Borgarráð - Fundur nr. 5670

Borgarráð

Ár 2022, fimmtudaginn 21. júlí, var haldinn 5670. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Elín Björk Jónasdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Dóra Björt Guðjónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson, Ebba Schram og Hulda Hólmkelsdóttir.
Fundarritari var Bjarni Þóroddsson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 18. júlí 2022, þar sem óskað er eftir því að borgarráð samþykki viðauka á samkomulagi um uppbyggingu á lóðinni Snorrabraut 54, ásamt fylgiskjölum. MSS22060222
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er kynnt íbúðauppbygging, en fáar íbúðir munu koma til með að henta þeim sem þurfa á leiguíbúð að halda. Einungis tvær íbúðir koma til með að fara til Félagsbústaða og samtals átta íbúðir skulu vera leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða hf., búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða. Sósíalistar ítreka mikilvægi þess að borgin komi sjálf að heimilisuppbyggingu líkt og á við í öðrum borgum með það að markmiði að útvega borgarbúum góðar íbúðir á viðráðanlegu verði.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fram kemur í viðauka að komi til uppbyggingar íbúða sbr. 3. gr. samkomulags, dags. 9. febrúar 2018, samþykkir Snorrabragur ehf. að Félagsbústaðir hf. hafi kauprétt á tveimur íbúðum í húsum á lóðinni í samræmi við samningsmarkmið Reykjavíkurborgar. Flokkur fólksins hefur lagt það til að samningsmarkmið Reykjavíkurborgar verði endurskoðað og að hlutfall íbúða sem kemur í hlut Félagsbústaða verði aukið. Það getur reynst vandkvæðum bundið ef Félagsbústaðir eiga aðeins lítið hlutfall íbúða ef upp koma vandamál í húsinu. Þá hefur atkvæði Félagsbústaða lítið vægi. Þetta hefur gerst t.d. í Ljósheimum 20 þar sem kona í hjólastól sem býr á 8 hæð getur ekki komist út úr húsi því hún getur ekki opnað lyftuna vegna þyngsla lyftuhurðarinnar. Húsfélagið neitar að fjárfesta í sjálfvirkum hurðaopnara og lyftufyrirtækið telur sig ekki ábyrgt eftir því sem Flokkur fólksins kemst næst. Konan hefur ekki komist út úr íbúð sinni á eigin spýtur í tvö ár. Vegna þess að Félagsbústaðir eiga aðeins tvær íbúðir í húsinu hefur fyrirtækið ekkert vægi í húsfélaginu.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 18. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka við kaupsamning vegna lóða á Gufunesi. MSS22070077
    Frestað.

  3. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritari, dags. 18. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki viðauka við kaupsamning vegna Gufunesvegar 34 og Þengilsbáss 1, ásamt fylgiskjölum. MSS22070086
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að samþykkja mál sem hefur verið erfitt og sorglegt mál. Um er að ræða Þengilsbás 1 og Gufunesveg 34, Loftkastalamálið. Á eigendum hefur Reykjavíkurborg brotið og dregið fólkið á asnaeyrum í þrjú ár, látið sem verið sé að vinna í þessu en ekkert hefur gerst í þeim efnum. Nú er þess vænst að Reykjavíkurborg sjái sóma sinn í að viðurkenna mistök sín í þessu máli og ná lendingu við eigendur sem þeir geta sætt sig við eftir þriggja ára þrautagöngu. Mistökin fólust í að borgin útfærði ekki í deiliskipulagi það sem þó ber að gera skv. skipulagsreglugerð, afstöðu gatna og jarðvegs við gólfhæð 1. hæðar húsa miðað við hæð landslags á lóðum. Þetta er ákveðið og gert án vitundar aðila. Eigendur hafa ekki getað nýtt byggingarréttinn vegna mistakanna. Ennþá er ekki ljóst af hverju lóðin er ekki tilbúin og ekki liggur fyrir hvað Reykjavíkurborg hyggst gera til að leiðrétta þessi mistök. En fyrst er að viðurkenna mistökin og sýna hógværð og lítillæti gagnvart eigendum sem keyptu byggingarréttinn í ákveðnum tilgangi, fullir af trausti til borgaryfirvalda. Ljóst er að þessi mistök þarf að leiðrétta og ljúka málinu á þann veg að eigendur geti við unað. Vonandi ber Reykjavíkurborg gæfa til þess.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. júlí 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að menningar- og ferðamálasvið og íþrótta- og tómstundasvið verði sameinuð í eitt svið undir stjórn eins sviðsstjóra og miðað við að breytingin taki gildi 1. janúar 2023. Vinnuheiti sameiginlegs sviðs er menningar-, íþrótta og tómstundasvið. Markmiðið með sameiningunni er að styrkja málaflokka menningar, íþrótta og skipulagðra tómstunda af fjölbreyttu tagi með því að nýta samlegð í innviðum og miðlægri stjórnsýslu ásamt því að kortleggja sameiginleg sóknarfæri til framtíðar. Skipaður verði starfshópur embættismanna sem heldur utan um verkefnið. Rík áhersla verður lögð á samráð í ferlinu m.a. við stjórnendur og starfsfólk sviðanna. Rýnd verður í sóknarfæri sem felast í sameiningu sviðanna, farið í fjárhagslega greiningu, gerð tillaga að nýju skipuriti og innleiðingaráætlun. Tillögur starfshópsins verði lagðar fyrir borgarráð til staðfestingar.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070114
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrir um fjórum árum voru menningar- og ferðamálaráð og íþrótta- og tómstundaráð sameinuð í menningar-, íþrótta og tómstundaráð. Það hefur gefist afar vel. Hér er verið að taka næsta skref sem gengur út á að sameina sviðin tvö undir forystu eins sviðsstjóra. Skipaður verður starfshópur embættisfólks sem heldur utan um verkefnið. Rík áhersla verður lögð á samráð í ferlinu m.a. við stjórnendur og starfsfólk sviðanna. Rýnd verða sóknarfæri sem felast í sameiningu sviðanna, farið í fjárhagslega greiningu, gerð tillaga að nýju skipuriti ásamt innleiðingaráætlun. Tillögur starfshópsins verði lagðar fyrir borgarráð til staðfestingar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja mikilvægt að unnið verði að skipulagsbreytingum og hagræðingu í rekstri borgarinnar. Hér er hins vegar um að ræða umfangsmikla skipulagsbreytingu án þess að fyrir liggi greining á því hvort breytingunni muni fylgja hagræðing. Mun betur hefði farið á því að framkvæma greiningu á faglegum og rekstrarlegum ávinningi af sameiningunni, áður en ákvörðun yrði tekin um framkvæmd sameiningar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks harma að ábendingum þeirra um vandaðri feril við sameininguna hafi verið tekið fálega af fulltrúum meirihlutans. Jafnframt er óeðlilegt að svo stór skipulagsbreyting fái ekki umræðu fyrir opnum tjöldum í borgarstjórn. Hér birtast óvönduð vinnubrögð og dæmigert virðingarleysi fyrir ráðstöfun almannafjár innan borgarkerfisins.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér eru reyndar um frekar ólík svið að ræða en vissulega má finna sameiginlega fleti. Ef þetta verður til þess að ná hagkvæmni og skilvirkni er Flokkur fólksins sáttur við sameininguna. Markmiðið með sameiningunni er að styrkja málaflokka menningar, íþrótta og skipulagðra tómstunda af fjölbreyttu tagi með því að nýta samlegð í innviðum og miðlægri stjórnsýslu ásamt því að kortleggja sameiginleg sóknarfæri til framtíðar eins og segir í skilgreiningu. Ekki er nú líklegt að sameiningin styrki málaflokkanna neitt sérstaklega að mati Flokks fólksins ef horft er til fyrri skipunar þar sem hvor málaflokkur hafði sitt eigið ráð. Skipa á starfshóp embættismanna sem heldur utan um verkefnið. Spyrja má af hverju hópurinn er aðeins skipaður embættismönnum og hvort einhver aukakostnaður fylgi vinnu hópsins. Flokkur fólksins mun leggja fram formlega fyrirspurn um þessi atriði.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram beiðni Regínu Ásvaldsdóttur, dags. 11. júlí 2022, um lausn frá störfum sem sviðsstjóri velferðarsviðs. MSS22070111
    Samþykkt.

    Borgarráð leggur fram svohjóðandi bókun ásamt áheyrnarfulltrúum:

    Fráfarandi sviðsstjóra velferðarsviðs er þakkað innilega fyrir framúrskarandi vel unnin störf fyrir borgina á undanförnum áratugum um allt borgarkerfi. Um leið er Regínu óskað velfarnaðar í starfi bæjarstjóra Mosfellsbæjar.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram trúnaðarmerkt mánaðarlegt rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar, janúar-maí 2022, dags. 18. janúar 2022. FAS22060027

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

  7. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 18. júlí 2022, um viðauka við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2022, ásamt greinargerð. FAS22010035
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Fylgigögn

  8. Fram fer kynning á áformum um stofnun Carbfix hf. MSS22030202

    Edda Sif Pind Aradóttir, Elín Smáradóttir og Bjarni Bjarnason taka sæti á fundinum undir þessum lið.
    Matthew Ball, Mutlu Guner, Pablo Beltran, Bjarni Þórður Bjarnason, Stefán Þór Bjarnason, Hörður Hilmarsson, Stefanía Sch. Thorsteinsson og Halldóra Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgarráð ásamt áheyrnarfulltrúum leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráð samþykkir að tilnefna fimm fulltrúa úr borgarráði til starfa í sérstakan rýnihóp. Til stuðnings og ráðgjafar verða borgarlögmaður, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs ásamt framkvæmdastjóra Carbfix. Rýnihópnum er falið að gera umsögn til borgarráðs um tillögu að stofnun Carbfix hf.

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. júlí 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að auglýsingu um starf sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs, hjálögð drög að erindisbréfi um skipan ráðgefandi hæfnisnefndar vegna ráðningar í starf sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs, auk hjálagðra draga að áætlun um ráðningarferil vegna starfs sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070113
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ótímabært er að auglýsa starf sviðsstjóra nú þegar ekki hefur verið framkvæmd greining á faglegum og rekstrarlegum ávinningi af sameiningunni. Jafnframt hefði farið betur á því að ljúka umræðu í borgarstjórn áður en lengra er haldið.

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. júlí 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að auglýsingu um starf sviðsstjóra velferðarsviðs, hjálögð drög að erindisbréfi um skipan ráðgefandi hæfnisnefndar vegna ráðningar í starf sviðsstjóra velverðarsviðs, auk hjálagðra draga að áætlun um ráðningarferil vegna starfs sviðsstjóra velferðarsviðs.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070110
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  11. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. júlí 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að d. liður umfjöllunar í greinargerð með tillögu sem samþykkt var á fundi borgarráðs 10. mars 2022 um að kjósa nefnd þriggja óháðra sérfræðinga sem hafi það verkefni að gera heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld verði breytt til samræmis við 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. nýsamþykktra laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa með eftirfarandi hætti: d. Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggustofanna og nefndin telur þarfnast skoðunar, þar á meðal eins og kostur er, afdrifum þeirra barna sem vistuð voru á vöggustofunum eftir að dvölinni lauk.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070106
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða minniháttar orðalagsbreytingu sem samræmist betur nýsamþykktum lögum.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi sósíalista fagnar því að heildstæð athugun verði gerð á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins og ítrekar mikilvægi þess að unnið verði út frá öllum ábendingum Réttlætis, hópsins sem hefur barist fyrir rannsókn á starfsemi vöggustofa í Reykjavík.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. júlí 2022:

    Í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 10. mars 2022 um heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins, er lagt til við borgarráð að kosin verði nefnd þriggja óháðra sérfræðinga sem hafi það verkefni að gera heildstæða athugun á starfsemi vöggustofanna. Um sérstakt hæfi nefndarmanna fer eftir sömu reglum og koma fram í 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Nefndarmönnum er skylt að leggja fram skrá um hagsmunatengsl sín, sbr. reglur Reykjavíkurborgar um hagsmunaskráningu embættismanna. Lagt er til að nefndina skipi Kjartan Björgvinsson héraðsdómari sem yrði formaður, Urður Njarðvík prófessor í barnasálfræði og fyrrverandi deildarforseti Sálfræðideildar HÍ og Ellý Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi. Starfsmaður nefndarinnar verði Trausti Fannar Valsson lögfræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Nefndinni verður heimilt að kalla eftir aðstoð og upplýsingum frá aðilum innan og utan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar við einstaka þætti athugunarinnar.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070107
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að auglýsa að nýju eftir samstarfsaðilum um þróun og uppbyggingu Toppstöðvarinnar í Elliðaárdal.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22070006

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sölu á 2. hæð í Álfabakka 12, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22070024

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili afléttingu kvaða á Hafnarstræti 17-19, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22060045

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 18. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja nýtt söluferli vegna Grandagarðs 2 ásamt byggingarrétti, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22070025

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 18. júlí 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki samkomulag vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar við Barðastaði.
    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS22070026

    Fylgigögn

  18. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 19. júlí 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki fyrirhugaða stækkun á viðbyggingu fyrir verknámsaðstöðu við Fjölbrautarskólann í Breiðholti til viðbótar við það sem kveðið er á um í gildandi samningi milli borgarstjóra og mennta- og menningarmálaráðherra frá 30. apríl 2021. Jafnframt að borgarstjóra verði veitt umboð til að undirrita viðauka við fyrirliggjandi samning þess efnis. Samkvæmt gildandi samningi er hlutdeild kostnaðar Reykjavíkurborgar 40%. Áætlaður viðbótarkostnaður er um 135-140 mkr. og verður gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárfestingaráætlun næstu ára.

    Samþykkt.

    Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS22070034

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 15. júlí 2022, varðandi viðmið um hámarksfjölda reykvískra grunnskólanemenda sem heimilt er að greiða framlag vegna til sjálfstætt starfandi grunnskóla utan Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Kristján Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS22040100

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 4. júlí 2022, varðandi rekstrarleyfi fyrir leikskólann Öskju, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Kristján Gunnarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum. SFS22060161

    Fylgigögn

  21. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 18. júlí 2022, um málarferli sem borgin á aðild að fyrir dómstólum. MSS22010246

  22. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 13. júlí 2022, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað Reykjavíkurborgar vegna borgarlínu, sbr. 69. lið fundargerðar borgarráðs frá 31. mars 2022. MSS22030288

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins spurði um kostnað Reykjavíkur við borgarlínuverkefnið. Reykjavík hefur nú þegar greitt rúmlega 1,7 milljarð í borgarlínu. Í svari segir að ef tekið er mið af íbúafjölda þann 1. desember 2021 er hlutur Reykjavíkurborgar í þeirri fjárhæð 8,46 ma.kr. eða 56,4%. Segir enn fremur í svari að ekki sé fyrirsjáanlegt að borgarlína bæti samgöngur á næstu árum því verkefninu er frestað nú um eitt ár og frekari frestanir eru líklegar. Flokkur fólksins vill benda á að 8,46 milljarðar í borgarlínuverkefnið er ekki lítil upphæð þótt það slái ekki við útgjöldum vegna stafrænna tilrauna og uppgötvunarvinnu en nú þegar hafa 13 milljarðar farið í stafræna umbreytingu og hvergi er lát á enda þótt fáar stafrænar lausnir séu komnar í virkni og farnar að skila sér til borgarbúa að heitið geti. Það kom sennilega fæstum á óvart að borgarlínuverkefnið standi ekki undir væntingum hvað tímalínu varðar. Skipulagsyfirvöldum í borginni þykir þessi seinkun „hundleiðinleg“ eins og það er orðað og þar við látið sitja. Flokkur fólksins telur óvissuþætti þessa verkefnis marga og eftir því sem tíminn líður verði þeir jafnvel fleiri. Ekki tókst að leggja af stað með raunhæfar áætlanir sem lofar ekki góðu og er ekki beinlínis til að auka tiltrú á verkefnið sem hefur verið afar umdeilt frá byrjun.

    Fylgigögn

  23. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 7. og 14. júlí 2022. MSS22010006

    Áheyrnarfulltrúí Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 1. lið fundargerðarinnar frá 14. júlí 2022:

    Undir þessum lið er lagt til við innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að lægsta gilda tilboði sem er frá KPMG að fjárhæð kr. 15.587.400 Enn og aftur kemur fram að þegar fjallað er um stafræna tækni er alltaf um himinháar upphæðir að ræða. Verðskynjun verður kannski lítil við slíkar aðstæður. Ráðgjafafyrirtæki stýra orðið þessum málum í borginni eftir því sem næst er komist þar á meðal fjármálum og starfsmannamálum. Flokkur fólksins veltir því upp hvort verið sé að reka þennan málaflokk í borginni á sem hagkvæmasta hátt og af skynsemi.

    Fylgigögn

  24. Lögð fram fundargerð stafræns ráðs frá 29. júní 2022. MSS22070108

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur lengi gagnrýnt forgangsröðun og verklag þjónustu- og nýsköpunarsviðs í stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar. Bent hefur verið á mörg atriði sem ekki virðast hafa verið í takti við nútímakröfur um árangursstjórnun. Háum fjárhæðum hefur verið sóað í botnlausar uppgötvanir og tilraunir sem ekki hafa skilað þeim árangri sem lagt var upp með. Þrátt fyrir metnaðarfullar glærukynningar þar sem öllu virðist tjaldað til í glæsileika er ekki til að dreifa í sama mæli nothæfum afurðum eða lausnum sem gætu liðkað fyrir þjónustu eða létt undir með starfsfólki. Dæmi um þetta er að finna í niðurstöðum könnunar á vegum Borgarskjalasafns. Þar segir: „Niðurstöður könnunarinnar sýna að enn er skjalastjórn stofnana og starfseininga Reykjavíkurborgar ábótavant og litlar breytingar hafa orðið til batnaðar frá síðustu könnun árið 2017.“ Flokki fólksins finnst það undarlegt að mikilvægir þættir eins og bætt skjalastjórnun skuli ekki vera lengra á veg komin en raun ber vitni. Vísað er aftur í glærukynningar þar sem ekki voru spöruð stór lýsingarorð á verkefnum nýstofnaðrar Gagnaþjónustu sviðsins. Það er með öllu óásættanlegt að meirihlutinn í Reykjavík skuli ekki gera meiri kröfur um virka árangursstjórnun og raunhæfa forgangsröðun þjónustu og nýsköpunarsviðs en raun ber vitni.

    Fylgigögn

  25. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 27. júní 2022. MSS22010017

    Borgarráðsfulltrúar Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Í þriðja lið fundargerðar er fjallað um launahækkun forstjóra, þar er fjallað um tillögu starfskjaranefndar dags. 13. júní 2022, um að laun forstjóra hækki um 5,5% frá 1. janúar 2022 að telja. Tillögunni fylgir greinargerð og minnisblað starfskjaranefndar. Tillagan var samþykkt. Laun forstjóra OR eru vel yfir 3 milljónum. Á meðan að manneskjur á lágmarkslaunum og undir því eiga ekki fyrir mat út mánuðinn er verið að hækka laun forstjóra sem er á ofurlaunum. Það er ljóst að launastefna borgarinnar og fyrirtækja í eigu hennar er í engu takti við veruleikann, þar sem launabilið á milli þeirra hæst launuðu og lægst launuðu er gríðarlegt í því stéttskipta samfélagi sem við búum í.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar:

    Flokkur fólksins hefur áður bókað um laun forstjóra. Hér er lögð fram tillaga starfskjaranefndar, dags. 13. júní 2022 um að laun forstjóra hækki um 5,5% frá 1. janúar 2022 að telja. Athyglisvert er að í sömu fundargerð sé fjallað um hækkun launa forstjóra afturvirkt og bætur vegna ólögmætra uppsagna. Flokkur fólksins finnst þessi laun vera út úr öllu korti. Allir vita hvaða ástand ríkir nú í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið eins há síðan fyrir hrun. Þurfa ekki forstjórar að axla einhverja ábyrgð eða eru þeir undanþegnir ábyrgð sem öðrum er gert að axla? Það er ekkert lögmál að forstjórar eigi að vera á ofurlaunum. Rökin fyrir svo háum launum forstjóra eru oft á þá leið að þeir séu að standa sig svo vel í starfi. Þetta eru undarleg rök, eins og það sé ekki beinlínis sjálfgefið að forstjóri standi sig vel. Forstjórar orkufyrirtækja eru sárafáir en þeir eru í höfrungahlaupi hver við annan og hækka á víxl í launum.

    Fylgigögn

  26. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 12 mál. MSS22070004

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun undir 12. lið yfirlitsins:

    Samkeppniseftirlitið hefur beint tilmælum til Hörpu tónlistarhúss sem miða að því að skapa samkeppnisvæna umgjörð um starfsemi Hörpu. Að mati Samkeppniseftirlitsins eru sterkar líkur á því að Harpa sé með þeirri þjónustu sem felst í starfsemi tónlistarhússins í markaðsráðandi stöðu hér á landi sem aðstöðuveitandi fyrir fjölbreytt tónleikahald innandyra þar sem hátt í tvö þúsund manns geta fengið sæti hverju sinni. Styrkir það enn fremur stöðu Hörpu að félagið er opinber aðili í eigu íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar. Er það því mat Samkeppniseftirlitsins að Harpa geti talist með einstaka yfirburði á þessu sviði og að ríkar skyldur hvíli á félaginu að raska ekki samkeppni á tengdum mörkuðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að Harpa bregðist við tilmælum Samkeppniseftirlitsins, þ.e. að birta verklagsreglur um hvernig fyrirtækið beitir útboðum og verðkönnunum í starfsemi sinni og að endurskoða verklag og reglur svo viðskiptavinum verði heimilað að leigja og nýta tækjabúnað frá öðrum aðilum en Hörpu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 11. lið yfirlitsins:

    Foreldrar í Leikni hafa lengi vonast til að börnin geti æft inni á veturna í Austurberginu þar sem Fellaskóli, núverandi innanhúsaðstaða er ekki nægilega oft laus. Æfingar eru oft seint og er aðstaðan ekki eins góð og í Austurbergi. Afar brýnt er að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir börn í Efra- Breiðholti. Flokkur fólksins hefur áður látið sig málefni Leiknis varða sem er lítið félag sem berst í bökkum í hverfi sem er mannmargt og þar sem býr einn mesti fjölbreytileiki mannlífs. Í þessu hverfi eru innflytjendur hlutfallslega flestir og í þessu hverfi er frístundakortið því miður langminnst nýtt. Hér er tækifæri til að gera vel við Leikni í þágu barna í Efra-Breiðholti. Leiknir á litla von á að stækka ef ekki er aðstaða til að reyna það. Félagið á undir högg að sækja vegna slakra innviða og báglegrar aðstöðu. Undirskriftarlisti foreldra var afhentur borgarstjóra rétt fyrir kosningar. Fulltrúi Flokks fólksins vill minna borgarstjóra á þennan lista og hvetja meirihlutann til að taka þetta skref til að bæta ástundun og upplifun barna í Efra-Breiðholti. Það er afar brýnt að Leiknir fái tækifæri til að útvíkka starfsemi sína og bæta við íþróttagrein en þar er fyrir aðeins knattspyrna og blak.

    Fylgigögn

  27. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22070009

    Fylgigögn

  28. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:

    Þann 1. júní tók ný gjaldskrá við hjá landsbyggðarvögnum Strætó. Reykjavík er með fulltrúa í stjórninni. Hver voru rökin fyrir því að hækka gjöldin á öryrkja og aldraða úr 155 kr. upp í 245 kr? Það skýtur skökku við að farið sé í gjaldskrárhækkanir á þessa hópa frekar en þá sem borga almenn fargjöld. Því er spurt um rökin á bak við að hækka gjöldin fyrst á öryrkja frekar en aðra hópa, fyrst farið var í hækkanir á annað borð. MSS22070135

    Vísað til umsagnar stjórnar Strætó bs.

  29. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Flokkur fólksins leggur til að leitað verði leiða til að bjóða eldri borgurum upp á sveigjanlegri vinnulok. Tillagan nær til allra eldri borgara sem starfa á vegum Reykjavíkurborgar en nú er fólki gert að hætta störfum við sjötugsaldur hvort sem því líka það betur eða verr. Þessi tillaga hefur áður verið lögð fram af Flokki fólksins en ekki fengið skoðun heldur verið svarað með því að einhver hópur sé að skoða málið. Af þeim hópi hefur ekkert frést. Lengi hefur það gilt að opinberir starfsmenn láti af störfum sjötugir að aldri, sama á hvaða sviði þeir eru. Reykjavíkurborg getur tekið ákvörðun um sveigjanleg starfslok sé áhugi fyrir því. Hér er um pólitíska ákvörðun að ræða. Ýmist gæti viðkomandi haldið áfram vinnu á starfssamning sínum eða gert nýjan. Eðlilegt er að þeir sem starfa eftir sjötugt haldi sínum kjörum/njóti sömu kjara og þeir sem eru yngri. Það eru mannréttindi að geta tekið ákvarðanir um atvinnumál sín. Það hlýtur að vera réttur hvers og eins án tillits til hvort mannekla ríki í ákveðnum störfum eða hjá ákveðnum stéttum. Missir er fyrir samfélagið að sjá á eftir því fólki af vinnumarkaði fyrir þær einar sakir að ná sjötugsaldri. Um er að ræða dýrmætan mannauð.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070131
    Vísað til umsagnar mannauðs- og starfsumhverfissviðs.

  30. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Flokkur fólksins leggur til að minnisblað borgarlögmanns þar sem fram kemur sú niðurstaða að borgarlögmaður telur að Bílastæðasjóði hafi verið óheimilt að taka gjald af handhöfum P-korta verði gert opinbert almenningi. Flokkur fólksins gerir sér grein fyrir að efni minnisblaðsins er viðkvæmt fyrir meirihlutann enda eindæmi að borgarlögmaður taki stöðu gegn borgarmeirihlutanum. Flokkur fólksins krefst fulls gegnsæis eins og síðasti og þessi meirihluti boðar í sinni stefnu. Í skýringum frá borginni af hverju feluleikur ríkir í kringum umrætt minnisblað kemur fram að ekki hafi verið tekin afstaða af hálfu Reykjavíkurborgar hvort afhenda eigi minnisblaðið almenningi til skoðunar. Minnisblaðið hefur um tíma verið í umferð fjölmiðla sem fjallað hafa um efni þess en almenningi er ekki ætlað að sjá það. Það er sérkennilegt. Ekki þarf að hafa öflugt ímyndunarafl til að koma niður á skýringu af hverju Reykjavíkurborg vilji að sem minnst fari fyrir þessu minnisblaði. Verið er að taka gjald af öryrkjum með stæðiskort þegar ekki á að gera það. Hér er um skattheimtu að ræða, búið er að takmarka þau réttindi sem handhafar stæðiskorta njóta. Flokkur fólksins hefur lagt fram fyrirspurnir um málið og má bæta við einni spurningu í viðbót, hún er hvort Reykjavíkurborg ætli ekki að taka mark á borgarlögmanni?

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22070132
    Vísað til umsagnar borgarlögmanns.

  31. Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnafulltrúa Flokks fólksins:

    Flokkur fólksins leggur til að gamli kvennaklefinn í Sundhöll Reykjavíkur sem nú hefur verið gerður upp standi konum sem sækja Sundhöllina til boða allan opnunartíma Sundhallarinnar eins og rými leyfir en ekki aðeins hálfan daginn. Flokkur fólksins barðist allt síðasta kjörtímabil fyrir því að konur fengju, eins og karlar, aftur gamla búningsklefann sinn í aðalbyggingu Sundhallar Reykjavíkur að endurgerð lokinni. Rík áhersla var lögð á þetta ekki síst vegna þess að óvenju langur spölur utandyra er frá hinum nýju klefum og út í laug. Konur og stúlkum í skólasundi hefur verið gert að ganga þennan veg í hvaða veðri sem er í blautum sundfötum. Þessari kröfu Flokks fólksins í formi tillögu var hafnað. Undir lok síðasta kjörtímabils eftir að málið hafði verið ítrekað reifað og um það skrifað í fjölmiðlum var opnað fyrir aðgang að búningsklefum kvenna en aðeins hálfan daginn. Þetta nær engri átt. Þær konur sem óska eftir að nota gömlu endurgerðu búningsklefana eiga að hafa aðgang að honum þann tíma sem Sundhöll Reykjavíkur er opin. Annað er mismunum og ósanngirni. Körlum var aldrei úthýst úr gömlu búningsklefunum og hafa aldrei þurft að berjast fyrir neinu sambærilegu og þessu. Flokkur fólksins telur að hér sé verið að mismuna kynjum. MSS22070133

    Vísað til meðferðar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs.

  32. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins.

    Flokkur fólksins hefur oft lagt fram fyrirspurnir um moltu og metan sem sendar hafa verið til SORPU til þess að fá svör. Svör hafa hins vegar borist seint ef þá nokkuð. 10. júní 2022 lagði Flokkur fólksins fram fyrirspurn um kaup á sorphirðubifreiðum og hvort skoðað hafi verið að kaupa metanbifreiðir. Engin svör hafa borist. Fram kemur hjá framkvæmdarstjóra SORPU í fjölmiðlum að metan sé notað til að knýja bíla á höfuðborgarsvæðinu og bíla í iðnaði. Flokkur fólksins spyr í hvað miklum mæli þetta er en talað er eins og þetta sé í miklum mæli. Sannarlega er ekkert lát á metanframleiðslunni en er það rétt að hún sé öll seld eins og fyrrum stjórnarformaður fullyrti fyrir kosningar? Fráfarandi stjórnarformaður SORPU fullyrti einnig í borgarstjórn að aldrei hafi staði til að selja moltu. Í viðtali við stjórnenda SORPU í Morgunblaðinu 21. júlí er hins vegar fullyrt að sala moltu muni gefa SORPU verulegar tekjur. Hvor fullyrðingin er rétt? Spurt er jafnframt um af hverju ekki komi ákall frá SORPU um að afhendingarstöðum fyrir metan á bíla á höfuðborgarsvæðinu verði fjölgað, en þær eru aðeins 7. Enda þótt þetta sé ekki á forræði SORPU, getur SORPU beitt sér af krafti. MSS22070134

    Vísað til umsagnar SORPU bs.

  33. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:

    Flokkur fólksins óskar upplýsinga um kostnaðarhagræðingu vegna sameiningar menningar- og ferðamálasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs. Einnig er spurt um hvort einhver annar aukakostnaður tengist þessari sameiningu og ef svo er hver hann er og hvernig til kominn. MSS22070137

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

Fundi slitið klukkan 12:12

Einar Þorsteinsson Heiða Björg Hilmisdóttir

Dóra Björt Guðjónsdóttir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Hildur Björnsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_2107.pdf