Forsætisnefnd - Fundur nr. 158

Forsætisnefnd

FORSÆTISNEFND

Ár 2014, föstudaginn 28. mars, var haldinn fundur í forsætisnefnd. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 11.05. Viðstödd voru Elsa Hrafnhildur Yeoman, Björk Vilhelmsdóttir og Karl Sigurðsson. Einnig sátu fundinn Júlíus Vífill Ingvarsson, Sóley Tómasdóttir og Helga Björk Laxdal sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 1. apríl nk.

Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrána, sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til 3 tl. sbr. 2 tl. 2. mgr. 10 gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

a) Tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna um átak gegn heimilisofbeldi. 

2. Samþykkt að gera ráð fyrir almennri umræðu um hverfisskipulag á fundi borgarstjórnar þann 15. apríl í stað 1. apríl.  

3. Lögð fram að nýju tillaga Elínar Maríu Árnadóttur um aukið samráð við ungt fólk sem vísað var til forsætisnefndar, dags. 10. október 2013. Einnig er lögð fram tillaga um verklag um meðferð á tillögum Reykjavíkurráði ungmenna. 

Forsætisnefnd felur skrifstofustjóra borgarstjórnar að leggja fram tillögu að verklagi um meðferð tillagna Reykjavíkurráðs ungmenna á næsta fund nefndarinnar. Einnig óskar nefndin eftir því að tillöguflytjandi verði boðaður á næsta fund ráðsins.

4. Kynntar að nýju tillögur að breytingu á vinnuaðstöðu borgarfulltrúa að Tjarnargötu 12.

Frestað. 

5. Fram fer umræða um þjónustu skrifstofu borgarstjórnar við kjörna fulltrúa. 

6. Lögð fram beiðni Eyglóar Árnadóttur, dags. 7. mars 2014, um afnot af borgarstjórnarsal vegna myndatöku. 

Samþykkt. 

7. Júlíus Vífill Ingvarsson óskar eftir því að fá sendar upplýsingar um launakjör og samsetningu launa kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. 

Fundi slitið kl. 12.10

Elsa Hrafnhildur Yeoman

Björk Vilhelmsdóttir Karl Sigurðsson