Borgarstjórn
Ár 2026, þriðjudaginn 14. apríl, var haldinn fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 12:08. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Sanna Magdalena Mörtudóttir, Alexandra Briem, Andrea Helgadóttir, Ásta Björg Björgvinsdóttir, Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Friðjón R. Friðjónsson, Helga Þórðardóttir, Helgi Áss Grétarsson, Hildur Björnsdóttir, Hjálmar Sveinsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Skúli Helgason og Þorvaldur Daníelsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt er til að Sabine Leskopf taki sæti 1. varaforseta borgarstjórnar í stað Guðnýjar Maju Riba.
Samþykkt.
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS22060040 -
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 10. apríl 2026, varðandi skil stýrihóps á heildstæðri matarstefnu Reykjavíkurborgar ásamt aðgerðaáætlun þar sem lagt er til að þær verði samþykktar.
- Kl. 14:40 tekur Aðalsteinn Haukur Sverrisson sæti á fundinum og Þorvaldur Daníelsson víkur af fundi.
- Kl. 14:45 víkur Hildur Björnsdóttir af fundinum og Þorkell Sigurlaugsson tekur þar sæti.Forseti ákveður að atkvæðagreiðsla fari fram í tvennu lagi þannig að matarstefna Reykjavíkur og aðgerðaáætlun stefnunnar verði bornar upp í sitt hvoru lagi.
Matarstefna Reykjavíkur er samþykkt með tuttugu atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn atkvæði borgarfulltrúa Viðreisnar.
Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson, óháðir borgarfulltrúar, sitja hjá við afgreiðslu málsins.Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna við aðgerðaáætlun matarstefnu Reykjavíkur:
Lagt er til að liður C.2. verði svohljóðandi: Boðið er upp á val um grænmetisrétt í öllum mötuneytum. Lagt er til að við bætist nýr liður, D.4., sem verður svohljóðandi: Unnar kjötvörur falla út af matseðli í leik- og grunnskólum og öðrum þeim starfsstöðum borgarinnar sem þjónusta börn, nema í undantekningatilvikum. Æskilegt viðmið er að hámarki fjórum sinnum á ári. Lagt er til að tölusetning liða í D-lið uppfærist í samræmi við þessa breytingu
Breytingartillagan er samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar, óháðra borgarfulltrúa.
Aðgerðaáætlun með matarstefnu Reykjavíkur er samþykkt svo breytt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn níu atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS23010261Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Með þessari samþykkt í borgarstjórn hefur verið ákveðið að leggja fram uppfærða matarstefnu Reykjavíkurborgar með skýrri framtíðarsýn um að allir íbúar hafi aðgengi að bragðgóðum og næringarríkum mat sem er framleiddur og meðhöndlaður á sjálfbæran hátt. Lögð er áhersla á virka þátttöku borgarbúa og hagaðila við innleiðingu stefnunnar. Aðgerðaáætlun stefnunnar er reist á grundvelli fimm yfirmarkmiða hennar: forystu sem skilar árangri, sýnilegri matvælaframleiðslu, sjálfbærni og bættri nýtingu matar, heilsusamlegs matar og fæðuöryggis, auk fjölbreyttrar matarmenningar.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja heildarmarkmið uppfærðrar matarstefnu Reykjavíkurborgar og leggja áherslu á mikilvægi þess að efla heilsu, gæði og sjálfbærni í matarmálum borgarinnar. Ýmsa jákvæða þætti má finna í stefnunni, meðal annars áherslu á matarsóun, næringu barna og fjölbreytta matarmenningu. Borgarfulltrúarnir geta hins vegar ekki stutt aðgerðaáætlunina í þeirri mynd sem hún liggur fyrir. Sérstaklega er litið til ákvæðis um að banna allar unnar kjötvörur í skólum, sem er bæði óljóst og of víðtækt hugtak sem nær yfir fjölbreyttar matvörur af mismunandi hollustu og vinnslu. Slík nálgun er hvorki skýr í framkvæmd né til þess fallin að tryggja jafnvægi milli næringar, menningar og valfrelsis.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn styður að matarstefna borgarinnar sé uppfærð og leggur áherslu á að borgin bjóði upp á fjölbreyttan og hollan mat í sínum mötuneytum. Framsókn telur þó ekki rétt að banna allar unnar kjötvörur í leik- og grunnskólum. Í því felst að bannað verður að bjóða upp á t.d. slátur, kæfu og skinku nema fjórum sinnum á ári. Ekki verður séð hvernig það samræmist núgildandi samningum borgarinnar um matarþjónustu og hvernig eftirlitið með þessu eigi að vera. Réttara hefði verið að leggja áherslu á að draga úr gjörunnum matvörum í mötuneytum borgarinnar. Framsókn fagnar áherslu á fæðuöryggi, fjölgun matjurtagarða í borginni og stuðning við matarmenningu. Sérstaklega er er því fagnað að boðið verði upp á hafragraut í skólum. Það skiptir máli að börn séu vel nærð þegar þau hefja sinn skóladag. Vert er að taka fram að stutt er síðan meirihlutinn hafnaði tillögu Framsóknar í velferðarráði um fjölbreytta matarkosti í mötuneytum borgarinnar.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirliggjandi drög að nýrri matarstefnu Reykjavíkurborgar og aðgerðaáætlun þar að lútandi eru stefnuskjöl sem eru of löng og á ýmsum stöðum óraunsæ. Þótt góður hugur búi að baki stefnumótunarvinnunni þá eiga stefnur af þessum toga að vera einfaldar og skýrar. Að framfylgja í framkvæmd þessari matarstefnu mun reynast þrautin þyngri. Eðlilegt er að Reykjavíkurborg hafi matarstefnu en þessi stefna sem hér er verið að samþykkja er haldin slíkum ágöllum að við sitjum hjá við afgreiðslu hennar. Komist Miðflokkurinn í meirihluta í borgarstjórn að loknum borgarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi verður unnið að því að fækka stefnum Reykjavíkurborgar og einfalda þær.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Bann við unnum kjötvörum nema fjórum sinnum á ári er takmörkun sem gengur of langt enda í okkar matarmenningu töluvert um unnar kjötvörur. Myndi fulltrúi Viðreisnar ekki vilja sjá þennan stóra hluta af okkar menningarheimi glatast svo auðveldlega fyrir ungum Reykvíkingum og þá sérstaklega þeim með fjölbreyttan bakgrunn sem hafa ekki kost á að nálgast hann heima fyrir. Í stefnunni er að finna marga jákvæða þætti, horft er til þess að gæta að hæfilegum matartíma barna og ánægjulegt að sjá áherslu á að hafragrautur sé í boði fyrir börnin. Takmarka matarsóun og auka fjölbreytileika og tengja við ólíka menningarheima í gegnum mat. En menningarheimur og matarmenning eru beintengd og er mikilvægt að stefnan eigi einhverja samleið með hver við erum, vorum og verðum. Margar rekstareiningar eru í borginni sem snerta þessa aldurshópa og mikilvægt að huga að því að þarfir varðandi næringu í frístundastarfi eru mögulega gerólíkar þeim sem leitast er eftir í grunn- eða leikskóla.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki eftirfarandi breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða í Reykjavík: Að gjaldskylda á gjaldsvæðum P1 og P2 falli niður eftir kl. 18 virka daga. Að gjaldskylda á laugardögum verði stytt og falli niður eftir kl. 16. Að gjaldskylda á sunnudögum verði felld niður. Að farið verði í endurskoðun á gjaldtöku á íbúasvæðum með það að markmiði að bæta íbúakort og einfalda kerfið. Að innleitt verði sérstakt bílastæðakort fyrir atvinnurekendur í miðborg. Að ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum borgarinnar og aðgengi að þeim. Að gjald á gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar með það að markmiði að lækka gjaldtöku. Að áður en breytingar á gjaldskrá og gjaldskyldu taka gildi verði haft virkt samráð við samtök rekstraraðila og íbúasamtök í miðborginni og Vesturbæ, enda var slíkt samráð ekki tryggt við síðustu breytingar.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 15:40 víkur Skúli Helgason af fundinum og Birkir Ingibjartsson tekur þar sæti.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna ásamt viðaukatillögu sömu fulltrúa:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki eftirfarandi tillögur og breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða í Reykjavík: Gjald á gjaldsvæði P1 verði tekin til endurskoðunar og ráðist verði í að breyta hluta svæða P2 í P3 (þar sem ekki er gjaldskylda um kvöld og helgar). Útfærsla á gjaldskyldu á sunnudögum verði tekin til endurskoðunar. Gjaldskylda verði endurskoðuð á íbúasvæðum með það að markmiði að gera íbúakort sveigjanlegri og einfalda umsóknarkerfið. Ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar og aðgengi að þeim. Þegar vinnu við breytingarnar á gjaldskrá og gjaldskyldu er lokið skal senda þær í samráðsgátt áður en þær eru samþykktar enda snertir gjaldskylda alla sem koma til Reykjavíkur og íbúa borgarinnar. Sérstaklega skal gera íbúum og hagsmunaaðilum viðvart á þeim svæðum sem breytingarnar hafa áhrif á. Einnig er lagt er til að svohljóðandi viðauki bætist við samþykktina: Borgarstjórn samþykkir jafnframt að farið verði í heildarendurskoðun á þeim verklagsreglum sem fylgt er þegar breytingar eru ákvarðaðar á stækkun gjaldskyldusvæða eða útfærslu á verðlagningu og tímamörkum sem þau fylgja hverju sinni.
Lögð fram svohljóðandi breytingatillaga Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa:
Lagt er til að ákvæði, um að bílastæðum í Reykjavík verði fækkað um 2% á ári, verði fellt úr aðgerðaáætlun vegna loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar. Jafnframt er lagt til að borgarstjórn samþykki eftirfarandi breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða í Reykjavík: Að gjaldskylda á gjaldsvæðum P1 og P2 falli niður eftir almennan skrifstofutíma, þ.e. eftir kl. 16 virka daga. Að gjaldskylda á laugardögum verði stytt og falli niður eftir kl. 16. Að gjaldskylda á sunnudögum verði felld niður. Að gjaldtaka á íbúasvæðum verði endurskoðuð með það að markmiði að bæta íbúakort og einfalda kerfið. Að innleitt verði sérstakt bílastæðakort fyrir atvinnurekendur sem sinna nærþjónustu við íbúa í miðborginni. Að innleidd verði sérstök skammtímakort fyrir iðnaðarmenn sem sinna tímabundnum verkum fyrir íbúa í miðborginni. Að ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum Reykjavíkurborgar og aðgangi að þeim. Að gjald á gjaldsvæði P1 lækki úr 660 krónum í 430 krónur á klukkustund. Að virkt samráð um breytingar á gjaldskrá og gjaldskyldusvæðum Bílastæðasjóðs verði ætíð haft við samtök rekstraraðila, sem og íbúasamtök í miðborginni og Vesturbænum, áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar þar að lútandi.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Lagt er til að gjaldskylda á gjaldsvæðum P1 og P2 falli niður eftir kl. 18 virka daga. Að gjaldskylda á laugardögum verði stytt og falli niður eftir kl. 16. Að gjaldskylda á sunnudögum verði felld niður. Að farið verði í endurskoðun á gjaldtöku á íbúasvæðum með það að markmiði að bæta íbúakort og einfalda kerfið. Að verð á íbúakorti fyrir bíl númer 2 verði lækkað um helming. Að innleitt verði sérstakt bílastæðakort fyrir atvinnurekendur í miðborg, bæði þá sem stunda rekstur í miðborginni og skammtíma bílastæðakort fyrir þá sem sinna tímabundnum verkum fyrir íbúa í miðborginni, svo sem iðnaðarmenn. Að ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum borgarinnar og aðgengi að þeim. Að gjald á gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar með það að markmiði að lækka gjaldtöku. Að áður en breytingar á gjaldskrá og gjaldskyldu taka gildi verði haft virkt samráð við samtök rekstraraðila og íbúasamtök í miðborginni og Vesturbæ, enda var slíkt samráð ekki tryggt við síðustu breytingar.
Gengið er til atkvæða um breytingar- og viðaukatillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar, óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Aðrar breytingatillögur koma ekki til atkvæðagreiðslu.
Upphafleg tillaga er samþykkt svo breytt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar, óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26040021Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að í umræðu um tillögur flokksins um gjaldskyldu bílastæða í Reykjavík hafi komið fram breið samstaða um að þörf sé á endurskoðun á fyrirkomulaginu. Sú niðurstaða endurspeglast jafnframt í samþykkt borgarstjórnar um að taka gjaldsvæði, gjaldtöku og útfærslu hennar til endurskoðunar. Það staðfestir að sú gagnrýni sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið á lofti átti fullan rétt á sér. Jafnframt er ljóst að samþykkt tillaga meirihlutans felur ekki í sér þær breytingar sem þörf er á, heldur frekari vinnu og endurskoðun án skýrra aðgerða eða tímasetninga. Einnig var ljóst af ræðum fulltrúa meirihlutans að raunverulegur vilji til breytinga er lítill á þeim bæ. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áfram áherslu á skýrar og tafarlausar aðgerðir sem bæta aðgengi, einfalda kerfið og styðja við mannlíf og atvinnustarfsemi í miðborginni. Sjálfstæðisflokkurinn mun halda áfram að þrýsta á um slíkar breytingar
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn vill breyta gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða og styður því tillöguna sem felst í því að snúa við vanhugsaðri þróun í þessum málaflokki undanfarin ár. Íbúar miðsvæðis og atvinnurekendur hafa kvartað sáran yfir þeirri þróun sem hefur verið, sem hefur haft þau áhrif að íbúar Reykjavíkur sækja síður í þjónustu miðsvæðis og að íbúar miðsvæðis kvarta yfir slæmu aðgengi fyrir gesti. Framsókn furðar sig á því að breytingatillaga flokksins um að lækka verð á bílastæðakorti fyrir bíl númer tvö og skammtíma bílastæðakort fyrir atvinnurekendur sem veita tímabundna þjónustu í miðbænum, svo sem iðnaðarmenn, hafi verið felld af meirihlutanum.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson leggja fram svohljóðandi bókun:
Þörf er á að breyta gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða í Reykjavík. Um of langa hríð hefur meirihluti borgarstjórnar, með Samfylkinguna í broddi fylkingar, fundið leiðir til að hækka álögur á notendur fjölskyldubílsins. Upphafleg tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um efnið var til bóta. Tillögu Sjálfstæðisflokksins var hins vegar umturnað í meðferð meirihlutans og væntanlega mun hin afgreidda tillaga vera svo svæfð af þar til bærum aðilum innan borgarkerfisins. Á hinn bóginn er það svo að trúverðugleiki Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki er takmarkaður, ólíkt Miðflokknum. Þetta skýrist af því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa um langt árabil annað hvort setið hjá eða stutt mál sem komið hafa frá fulltrúum meirihluta borgarstjórnar um þessi málefni. Sem dæmi var oddviti Sjálfstæðisflokksins ein þeirra sem greiddu atkvæði með loftslagsáætlun borgarinnar, sbr. 3. dagskrárlið fundargerðar borgarstjórnar 2. mars 2021, en af þeirri áætlun leiðir að fækka eigi bílastæðum um 2% á hverju ári. Einnig sátu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hjá í lok júní 2023 þegar gjaldskylda var verulega hækkuð, gjaldtími lengdur og gjaldsvæði stækkað, sjá 12. dagskrárlið fundargerðar borgarráðs 29. júní 2023. Fleiri dæmi mætti nefna af þessu tagi. Málflutningur Miðflokksins er hins vegar ótvíræðari og mun flokkurinn ekki hika við að mæta óvild í garð fjölskyldubílsins í höfuðborginni af fullri hörku.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Vissulega eru margir góðir þætti í tillögunni svo sem að endurskoða og einfalda íbúakortakerfi Bílastæðasjóðs. Markviss kynning á starfsemi bílastæðahúsa einnig frábær leið til að vekja athygli á fjölda þeirra stæða sem oft standa tóm miðsvæðis. En breytingar á álagningartímum eru breytingar sem fulltrúi Viðreisnar er ekki fullviss um að séu til bóta fyrir íbúa á svæðinu og hætt við að umfram bifreiðar safnist fyrir við heimili fólks á kvöldtíma og er ólíklegt að það sé ósk nokkurs. Kýs því fulltrúi Viðreisnar gegn þessari tillögu.
Fylgigögn
-
Lögð fram húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026.
- Kl. 17:25 víkur Hjálmar Sveinsson af fundinum og Ellen Jacqueline Calmon tekur þar sæti.
Samþykkt með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030068Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum leitt uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á landinu, með yfir 1.100 nýjum íbúðum að jafnaði á ári. Áhersla hefur verið lögð á samstarf við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög og verður sú stefna áfram í forgrunni til að stuðla að fjölbreyttri búsetu og félagslegum jöfnuði. Þrátt fyrir þennan árangur eru áframhaldandi áskoranir. Skortur á aðgengilegu og öruggu húsnæði hefur víðtæk áhrif, sérstaklega fyrir ungt fólk, tekjulægri heimili og eldra fólk. Borgin mun halda áfram að grípa til markvissra aðgerða enda eru húsnæðismál grundvallaratriði í velferð og samheldni samfélagsins. Í húsnæðisáætlun 2026-2035 er lögð áhersla á að byggja rétt, ekki bara meira. Sett er það markmið að að minnsta kosti 35% nýs húsnæðis verði á vegum óhagnaðardrifinna félaga eða í formi félagslegs leiguhúsnæðis, með gæði og lífsgæði að leiðarljósi.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi húsnæðisáætlun meirihluta vinstriflokkanna í Reykjavík. Áætlunin gerir ráð fyrir að allt að 35% húsnæðis í Reykjavík verði niðurgreitt af hinu opinbera. Slík stefna felur í sér verulega kerfisbreytingu á húsnæðismarkaði í átt að umfangsmiklu opinberu húsnæðiskerfi sem á sér hvorki stoð í þörfum né óskum borgarbúa. Með þessu er verið að færa sífellt stærri hluta markaðarins yfir á herðar skattgreiðenda án þess að sýnt sé fram á að það skili auknu framboði eða lægra verði til lengri tíma. Áætlunin leggur megináherslu á niðurgreidd úrræði en skortir skýrar og trúverðugar aðgerðir til að auka framboð húsnæðis. Án stóraukinnar lóðaúthlutunar, einfaldari skipulagsferla og aukins byggingarhraða munu markmið hennar ekki nást. Húsnæðisáætlun vinstriflokkanna er því frekar viljayfirlýsing en raunhæf framkvæmdaáætlun. Kannanir sýna að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem eru á leigumarkaði vill eignast eigið húsnæði. Áætlunin bregst þeirri eftirspurn og festir fólk frekar í leigumarkaði en að skapa raunhæfar leiðir til eignamyndunar. Séreignarstefnan er kjarninn í húsnæðisstefnu Sjálfstæðisflokksins. Hún er forsenda öryggis, stöðugleika og fjárhagslegs sjálfstæðis heimila og lykill að heilbrigðum húsnæðismarkaði í Reykjavík.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn bendir á að í þessari húsnæðisáætlun eru tölur um íbúðir sem ekki munu byggjast á næstu árum. Til dæmis 7500 íbúðir í Vatnsmýri sem munu ekki byggjast nema Reykjavíkurflugvöllur víki. Engin áform eru uppi af hálfu stjórnvalda um að byggja annan flugvöll og því er óeðlilegt að telja þessar 7500 íbúðir með. Þá er einnig gert ráð fyrir að byggja hátt í 700 íbúðir í „nýja Skerjafirði“ sem enn er inni á svæði flugvallarins. Framsókn telur að auka þurfi framboð af byggingarhæfum lóðum og hefja strax skipulagsvinnu á Geldinganesi, Kjalarnesi og í Úlfarsárdal. Þá gagnrýnir Framsókn að hlutfall óhagnaðardrifins húsnæðis hafi verið hækkað frá fyrri áætlun án þess að fyrir liggi nákvæm greining á því hvaða áhrif það hefur. Langflestir vilja helst búa í eigin húsnæði og Reykjavíkurborg ætti að frekar að auðvelda íbúum að eignast sína fyrstu íbúð með því að stuðla að byggingu hagkvæms húsnæðis til eignar, til dæmis í gegnum hlutdeildarlánakerfið.
Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson leggja fram svohljóðandi bókun:
Fólk býr ekki í áætlunum borgaryfirvalda og í fallegum glærukynningum. Fyrirliggjandi húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar 2026-2035 ber þess merki að vera framlag Samfylkingarinnar og fylgihnatta hennar í meirihluta borgarstjórn í kosningabaráttu. Áætlunin er óraunsæ, þétting byggðar í Úlfarsárdal ólíkleg til að ná fram að ganga og svo mætti lengi telja. Samgöngumál tengd þéttingu byggðar eru óleyst. Af þessum ástæðum greiða borgarfulltrúarnir atkvæði gegn húsnæðisáætluninni, hún er ekki trúverðugt plagg í aðdraganda borgarstjórnarkosninga.
Borgarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúa Viðreisnar þykir einkennilegt að setja inn væntingar um hlutfall til framtíðar í stefnuna fremur en að leggja áherslu á það hlutfall sem stefnan nær í raun til hvað varðar óhagnaðardrifið húsnæði. Lagði fulltrúi Viðreisnar fram á dögunum tillögu sem snýr að því að borgin leitist eftir að á eigin landsvæði rísi einfaldar eignir í beinum tengslum við eftirspurn á markaði. Einfaldar íbúðir sem mæta grunnþörfum um húsnæði án viðbótar tilkostnaðar, hefði verið ánægjulegt ef horft hefði verið til þeirrar hugsjónar að einhverju leyti við mótun stefnunnar. Sem og að horft væri til þess að finna leiðir til að styðja við fjölbreyttara úrval íbúðarkosta, hvort sem á við íbúðir án geymslu, íbúðir fyrir einstaklinga eða íbúðir fyrir barnmargar fjölskyldur. Vegna þess kýs fulltrúi Viðreisnar ekki með stefnunni. Þó stefnan hafi sannarlega marga góða kosti snertir hún því miður ekki á þeim stóru áhrifum sem fasteignamarkaðurinn í núverandi mynd hefur á líf fjölda íbúa í dag.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Borgarstjórn samþykkir að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði frá og með 1. maí þannig að fasteignagjöld, sem hækkuðu um áramót miðað við hækkun fasteignamats frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, lækki nú niður í 2,5% sem samsvarar verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.
Greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 19:00 tekur Árelía Eydís Guðmundsdóttir sæti á fundinum og Ásta Björg Björgvinsdóttir víkur af fundi.Samþykkt að vísa tillögunni frá með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa. MSS26040023
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Framsókn gagnrýnir harðlega að meirihlutinn undir stjórn Samfylkingarinnar skuli ekki samþykkja að taka þátt í baráttunni við verðbólgu og háa vexti með því að lækka fasteignagjöld niður í verðbólgumarkmið Seðlabankans. Ríkisstjórnin er búin að missa tökin á efnahagsmálunum og máttlítil viðbrögð hennar kalla á sterkt viðbragð frá sveitarfélögum. Það er grafalvarlegt ef forsenduákvæði kjarasamninga brestur í haust og til mikils að vinna að vinna bug á verðbólgunni. Fasteignagjöld hafa hækkað langt umfram verðlag í Reykjavík en meirihlutinn hafnar lækkun álagningarhlutfallsins. Þetta er ósanngjörn skattheimta og bitnar harkalega á fjölskyldum og fyrirtækjum.
Borgarfulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Þar sem þegar er búið að afgreiða fjárhagsáætlun er þessari tillögu vísað frá. Þar að auki er hvorki fjárhagslegt svigrúm í fjárhagsáætlun til þess að lækka tekjur borgarinnar með þessum hætti, né væri það skynsamlegasta leiðin til að nýta slíkt svigrúm, væri það til staðar.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Viðreisnar:
Lagt er til að raunkostnaður borgarinnar fyrir veitta þjónustu borgarinnar sé gerður sýnilegur fyrir íbúa á reikningum og kvittunum. Að kostnaður borgarinnar sé sýnilegur ásamt framlagi íbúa við greiðslu gefur íbúum betri sýn á rekstur borgarinnar og nýtingu þeirra útsvars. Samræmist þetta útfærslu við lyfjakaup þar sem hlutfall sjúklinga og hlutfall sjúkratrygginga er birt. Borgin veitir margþætta þjónustu og raunkostnaður oft óljós en hann hefur áhrif á virðismat þeirrar þjónustu sem íbúum er veitt.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt að vísa tillögunni frá með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn 11 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa. MSS26030062Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháðu borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að falla frá áformum um svokallaða borgarlínu. Þess í stað verði þegar hafist handa við að stórbæta almenningssamgöngur með eflingu núverandi strætisvagnakerfis. Jafnframt verði leitast við að hraða framkvæmdum við Miklubrautargöng og endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar-Bústaðavegar, sem og snjallvæðingu umferðarljósa í borginni. Ráðist verði í eftirfarandi aðgerðir til eflingar strætisvagnakerfinu með sérstakri áætlun. Stefnt verði að því að öllum markmiðum aðgerðaáætlunarinnar verði náð fyrir árið 2030. 1. Forgangsakreinar. Ráðist verði í átak við lagningu hægrisettra forgangakreina fyrir strætisvagna á umferðarþungum stöðum þar sem þeir verða helst fyrir töfum. 2. Umferðarljósaforgangur. Forgangur strætisvagna verði tryggður með snjallstýringu umferðarljósa. 3. Biðskýli og skiptistöðvar. Ráðist verði í úrbætur á biðskýlum og skiptistöðvum í borginni. Upphituð biðskýli verði sett upp á fjölförnum biðstöðvum að erlendri fyrirmynd, t.d. við háskóla, framhaldsskóla og aðra fjölmenna vinnustaði og stofnanir. 4. Umbætur á leiðakerfi. Umbætur verði gerðar á leiðakerfi Strætós bs. Meðal annars verði þjónusta bætt í eystri hverfum Reykjavíkur og ýmsar tengingar styrktar. Tímatöflur verði endurskoðaðar í því skyni að auka áreiðanleika kerfisins og tryggja vagnstjórum umsaminn hvíldartíma. 5. Vagnafloti. Hraða þarf endurnýjun vagnaflota Strætó bs. 6. Greiðslukerfi. Núverandi greiðslukerfi verði skipt út fyrir hraðvirkt og notendavænt kerfi. Gjaldskrá Strætó bs. verði endurskoðuð og afsláttarkjör tryggð fyrir fasta viðskiptavini. Borgarstjóra er falið hefja án tafar viðræður við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélögin um þessa nýju samgöngustefnu og þær breytingar á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem hún felur í sér.
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta málinu.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030063Fylgigögn
-
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta umræðu um niðurstöður samtals við verkalýðshreyfinguna.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25030107 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Borgarstjórn samþykkir að hefja undirbúning aðgerða til að dreifa umferð betur yfir daginn og draga úr umferðarþunga á háannatímum, með hliðsjón af niðurstöðum skýrslunnar „Álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu“, sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í tengslum við sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins 2025-2029, og vísa málinu til umhverfis- og skipulagssviðs.
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta málinu.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030064Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að ráðast í skipulagsbreytingar á miðstöðvum borgarinnar þannig að þeim verði fækkað úr fjórum í tvær og eftir standi ein fjölskyldumiðstöð og ein miðstöð virkni og ráðgjafar. Þá verði ábyrgð á framkvæmd og rekstri málaflokks eldra fólks færð af miðstöðvum inn á skrifstofu málaflokksins á velferðarsviði. Markmiðið með þessari breytingu er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir, auka þjónustu við íbúa inni í hverfum borgarinnar og bæta samþættingu faglegra og fjárhagslegra ákvarðana.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta málinu.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26040027Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháðu borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar:
Borgarstjórn samþykkir að taka upp viðræður við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðuneytið um starfrækslu hverfislögreglustöðvar í Breiðholti í því skyni að styrkja löggæslu í borgarhlutanum. Stöðin verði starfrækt í anda svonefndrar samfélagslöggæslu og áhersla lögð á að tengja hana skólunum í hverfinu með jákvæðum hætti. Um yrði að ræða samstarfsverkefni ríkis og borgar og stefnt að því að Reykjavíkurborg sæi stöðinni fyrir húsnæði eins og gert var þegar hverfislögreglustöð var áður starfrækt í Breiðholti með góðum árangri.
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta málinu.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25090069Fylgigögn
-
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta umræðu um stöðu skóla- og íþróttamála í Laugardal.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26020048 -
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta umræðu um öryggismál á skiptistöðinni í Mjódd.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25120075 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Reykjavíkurborg lýsir því yfir að Miklubrautargöng verði sett í einkaframkvæmd og hefjist vinna við undirbúning þeirra á þessu ári og stefnt verði að því að þeim verði lokið árið 2032. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði breytt til samræmis.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt með þrettán atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta málinu.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030065Fylgigögn
-
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta umræðu um stöðu húsnæðismála.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26040029 -
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir að fela borgarstjóra að hefja viðræður við ríki og nágrannasveitarfélög um breytingar á forgangsröðun og fjármögnun verkefna innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, með það að markmiði að setja brýnustu og arðbærustu samgönguverkefni í forgang og tryggja skjótan og mælanlegan árangur fyrir borgarbúa. Sérstök áhersla verði lögð á að: 1. Snjallvæðing umferðarljósa verði sett í algeran forgang og innleidd á öllu höfuðborgarsvæðinu með miðlægu stýrikerfi sem lágmarkar biðtíma og tryggir forgang almenningssamgangna og viðbragðsaðila. 2. Forgangsaðgerðir fyrir almenningssamgöngur verði endurskipulagðar og styrktar, með uppbyggingu hraðvirks og hagkvæms leiðakerfis á sérakreinum þar sem það á við, án þess að þrengja að almennri umferð. Dregið verði úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Ráðist verði í úrbætur á leiðarkerfi, biðskýlum og skiptistöðvum og notendavænna greiðslukerfi innleitt. Gervigreind og tæknilausnir verði notaðar til að telja innstig og greina ferðir strætó strax á næsta kjörtímabili svo tryggja megi öflugra leiðarkerfi og gera strætó snjallari. 3. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur á helstu flöskuhálsum, gatnamótum og tengingum, þar sem hægt er að bæta umferðarflæði með einföldum og hagkvæmum aðgerðum. Gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar verði hraðað eftir fremsta megni. 4. Falla skal tafarlaust frá fyrirhuguðum breytingum á deiliskipulagi vegna Suðurlandsbrautar. Ekki verði þrengt að almennri umferð á brautinni. Nýjum sérakreinum almenningssamgangna verði þvert á móti komið fyrir án þess að fækka akreinum eða bílastæðum. Lögð verði áhersla á gott aðgengi að atvinnustarfsemi, verslun og þjónustu á svæðinu. Öruggar og skilvirkar göngu- og hjólatengingar verði jafnframt tryggðar. 5. Reykjavíkurborg lýsi því yfir að ráðist verði í undirbúning Miklubrautarganga með það að markmiði að þau verði framkvæmd í einkaframkvæmd utan samgöngusáttmála. Undirbúningur hefjist á þessu ári og að stefnt verði að verklokum árið 2032. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði uppfærð í samræmi við það. 6. Framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verði endurskoðuð í heild, þannig að tryggt sé að tímasetningar standist, kostnaður sé undir stjórn og forgangsröðun verkefna sé í samfellu og tryggi greiðar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. 7. Verkefni samgöngusáttmála verði fjármögnuð án flýti- og umferðargjalda, í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins um að draga úr álögum á borgarbúa.
Samþykkt með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fresta málinu.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26040030Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháða borgarfulltrúans Kjartans Magnússonar:
Við undirritaðir borgarfulltrúar höfum stofnað borgarstjórnarflokk óháðra og munum starfa innan hans út kjörtímabilið í samræmi við tilkynningu okkar til forsætisnefndar 9. mars 2026. Við leggjum því til að borgarstjórn samþykki að við fáum að tilnefna áheyrnarfulltrúa í borgarráð í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Lagt er til að Kjartan Magnússon skipi sæti áheyrnarfulltrúa í borgarráði. Lagt er til að Marta Guðjónsdóttir skipi sæti varaáheyrnarfulltrúa í borgarráði.
Samþykkt með 10 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Einars Þorsteinssonar og Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur, borgarfulltrúa Pírata, borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, borgarfulltrúa Flokks fólksins, og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar, óháðra borgarfulltrúa, gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Vinstri grænna.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Birkir Ingibjartsson og Ellen Calmon og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Aðalsteinn Haukur Sverrisson, sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030041Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháða borgarfulltrúans Kjartans Magnússonar:
Við undirritaðir borgarfulltrúar höfum stofnað borgarstjórnarflokk óháðra og munum starfa innan hans út kjörtímabilið í samræmi við tilkynningu okkar til forsætisnefndar 9. mars 2026. Við leggjum því til að borgarstjórn samþykki að við fáum að tilnefna áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Lagt er til að Marta Guðjónsdóttir skipi sæti áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd. Lagt er til að Kjartan Magnússon skipi sæti varaáheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd.
Samþykkt með níu atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Einars Þorsteinssonar og Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur, borgarfulltrúa Pírata, borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar, óháðra borgarfulltrúa, gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Vinstri grænna og borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, Andreu Helgadóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Birkir Ingibjartsson og Ellen Calmon og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Aðalsteinn Haukur Sverrisson, sitja hjá við afgreiðslu málsins.
MSS26030041Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga óháða borgarfulltrúans Kjartans Magnússonar:
Við undirritaðir borgarfulltrúar höfum stofnað borgarstjórnarflokk óháðra og munum starfa innan hans út kjörtímabilið í samræmi við tilkynningu okkar til forsætisnefndar 9. mars 2026. Við leggjum því til að borgarstjórn samþykki að við fáum að tilnefna áheyrnarfulltrúa í umhverfis- og skipulagsráð í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. Lagt er til að Marta Guðjónsdóttir skipi sæti áheyrnarfulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði og Kjartan Magnússon skipi sæti varaáheyrnarfulltrúi í ráðinu.
Samþykkt með níu atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Einars Þorsteinssonar og Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur, borgarfulltrúa Pírata, borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar, óháðra borgarfulltrúa, gegn sjö atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Vinstri grænna og borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, Andreu Helgadóttur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sabine Leskopf, Sara Björg Sigurðardóttir, Birkir Ingibjartsson og Ellen Calmon og borgarfulltrúar Framsóknarflokksins, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Aðalsteinn Haukur Sverrisson, sitja hjá við afgreiðslu málsins.
MSS26030041Fylgigögn
-
Lagt til að Helga Þórðardóttir taki sæti í velferðarráð í stað Guðnýjar Maju Riba.
Samþykkt. MSS22060049 -
Lagt til að Birkir Ingibjartsson taki sæti í mannréttindaráði í stað Guðnýjar Maju Riba. Jafnframt er lagt til að Alondra Veronica V. Silva Muñoz verði varamaður í ráðinu í stað Ólafar Helgu Jakobsdóttur.
Samþykkt. MSS25020083 -
Lagðar fram fundargerðir borgarráðs frá 19. mars og 26. mars 2026.
3. liður fundargerð borgarráðs frá 19. mars 2026, Yrsufell 2a-2i – kjarnasamfélag er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.USK260302684. liður fundargerðar borgarráðs frá 19. mars 2026, Laugavegur 159 – kjarnasamfélag, er samþykktur með 12 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins. USK260302697. liður fundargerðar borgarráðs frá 19. mars 2026, þjónustusamningur sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. og samstarfssamningur Strætó bs. og Almenningssamgangna ohf., er samþykktur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS260300181. liður fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, Elliðaárdalur – breyting á deiliskipulagi vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs, er samþykktur með 17 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn sex atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Kjartans Magnússonar og Helga Áss Grétarssonar óháðra borgarfulltrúa. USK25110138
15. liður fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS2601002016. liður fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026, er samþykktur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS2603000819. liður fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, Hallgerðargata 11A, sala, er samþykktur með 13 atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri grænna gegn fjórum atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson óháðir borgarfulltrúar sitja hjá við afgreiðslu málsins. FAS25060027Lagðar fram fundargerðir forsætisnefndar frá 27. mars, mannréttindaráðs frá 26. febrúar, 12. mars og 31. mars og menningar- og íþróttaráðs frá 27. febrúar, 20. mars og 27. mars.
1. liður fundargerðar menningar- og íþróttaráðs frá 27. mars 2026, gjaldskrá á þjónustu á vegum menningar- og íþróttasviðs, er samþykktur. Borgarfulltrúar Framsóknar og Kjartan Magnússon og Helgi Áss Grétarsson, óháðir borgarfulltrúar, sitja hjá við afgreiðslu málsins. MIR24050008
Jafnframt lagðar fram fundargerðir skóla- og frístundaráðs frá 23. mars, stafræns ráðs frá 14. janúar, 28. janúar og 11. mars, umhverfis- og skipulagsráðs frá 18. mars og 25. mars og velferðarráðs frá 18. mars og 25. mars. MSS26010002
Borgarfulltrúar Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun undir 7. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. mars.
Jákvætt er að ríkið setji meira fjármagn í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og ætli sér að koma meira að rekstrinum með tilkomu nýs félags um almenningssamgöngur. Fulltrúarnir eru hinsvegar mótfallnir þeirri framtíðarsýn Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins að allur akstur strætisvagna verði boðinn út.
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 6. lið fundargerðar skóla- og frístundaráðs frá 23. mars:
Meirihlutinn hefur ákveðið að stytta opnunartíma frístundaheimila til kl. 16:30 í stað 17:00. Vísar meirihlutinn til skorts á fjármagni í ramma sviðsins, ramma sem meirihlutinn sjálfur setti, á sama tíma og gert er ráð fyrir um fimm milljarða afgangi í rekstri borgarinnar. Þrátt fyrir það er ekki talin ástæða til að verja hluta af því fjármagni í þessa mikilvægu þjónustu við börn og fjölskyldur. Þetta er skýr þjónustuskerðing við barnafjölskyldur. Meirihlutinn flytur ábyrgðina af kerfinu yfir á foreldra sem margir hverjir geta ekki stytt vinnudaginn til að ná í börnin fyrr. Ákvörðunin kemur sérstaklega illa fyrir fjölskyldur með börn á leikskóla og í frístund sem þurfa að sækja börn á tvo staði fyrir klukkan 16:30. Styttri vaktir gera störf í frístundaheimilum síður eftirsóknarverð og geta aukið mönnunarvanda til framtíðar. Þá er alvarlegt að ekkert raunverulegt samráð hefur farið fram við foreldra eða starfsfólk áður en ákvörðunin var endanlega tekin. Ef fjármagnið dugar ekki er lausnin að stokka spilin upp á nýtt og forgangsraða þannig að áætlaður afgangur borgarinnar fari í að tryggja áfram opnunartíma frístundaheimila til 17:00. Frístundaheimili eru grunnþjónusta sem Framsókn mun standa vörð um.
Fylgigögn
- Fundargerð borgarráðs frá 19. mars 2026
- - 3. liður; Yrsufell 2a-2i - Kjarnasamfélag
- - 4. liður; Laugavegur 159 - Kjarnasamfélag
- - 7. liður; þjónustusamningur sveitarfélaga og ríkis við AHS ohf. og samstarfssamningur Strrætó bs og Almenningssamgangna ofh
- Fundargerð borgarráðs frá 26. mars 2026
- - 1. liður; Elliðaárdalur - breyting á deiliskipulagi vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs
- - 15. liður; viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026
- - 16. liður; viðauki við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026
- - 19. liður; Hallgerðargata 11A, sala
- Fundargerð forsætisnefndar frá 27. mars 2026
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 26. febrúar 2026
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 12. mars 2026
- Fundargerð mannréttindaráðs frá 31. mars 2026
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 27. febrúar 2026
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 20. mars 2026
- Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 27. mars 2026
- - 1. liður: gjaldskrá á þjónustu á vegum menningar- og íþróttasviðs
- Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 23. mars 2026
- Fundargerð stafræns ráðs frá 14. janúar 2026
- Fundargerð stafræns ráðs frá 28. janúar 2026
- Fundargerð stafræns ráðs frá 11. mars 2026
- Fundargerð umhverfis- og skipulagssviðs frá 18. mars 2026
- Fundargerð umhverfis- og skipulagssviðs frá 25. mars 2026
- Fundargerð velferðarráðs frá 18. mars 2026
- Fundargerð velferðarráðs frá 25. mars 2026
Fundi slitið kl. 21:53
Sanna Magdalena Mörtudottir Andrea Helgadóttir
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 14.04.2026 - Prentvæn útgáfa