgarstjórnar á umsóknum um opinberar móttökur Reykjavíkurborgar, dags. í dag.
6. töluliður erindisins samþykktur.

2. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 15. febrúar n.k.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 2. tl. 2. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:
a. Umræða um stjórnsýslu- og rekstrarúttekt á Fræðslumiðstöð.
b. Umræða um málefni landnámsskálans við Aðalstræti.

3. Lagt fram bréf skrifstofustjóra borgarstjórnar frá 4. þ.m. varðandi samþykkt borgarráðs 3. s.m. á tillögum vinnuhóps um stefnumörkun í erlendum samskiptum.

Fundi slitið kl 13.20

Stefán Jón Hafstein
Alfreð Þorsteinsson