Forsætisnefnd - Forsætisnefnd föstudaginn 17. apríl 2026 nr. 375

Forsætisnefnd - Forsætisnefnd föstudaginn 17. apríl 2026 nr. 375

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 17. apríl, var haldinn 375. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:02. Viðstödd voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Helga Þórðardóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Sabine Leskopf. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Marta Guðjónsdóttir og Stefán Pálsson. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 15. apríl 2026, þar sem tilkynnt er að á fundi borgarstjórnar 14. apríl 2026 hafi Sabine Leskopf verið kosin fyrsti varaforseti í stað Guðnýjar Maju Riba. MSS22060040

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 15. apríl 2026, þar sem fram kemur að á fundi borgarstjórnar 14. apríl 2026 hafi tillaga óháðu borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur  um tilnefningu áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd verið samþykkt. Jafnframt kemur fram að Marta Guðjónsdóttir skipi sæti áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd og Kjartan Magnússon skipi sæti varaáheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd. MSS26030041

    Fylgigögn

  3. Lögð fram svohljóðandi tillaga forseta borgarstjórnar:

    Lagt er til að forsætisnefnd samþykki að fyrirkomulag borgarstjórnarfunda þegar ársreikningur Reykjavíkurborgar 2025 verður afgreiddur verði með sama sniði og árin 2022, 2023 og 2024. Við fyrri umræðu um ársreikning sem fram fer á fundi borgarstjórnar 28. apríl nk. taka einungis oddvitar til máls. Ræðutími þeirra verður rýmkaður í 75 mínútur en að öðru leyti gilda hefðbundnar reglur um fundarsköp. Á dagskrá verður fyrri umræða um ársreikning auk fundargerða. Við seinni umræðu um ársreikning sem fram fer á fundi borgarstjórnar 5. maí er gert ráð fyrir öllum borgarfulltrúum á mælendaskrá og hefðbundnar reglur um fundarsköp gilda. Á dagskrá verður seinni umræða um ársreikning auk fundargerða.

    -    Kl. 10:05 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti með fjarfundarbúnaði

    Samþykkt.
    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS26010009

    Fylgigögn

  4. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 21. apríl  2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a)    Stafræn stefna Reykjavíkurborgar 2026 -2030, sbr. 35. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl, fyrri umræða
    b)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um betri álagsdreifingu umferðar
    c)    Stefna um áætlun um gönguvæna borg, sbr. 20. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. apríl,  fyrri umræða
    d)    Tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um fjölskyldumiðstöð og miðstöð virkni og ráðgjafar
    e)    Tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar um fjárhagslegt velferðarlíkan
    f)        Tillaga borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur (óháðra) um nýja samgöngustefnu Reykjavíkurborgar
    g)    Umræða um stöðu skóla- og íþróttamála í Laugardal (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
    h)    Tillaga borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur (óháðra) um hverfislögreglustöð í Breiðholti
    i)    Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Miklubrautargöng í einkaframkvæmd
    j)        Umræða um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd (að beiðni Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur (óháðra))
    l)        Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytta forgangsröðun samgönguverkefna í Reykjavík
    m)    Umræða um stöðu húsnæðismála skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs (að beiðni Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur (óháðra)) MSS26010032

  5. Fram fer umræða um aðstæður barnafólks út frá sjónarhorni félagsfólks í VR í tengslum við reglulegt samtal forsætisnefndar við verkalýðshreyfinguna. MSS25030107

    Halla Gunnarsdóttir og Karitas Ríkarðsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
    Andrea Helgadóttir tekur sæti undir þessum lið með fjarfundarbúnaði

    -    Kl. 11:46 víkja Stefán Pálsson og Magnús Davíð Norðdahl af fundi og aftengjast fjarfundarbúnaði.

  6. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar dags. 13. apríl 2026 varðandi endurskoðun á reglum um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar ásamt drögum að uppfærðum reglum.
    Samþykkt með þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS24080092

    Fulltrúar Samfylkingar, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins ásamt áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Forsætisnefnd hóf endurskoðun á reglum um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkur og skilar nú niðurstöðum þeirrar vinnu og staðfestir uppfærðar reglur.

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Forsætisnefndarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar ítreka að það er ekki hlutverk Reykjavíkurborgar að taka afstöðu í erlendum deilum eftir hentisemi borgarstjórnarmeirihlutans hverju sinni. Það er ábyrgðarhluti að þekkja hlutverk og takmarkanir sveitarstjórnar. Ólíkt Alþingi rekur Reykjavíkurborg hvorki utanríkisráðuneyti né utanríkismálanefnd og býr því ekki yfir þeim faglegu innviðum sem þurfa að liggja fyrir þegar höfuðborg Íslands tekur opinbera afstöðu með eða gegn erlendum þjóðríkjum. Því eru forsætisnefndarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar á móti þessum breytingum á fánareglum borgarinnar þar sem borgarráðsfulltrúar meirihlutans geta í þökk eða óþökk annarra borgarfulltrúa blandað höfuðborg Íslands í hverjar þær erlendu deilur sem þeim hentar. Minnt er á að Reykjavík átti að vera hlutlaus friðarborg þar sem fólk hvaðanæva að gat leitað sér skjóls og sem slík trúverðugur vettvangur friðarviðræðna í heiminum. Þegar höfuðborg Íslands er farin að taka opinberlega afstöðu með flöggun fána er ljóst mál að úti er um þennan hlutlausa friðarvettvang sem undirrituðum þykir sérlega sorgleg þróun.

    Áheyrnarfulltrúinn Marta Guðjónsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í ljósi þess að sveitarfélög fara ekki með utanríkismál er það afstaða fulltrúa óháðra að erlenda þjóðfána skuli ekki draga að húni við Ráðhús Reykjavíkur nema við opinberar heimsóknir. Á  sama tíma og fánar erlendra ríkja er flaggað daglega við ráðhúsið er það óásættanlegt að þjóðfáni okkar Íslendinga fái ekki að blakta þar við hún daglega.  Í þeim löndum sem við berum okkur gjarnan saman við s.s. Danmörk og Noregur er  þjóðfánum þessara ríkja flaggað daglega við opinberar byggingar þar með talið við ráðhús þeirra. Fulltrúar óháðra og liðsmenn Miðflokksins Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon leggja til að Reykjavíkurborg taki þessi ríki til fyrirmyndar og heimili að þjóðfáni okkar Íslendinga fái  að blakta við hún ráðhússins daglega.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags.  1. september 2025, varðandi tillögu borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um íslenska þjóðfánan ásamt fylgigögnum.
    Vísað frá með þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og fulltrúa Framsóknarflokksins. MSS25040020

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokks leggur fram svohljóðandi bókun:

    Forsætisnefndarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins myndi furða sig á frávísun meirihlutans á þessari ágætu tillögu um að höfuðborg Íslands flaggi eigin þjóðfána í hvívetna en eftir fjögur ár hefur undirrituð lært að slík eru örlög hverrar þeirrar tillögu sem borgarstjórnarmeirihlutinn nennir ekki taka afstöðu til. Veri það leti eða leiðindi sem liggur að baki veit enginn, en forsætisnefndarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þykist vita að ef þessir sömu fulltrúar yrðu fyrir barðinu á slíkum vinnubrögðum sjálfir væri hneykslunin alger.

    Fulltrúar Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Fulltrúar samstarfsflokkanna vísa á bug aðdróttunum þess efnis að afgreiðsla þessa máls sé á nokkurn hátt óeðlileg. Tillagan hefur verið til skoðunar við endurskoðun á fánareglum við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar, sem voru samþykktar fyrr á fundinum. Í framhaldinu var unnt að taka afstöðu til tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og henni vísað frá.

    Fylgigögn

  8. Fram fer umræða um endurskoðun á samþykkt um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa.

    -    Kl. 12:18 tekur Stefán Pálsson sæti á fundinum. MSS23010278

  9. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa sjálfstæðisflokksins um breytingu á III. kafla samþykktar um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa sbr. 4. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 30. janúar 2026. MSS23010278
    Frestað. 

  10. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um breytingu á 63. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 8. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 27. febrúar 2026. MSS22080219
    Frestað. 

  11. Lögð fram að nýja tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að laun fyrstu varaborgarfulltrúa falli niður sitji hann hvorki í nefnd né ráði, sbr. 7. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 27. febrúar 2026. MSS23010278
    Frestað. 

  12. Samþykkt að taka á dagskrá tillögu að lagfæringu á verklagsreglum um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum. MSS23090170

    -    Kl. 12:41 tekur Heimir Snær Guðmundsson sæti á fundinum og við ritun fundargerðar.

    Samþykkt.

    -     Kl. 12:52 víkur Sabine Leskopf af fundi.
    -     Kl. 12.54 víkur Magnea Gná Jóhannsdóttir af fundi og aftengist fjarfundarbúnaði.

Fundi slitið kl. 13:13

Sanna Magdalena Mörtudottir Helga Þórðardóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 17.04.2026 - Prentvæn útgáfa