Endurskoðunarnefnd
Ár 2025, þriðjudaginn 9. september var haldinn 333. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 09:17. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Einar S. Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Lárus Finnbogason tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir.
Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um samþykkt borgarstjórnar þann 02.09.2025 á breytingu á samþykkt endurskoðunarnefndar. IER25030005
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd óskar eftir fundi með formanni borgarráðs áður en breytingar á samþykkt endurskoðunarnefndar koma til endanlegrar afgreiðslu.
-
Fram fer umræða um ráðningarferli innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. IER25030010
Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:
Endurskoðunarnefnd leggur til að hæfnisnefnd um ráðningu innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar verði skipuð þremur óháðum einstaklingum.
Fundi slitið kl. 11:53
Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson
Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar frá 9. september 2025