Borgarstjórn - 30.04.2013

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2013, þriðjudaginn 30. apríl, var haldinn aukafundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 14.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Karl Sigurðsson, Óttarr Ólafur Proppé, Eva Einarsdóttir, Einar Örn Benediktsson, Oddný Sturludóttir, Dagur B. Eggertsson, Björk Vilhelmsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Marta Guðjónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir og Sóley Tómasdóttir.

Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

1. Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012, sbr. 4. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. þ.m. Jafnframt er lögð fram endurskoðunarskýrsla Pricewaterhouse Coopers hf., skýrsla endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar 2013, skýrsla fjármálaskrifstofu allar dags. 26. apríl 2013 ásamt skýrslu innri endurskoðunar dags. í apríl 2013.

Samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að vísa ársreikningi Reykjavíkurborgar ásamt endurskoðunarskýrslum til síðari umræðu.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Þetta er annað árið sem meirihluti Besta flokks og Samfylkingarinnar hefur haft tækifæri til þess að setja alfarið mark sitt á borgarreksturinn. Og annað árið í röð er taprekstur í borginni sem gefur til kynna að aðhald í rekstri sé ófullnægjandi. Kjörtímabil núverandi meirihluta hefur einkennst af því að kerfið hefur vaxið á kostnað borgarbúa í formi skatta- og gjaldskrárhækkana. Samanlögð rekstrarniðurstaða áranna 2011 og 2012 í A- hluta ársreiknings er neikvæð um 2,8 milljarða króna. En samanlögð rekstrarniðurstaða tveggja ára þar á undan þegar fyrrverandi meirihluti var við stjórn var jákvæð um 4.7 milljarða króna. Lítið hefur verið hagrætt í kerfinu, þvert á móti eykst kostnaður en rekstargjöld aukast. Ekki sjást merki um átak í hagræðingu sem meirihlutinn stefndi að við upphaf kjörtímabilsins. Hinsvegar hefur meirihlutinn hækkað skatta og gjöld en skattheimta var 2,1 milljarði hærri árið 2012 en upphaflega fjarhagsáætlunin gerði ráð fyrir. Það er auðvelt að stjórna með því að taka fé af fjölskyldum og fyrirtækjum í borginni. Skynsamlegra, sanngjarnara og farsælla hefði þó verið að nýta það svigrúm til að hagræða í kerfinu og auðvelda almenningi að takast á við erfiða tíma.

2. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra um að veita Orkuveitu Reykjavíkur heimild til að gera tvíþættan samning við alþjóðlega fjárfestingarbankann Goldmann Sachs:

Lagt er til að Orkuveitu Reykjavíkur verði veitt heimild til að gera tvíþættan samning við alþjóðlega fjárfestingarbankann Goldmann Sachs sem annars vegar felur í sér um 25 milljóna USD lán til 18 mánaða og hins vegar heimild að gera við sama banka vaxtaskiptasamninga í mismunandi erlendum myntum að andvirði allt að 500 milljón EUR til 56 mánaða.

Greinargerð fylgir tillögunni.

Samþykkt með 10 atkvæðum.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Fundi slitið kl. 16.09

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Elsa Hrafnhildur Yeoman

Karl Sigurðsson Gísli Marteinn Baldursson

PDF útgáfa fundargerðar
Borgarstjórn 30.04.13