Borgarráð - Fundur nr. 5666

Borgarráð

Ár 2022, föstudaginn 10. júní, var haldinn aukafundur borgarráðs nr. 5666. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:10. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem, Heiða Björg Hilmisdóttir, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kolbrún Baldursdóttir og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Pétur Ólafsson, Þorsteinn Gunnarsson og Ívar Vincent Smárason.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2022, um kosningu sjö borgarráðsfulltrúa og sjö til vara á fundi borgarstjórnar þann 7. júní 2022. Einar Þorsteinsson var kjörinn formaður borgarráðs. Jafnframt er lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 8. júní 2022, þar sem tilkynnt er um áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins og Vinstri grænna. MSS22060043

    Lagt er til að Heiða Björg Hilmisdóttir verði varaformaður borgarráðs.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf formanns borgarráðs, dags. 9. júní 2022, þar sem lögð er fram tillaga að fundadagatali borgarráðs tímabilið júní-desember 2022, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. MSS22060038

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. maí 2022, sbr. samþykkt umhverfis- og heilbrigðisráðs frá 18. maí 2022 á hækkun tímakaups í vinnuskólanum sumarið 2022, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 7. júní 2022. USK22050050
    Samþykkt.

    Guðmundur B. Friðriksson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.  

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi sósíalista styður hækkun á launataxta en telur þessa hækkun of litla.

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er ánægjulegt að laun nemenda í vinnuskólanum séu að hækka aftur enda var það löngu orðið tímabært að leiðrétta kjör þeirra en það var gert í formannstíð Vinstri grænna í umhverfis- og heilbrigðisráði árið 2021. Framvegis þarf að gæta þess að tengja laun þeirra ákveðnum fasta launa svo þau fylgi öðrum hækkunum og launavísitölu og eins þarf að gera ráð fyrir þessum hækkunum við gerð fjárhagsáætlunar og úthlutunarramma.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. júní 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við stækkun á nýjum leikskóla að Safamýri 5, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 450 m.kr. USK21120168
    Samþykkt.

    Ómar Einarsson, Ámundi Brynjólfsson og Ósk Soffía Valtýsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja að fara í útboð vegna framkvæmda við stækkun á nýjum leikskóla við Safamýri. Verkefnið er hluti af Brúum bilið verkefninu sem gengur út á það að fjölga leikskólaplássum þannig að börn komist fyrr inn á leikskóla, þegar fæðingarorlofi sleppir.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að leikskólarýmum fjölgi í Reykjavík. Vegna þeirra starfshátta sem ríkt hafa í málaflokknum telja borgarfulltrúarnir einnig nauðsynlegt að árétta það að ljúka verður við byggingu og mönnun nýrra leikskóla og leikskóladeilda áður en börn eru innrituð svo fjölskyldum séu ekki boðin rými sem ekki reynist unnt að efna. Jafnframt vilja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir vonbrigðum sínum með að ekki hafi verið unnt að tryggja öllum tólf mánaða börnum pláss strax í haust líkt og lofað hafði verið.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 20 maí 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð veiti umhverfis- og skipulagssviði heimild til að efna til opinnar tveggja þrepa hönnunar- og framkvæmdasamkeppni um endurgerð Laugardalslaugar og tengdra mannvirkja samkvæmt meðfylgjandi drögum að forsögn/samkeppnislýsingu. Samkeppnin yrði haldin í samráði við Arkitektafélag Íslands. Skipuð verður dómnefnd sem semur samkeppnislýsingu, annast yfirferð tillagna og skilar niðurstöðum sínum til Reykjavíkurborgar. Áætlað er að niðurstaða dómnefndar geti legið fyrir um mitt ár 2023.

    Greinargerð fylgir tillögunni. MSS22050193
    Samþykkt.

    Ómar Einarsson, Ámundi Brynjólfsson og Ósk Soffía Valtýsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Laugardalslaug er drottning almenningssundlauga í Reykjavík. Hér er efnt til opinnar tveggja þrepa hönnunar- og framkvæmdasamkeppni um endurgerð laugarinnar og tengdra mannvirkja samkvæmt meðfylgjandi forsögn/samkeppnislýsingu sem byggir á víðtæku samráði við íbúa og sundlaugargesti.

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð veiti umhverfis- og skipulagssviði heimild til að efna til opinnar hönnunar- og framkvæmdasamkeppni um tíu deilda leikskóla auk miðstöðvar barna við Völvufell samkvæmt meðfylgjandi drögum að forsögn. Samkeppnin yrði haldin í samráði við Arkitektafélag Íslands. Skipuð verður dómnefnd sem semur samkeppnislýsingu, annast yfirferð tillagna og skilar niðurstöðum sínum til Reykjavíkurborgar. Áætlað er að niðurstaða dómnefndar geti legið fyrir fyrri hluta árs 2023. MSS22050192

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Ámundi Brynjólfsson, Ósk Soffía Valtýsdóttir, Ómar Einarsson og Helgi Grímsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða mjög mikilvæga og spennandi framkvæmd, en hér er verið að samþykkja að fara í opna hönnunar- og framkvæmdasamkeppni vegna nýs tíu deilda leikskóla í Völvufelli. Gert er ráð fyrir börnum frá tólf mánaða aldri til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólabyrjunar í samræmi við markmið stýrihópsins Brúum bilið, en eitt af áherslumálum hópsins er að fjölga leikskólaplássum víða í borginni. Þá hefur Fellahverfi ákveðna sérstöðu hvað varðar tungumál barna en rík áhersla verður á tungumál í skólanum með málörvun, máltöku, tvítyngi auk tónlistar. Í stærri leikskóla verður starfsemi sem áður fór fram í mörgum minni skólum safnað saman og þannig myndast grundvöllur til að mynda öflugra skólasamfélag, nemendum og hverfinu öllu til hagsbóta.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks undirstrika mikilvægi þess að leikskólarýmum fjölgi í Reykjavík. Vegna þeirra starfshátta sem ríkt hafa í málaflokknum telja borgarfulltrúarnir einnig nauðsynlegt að árétta það að ljúka verður við byggingu og mönnun nýrra leikskóla og leikskóladeilda áður en börn eru innrituð svo fjölskyldum séu ekki boðin rými sem ekki reynist unnt að efna. Jafnframt vilja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir vonbrigðum sínum með að ekki hafi verið unnt að tryggja öllum tólf mánaða börnum pláss strax í haust líkt og lofað hafði verið.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúa sósíalista finnst mikilvægt að foreldrar, skólasamfélagið og íbúar fái að koma að þessari hönnun. Þetta varðar ekki eingöngu innisvæði heldur einnig útisvæði, leikskvæði barnanna, og mikilvægt að fjölbreyttar raddir fái að koma að hönnunarferlinu frá upphafi.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Flokkur fólksins telur að spýta þurfi verulega í lófana til að fjölga leikskólarýmum. Verkefnið hefur gengið of hægt. Í haust er óttast að verði sami vandi og áður, að börn fá ekki inni í leikskóla með tilheyrandi streitu og angist foreldra. Það er miður að ekki hafi tekist að standa við loforð í þessum efnum.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 7. júní 2022, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Suðurlandsbraut 34/Ármúla 31, ásamt fylgiskjölum. MSS22040243
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ívar Örn Ívarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.  

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Margt fólk er í þörf fyrir húsnæði á viðráðanlegu verði. Sósíalistar telja að borgin eigi sjálf að byggja og tryggja að sú uppbygging sé á félagslegum forsendum. Vakin er athygli á því að aðilaskipti hafa átt stað á þessum reit oftar en einu sinni. Fyrir rúmum mánuði síðan var samþykkt í borgarráði að í stað Reita fasteignafélags hf., fyrir hönd Reita – iðnaðar ehf., og Reita – skrifstofa ehf., taki Orkureitur ehf. við réttindum og skyldum samkvæmt samkomulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni Suðurlandsbraut 34/Ármúla 31 í Reykjavík. Nú er lagt til að í stað Orkureits ehf. taki Safír byggingar ehf. við réttindum og skyldum samkvæmt samkomulagi vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni. Fulltrúi Sósíalista telur að skoða þurfi þetta nánar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgin ætlar að leggja allt að 20 milljónir í listskreytingar og aðrar 20 milljónir eiga að koma frá framkvæmdaaðilum. Flokkur fólksins veltir fyrir sér hvort það sé rétt stefna að byggja hús sem þykja kannski ekki mjög falleg og bæta það upp með rándýrri listskreytingu. Ætti áherslan ekki að vera á að byggja falleg hús og hafa umhverfið aðlaðandi frekar en að eyða háum upphæðum í dýrar húsaskreytingar? Borgin á að gera kröfur um að verktakar byggi falleg hús sem þá þarf ekki að skreyta sérstaklega. Þetta er kannski gott dæmi um áherslu meirihlutans, að nota fjármagn í að skreyta hús frekar en að taka á biðlistum. Um þessa forgangsröðun hefur fulltrúi Flokks fólksins oft rætt enda er hún kolröng. Setja á fólkið sjálft og þjónustu við það ofar á forgangslista en skreytingu húsa eða torga ef því er að skipta.

    Fylgigögn

  8. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2022, ásamt fylgiskjölum.

    Lagt er til að borgarráð staðfesti hjálagt erindisbréf vegna uppbyggingar þjóðarhallar í innanhússíþróttum þar sem ríkið og Reykjavíkurborg skipa sameiginlega framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir, framkvæmdanefnd og ráðgjafaráð. MSS22050013

    Samþykkt.  

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir er umfangsmikið samstarfsverkefni borgar og ríkis. Hér er verið að samþykkja að skipa sameiginlega framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarleikvangs fyrir innanhússíþróttir, framkvæmdanefnd og ráðgjafaráð. Þjóðarhöll mun uppfylla kröfur fyrir alþjóðlegar keppnir í innanhússíþróttagreinum en mun einnig mæta þörfum Reykjavíkurborgar fyrir aðstöðu fyrir skóla og íþróttafélög í hverfinu.

    Fylgigögn

  9. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 8. júní 2022, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að tilnefna Guðbjörgu Lilju Erlendsdóttur samgöngustjóra sem fulltrúa Reykjavíkurborgar í verkefnahóp um undirbúning Sundabrautar með vísan í hjálagt bréf frá innviðaráðuneytinu, dags. 8. júní 2022. MSS22010327

    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ef markmiðið er samráð þá verður að gera úttekt á því hvað íbúum finnst um að sett verði á veggjöld. Í kjölfarið skal taka þau sjónarmið inn í vinnuna.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf menningar- og ferðamálasviðs, dags. 7. júní 2022, varðandi val á borgarlistamanni Reykjavíkur 2022. Trúnaður ríkir um efni bréfsins fram að útnefningu þann 17. júní 2022. MOF22060001

    Huld Ingimarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.  

  11. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 7. júní 2022, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 25. maí 2022 á tillögu um viðbrögð við aukinni ásókn í neyðar- og gistiskýli fyrir karlmenn, ásamt fylgiskjölum. VEL22050031
    Samþykkt.

    Regína Ásvaldsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.  

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Samkvæmt samþykktri stefnu borgarinnar í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir 2019-2025 var sett fram það markmið að öllum sem þyrftu skyldi bjóðast að gista innanhúss. Til að það sé unnt núna þarf að fjölga á vakt en á sama tíma horfa til þróunar fleiri úrræða fyrir þennan jaðarsetta hóp fólks.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga er lögð fram af meirihlutanum að samþykkt verði heimild til að ráða í 6,4 stöðugildi til að bæta þriðja starfsmanni á vaktir í neyðarskýlum borgarinnar að Grandagarði 1a og Lindargötu 48, vegna aukinnar aðsóknar í skýlin. Þetta er góð tillaga. Flokkur fólksins hefði einnig viljað sjá breytingar á opnunartíma þessara skýla þannig að þau yrðu opin allan sólarhringinn en skýlin loka yfir daginn. Vonandi kemur fljótlega ákvörðun um það hjá nýjum meirihluta sem nú hefur tekið við. Sumt fólk hefur engan annan samastað, annan en kannski götuna. Endurskoða þarf þessi mál í heild sinni.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 7. júní 2022, sbr. samþykkt velferðarráðs á tillögu um breytingu á forvarnarsjóði Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum. VEL22040063
    Samþykkt.

    Regína Ásvaldsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.  

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Sjóðurinn hefur þjónað því hlutverki að styrkja forvarnarstarf fyrir börn og unglinga. Með þessari breytingu er hlutverk og tilgangur sjóðsins betur afmörkuð. Reykjavíkurborg leggur áherslu á verkefnið Betri borg fyrir börn og mun sjóðurinn styðja við forvarnir þar sem megináhersla verði á snemmtæka íhlutun og að vinna strax með áföll í æsku svo unnt verði að draga sem mest úr og jafnvel koma í veg fyrir aukna geðheilsubresti á fullorðinsárum.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Meirihluti velferðarráðs leggur til að forvarnarsjóður Reykjavíkurborgar verði hýstur undir formerkjum verkefnisins betri borg fyrir börn. Þetta er lagt til í ljósi þess að margar rannsóknir sýna tengsl erfiðleika í æsku og geðheilsubrests. Í tillögunni eru tekin dæmi um áhrifabreytu eins og snemmtæka íhlutun og mikilvægi þess að tryggja gott aðgengi að faglegri greiningu og ráðgjöf við börn sem glíma við erfiðleika. Fulltrúi Flokks fólksins vill leggja áherslu á að snemmtæk íhlutun (ráðgjöf, skimanir og greining sé það mat fagaðila og foreldra að sé nauðsynlegt) getur skipt sköpum í lífi barns um að valið sé fyrir það rétt úrræði og það fái aðstoð við hæfi. Og einmitt vegna þess er óásættanlegt að biðlisti barna til fagaðila skóla sé í sögulegu hámarki. Nú er tveggja ára bið í þroskamat hjá skólasálfræðingi hjá borginni sem dæmi, í það sem kallast frumgreining. Liggi ekki fyrir slík greining er oft rennt algjörlega blint í sjóinn með réttu viðbrögðin og úrræðin fyrir barnið. Tugir barna sem sterkar vísbendingar eru um að glími við ADHD eru á þessum biðlista. Dæmi eru um að börn séu útskrifuð þegar röðin kemur að þeim. Ekki þarf að spyrja um afleiðingarnar. Biðlisti barna eftir fagþjónustu skóla er nú 2011.

    Fylgigögn

  13. Lagður fram dómur Landsréttar í máli nr. 619/2020. MSS21120212

  14. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-3561/2021. MSS22050210

  15. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-3505/2021. MSS22060009

  16. Lagður fram dómur Hæstaréttar í máli nr. 3/2022. MSS22010219

  17. Fram fer kynning á ákvörðun Persónuverndar í máli nr. 2021040879. MSS21120270

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Persónuvernd er gífurlega mikilvæg og alveg sérstaklega þegar kemur að börnum. Um leið og það er mikilvægt að finna leiðir til að halda í verndun persónuupplýsinga þurfa sveitarfélög og skólar að geta nýtt nýsköpun og tækniþróun til að bæta menntun og koma upplýsingum betur til nemenda, í takt við faglega uppbyggingu nútímanáms. Það er heldur ekki hægt að hafna öllum tækjum öðrum en blaði og penna ef við ætlum að halda í við þróun í skólamálum í heiminum.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn hafa ákveðið að verja 10 milljörðum í stafræna þróun á vegum borgarinnar. Mikilvægt er að vandað sé til verka við þróun, kaup og notkun upplýsingakerfa á vegum borgarinnar. Það er því miður til marks um óvönduð vinnubrögð að strax sé borginni gert að greiða 5.000.000 kr. stjórnvaldssekt vegna brota á persónuvernd í kerfum borgarinnar. Brot Reykjavíkurborgar vörðuðu persónuupplýsingar barna sem njóta sérstaklegrar verndar í löggjöfinni og töldust brotin að því leyti alvarleg.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það getur sannarlega verið snúið að fóta sig í nýjum heimi upplýsinga. Seesaw nemendakerfið er kerfi sem ýmis persónuleg mál skólabarna eru skráð í, svo sem einkunnir. Þar sem kerfið er bandarískt eru upplýsingarnar sendar þangað ódulkóðaðar. Það býður hættunni heim og nú þarf borgin að greiða fimm milljónir í sekt fyrir að hafa notað kerfið af gáleysi. Þarna er búið að eyða miklum tíma og fjármunum í innleiðingu á kerfi sem ekki var notað í samræmi við fyrirliggjandi öryggiskröfur. Kerfið fékk falleinkunn. Þjónustu- og nýsköpunarsvið tók svo ákvörðun um að henda kerfinu út og ákvað að stofnað yrði sérstakt „lærdómsfélag“ um notkun kerfisins. Fulltrúi Flokks fólksins mun leggja fram formlega fyrirspurn um kostnað við þetta ferli allt.

  18. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Vinstri grænna um að Reykjavíkurborg hætti að innheimta skólagjöld, sbr. 55. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. maí 2022.
    Tillagan er felld með sex atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. MSS22050056

    Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggur fram svohljóðandi bókun:

    Það er pólitísk ákvörðun hvernig fjármunum er varið til menntamála og hvernig staðið er að fyrsta menntastigi barna. Sannarlega hafa leikskólagjöld lækkað í Reykjavík jafnt og þétt, þökk sé skýrri stefnu Vinstri grænna, og eru með þeim lægstu í samanburði við önnur sveitarfélög. Það á hins vegar að stíga skrefið til fulls og afnema með öllu gjaldtöku fyrir grunnmenntun barna. Samfélagsleg og félagsleg áhrif þess að hætta að innheimta gjöld í menntakerfinu; leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum verða seint metin til fjár og eiga stjórnvöld ekki að mismuna börnum vegna tekna foreldra þeirra. Við eigum að hafa hugrekki til að sýna í verki að leikskólinn er sannarlega fyrsta menntastig barna og verja fjármunum úr okkar sameiginlegu sjóðum til að ná fram jöfnuði og réttlæti fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:

    Leikskólagjöld í Reykjavík eru með allra lægsta móti í samanburði við önnur sveitarfélög. Systkinaafslættir eru afar ríflegir og auðveldar fjölskyldum í borginni að hafa börnin sín á leikskóla án mikils tilkostnaðar. Það er sannarlega verðugt markmið að leikskólar verði gjaldfrjálsir en til þess þarf að forgangsraða því fjármagni sem borgin hefur til leikskólamála með öðrum hætti.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja brýnt að bæta leikskólaþjónustu í Reykjavík. Stytta þarf biðlista, brúa þarf bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og leysa þarf mönnunarvandann. Metnaður borgarinnar á að liggja í því að bjóða bestu leikskólaþjónustuna á sanngjörnu verði – ekki að tryggja ódýrustu leikskólana með verstu þjónustuna.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalista styður heilshugar þá tillögu að borgin hætti að innheimta leikskólagjöld. Öll menntun skal vera gjaldfrjáls.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Þessi tillaga Vinstri grænna er popúlísk tillaga og var sett fram korter fyrir kosningar. Betra væri að styrkja þá sem eiga erfitt með að greiða. Það er auk þess sérstakt að svona tillaga skuli koma frá fulltrúa flokks sem setið hefur í meirihluta í fjögur ár. Flokkur fólksins vill horfa til sértækra aðgerða og mun leggja fram tillögu á næsta borgarstjórnarfundi þess efnis að borgarstjórn samþykki að veita foreldrum á lágtekjuheimilum í Reykjavík sértæka aðstoð til að standa straum af gjöldum í tengslum við börn sín, s.s. vegna daggæslu barns í heimahúsum, leikskólavistun og frístund. Einnig að aðstoða með gjöld vegna sumardvalar og þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Tryggt verði að foreldrar sem þiggi fjárhagsaðstoð fái ávallt styrk fyrir börn sín vegna ofangreindra atriða. Jafnframt skuli veittur slíkur styrkur til lágtekjuhópa sem ekki þiggja fjárhagsaðstoð.

    Fylgigögn

  19. Lagt er til að Steinar Ingi Kolbeins taki sæti sem aðalmaður í skólanefnd Menntaskólans við Sund í stað Jórunnar Pálu Jónasdóttur. Þá er lagt til að Guðjón Þorri Bjarkason verði varamaður hans. MSS22030169
    Samþykkt.

  20. Lögð fram fundargerð fjölmenningarráðs frá 23. maí 2022. MSS22010022

    Fylgigögn

  21. Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 12. og 19. maí 2022. MSS22010006

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar frá 12. maí:

    Fram kemur að kaupa á sorphirðubifreiðar fyrir Reykjavíkurborg. Flokkur fólksins veltir því fyrir sér hvort ekki hafi verið skoðað að kaupa bifreiðar sem ganga fyrir metani sem er verðlaust á söfnunarstað hjá SORPU. Fullyrt hefur verið af fráfrandi stjórnarformanni SORPU að allt metan sem SORPA safnar sé selt. Ef það er rétt má e.t.v. skilja þessa ákvörðun.

    Fylgigögn

  22. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 19. maí 2022. MSS22010026

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 3. lið fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins vill leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi bókun íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts undir umræðu um færanlegar skólastofur við Árbæjarskóla:Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts telur mikilvægt að útbúa áætlun um með hvaða hætti húsnæðismál frístundastarfs í Árbænum verði leyst til framtíðar. Íbúaráð sem og fyrirrennarar þess hafa oft bent á að aðstaða til frístundastarfs í Árbænum er ófullnægjandi, en hluti starfsins hefur verið á hrakhólum árum saman. Ljóst er að húsnæði Ársels nægir ekki fyrir þörfina í dag né þá þörf sem er fyrirsjáanleg. Nú er ætlunin að setja niður færanlegt húsnæði við Árbæjarskóla sem skerða mun Árbæjartorg og mögulega starfsemi þar. Íbúaráð hefur skilning á að slíkt sé gert til bráðabirgða en gerir engu að síður kröfu um að farið verði í eðlilega fjárfestingu innan hverfisins, t.d. með stækkun Ársels, til þess að leysa málið til framtíðar. Íbúaráð gerir ennfremur kröfu um að ráðið sem og skólasamfélagið verði upplýst og haft með í ráðum þegar framtíðarlausnar er leitað.

    Fylgigögn

  23. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis frá 25. maí 2022. MSS22010030

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. og 3. lið fundargerðarinnar:

    Liður 2, Flokki fólksins er afar umhugað um öryggi í grennd við skóla og þar sem börn fara um. Ef horft er til lækkun hámarkshraða á Bústaðavegi niður í 40 km leiðir það til þess að mikil umferð er farin að leita inn í íbúðagötur þar sem 30 km hámarkshraði. Þetta mun ekki batna við að lækka hámarkshraða á Bústaðavegi. Vandamálið er annars vegar gegnumflæði og að umferð gangi greiðlega þar og hins vegar að öryggi gangandi vegfarenda er ábótavant. Það sem þarf að gera er að byggja undirgöng undir Bústaðaveginn eða göngubrú yfir hann, ekki síst á gatnamótunum þar sem börn fara um til að komast í skólann. Þetta ætti að vera borðleggjandi og hefur verið rætt en kemst hvorki lönd né strönd. Hætta er á að lækkun hámarkshraða muni bara valda því að umferð í íbúðargötum aukist enn frekar. Liður 3, málefni hverfisins: Ýmislegt hefur verið rætt í þessu sambandi, m.a. þétting byggðar, hæð húsa, skuggvarp og vindstrengir. En það er meira sem þarf að ræða og eru það framkvæmdirnar í Furugerði. Ótækt er að byggingaverktakar geti lagt undir sig svæði með þeim hætti að stoppistöð strætó sé tekin úr umferð í á annað ár.

    Fylgigögn

  24. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Miðborgar og Hlíða frá 25. maí 2022. MSS22010033

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sósíalista tekur undir bókun íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um aðgengismál, undir lið 5 kemur þessi bókun fram, sem tekið er undir: „Fyrir dyrum standa stórar framkvæmdir til að bæta ylströndina og bæta aðgengi. Íbúaráð Miðborgar og Hlíða óskar eftir að strax verði farið í einfaldar aðgerðir áður en mesta sumartraffíkin á ylströndina brestur á þar sem er mikilvægt að fólk með ólíka færni komist leiðar sinnar um svæðið. Í því tilliti má nefna að setja ramp að gufunni og stækka hurðaop inn í búningsklefa þannig að hjólastólar komist þar inn.“

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið fundargerðarinnar:

    Flokkur fólksins vill leggja áherslu á og taka undir bókun um íbúaráðs Miðborgar og Hlíða um ónæði frá skemmtistöðum í miðborginni: „Ráðið leggur ríka áherslu á að málefni íbúa miðborgarinnar og þess ónæðis sem þeir verði fyrir vegna skemmtistaða í miðborginni verði tekin upp hið fyrsta af borgaryfirvöldum og viðeigandi aðilum til að tryggja lágmarks grunnþarfir íbúa, s.s. svefn. Einnig með vísan til 26. gr. lögreglusamþykktar Reykjavíkurborgar er farið þess á leit við þá sem málið kann að varða, að það ónæði sem lausir hátalarar sem rekstraraðilar sumra skemmtistaða kjósa að nota utandyra verði fjarlægðir.“ Flokkur fólksins hefur talað um þetta mál allt frá 2018 þegar lögð var fram tillaga um að reglugerð um hávaðamengun skyldi framfylgt. Vegna COVID fengu íbúar stundargrið en nú er vandamálið komið aftur af fullum þunga. Tillagan kom loks til afgreiðslu 18. maí, fjórum árum eftir að hún var lögð fram og var henni þá vísað til heilbrigðisnefndar. Óttast er að enn eigi að svæfa málið. Þega hæst lætur einkennist skemmtanalífið af öskrum og gargi og jafnvel ofbeldi sem vekur upp ótta og kvíða hjá íbúum í nærliggjandi húsum.

    Fylgigögn

  25. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Vesturbæjar frá 18. maí 2022. MSS22010034

    Fylgigögn

  26. Lögð fram fundargerð samstarfshóps miðborgarmála frá 17. maí 2022. MSS22050177

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Af hverju er t.d. ekki talað um að finna lausnir á næturlífsvandanum í samstarfshópnum? Flokkur fólksins hefur skoðað þessi mál með mörgum. Hópurinn „Kjósum hávaðann burt“ hefur komið með skýra kröfu um að gripið verði til viðeigandi aðgerða við þessum mikla hávaða sem spillir friðhelgi einkalíf íbúanna, hótelgesta og annarra sem svefnstað eiga í miðbænum. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram lausnir bæði í ræðu og riti sem mætti vel skoða. Fyrsta skrefið er að fylgja gildandi reglugerð, draga úr hávaða og bassanum frá klúbbum í húsum með litla hljóðeinangrun. Skoða mætti að setja upp hljóðmæla og nota þá eins og eftirlitsmyndavélar. Annað sem mætti skoða er að til þess að eigendur næturklúbba missi ekki of stóran spón úr aski sínum er að fá fólk til að mæta fyrr á skemmtistaðina. Ef staðið er saman að slíkum breytingum myndi markaðurinn án efa laga sig að breyttum opnunartíma. Mottóið ætti að vera: Eftir eitt ei heyrist neitt! Nú stendur til að koma á næturstrætó sem var einnig ein af tillögum Flokks fólksins. Diskóbar með tilheyrandi hávaða sem dynur alla nóttina getur ekki starfað þar sem fólk er að reyna að sofa.

    Fylgigögn

  27. Lögð fram fundargerð skipulags- og samgönguráðs frá 25. maí 2022.
    B-hluti fundargerðarinnar er samþykktur. MSS22010010

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Tillaga EFLU f.h. Reykjavíkurborgar og Kópavogs að nýju deiliskipulagi Arnarnesvegar 3. áfanga var frestað á fundi skipulags- og samgönguráðs að beiðni fulltrúa Flokks fólksins 25. maí þar til ný borgarstjórn hefur tekið við störfum. Nú hefur ný borgarstjórn tekið við og vonast Flokkur fólksins til að málefni Arnarnesvegar verði skoðuð að nýju með það að markmiði að gert verði nýtt umhverfismat. Það er mikilvægt að verðandi borgarstjóri Einar Þorsteinsson takist á hendur ferð um Vatnsendasvæðið og skoði með hvaða hætti það er fyrirhugað að sprengja fyrir hraðbraut á þessu dýrmæta svæði borgarinnar og það auk þess ofan í fyrirhugaðan Vetrargarð, leiksvæði barna. Tillaga síðasta meirihluta var að byggja þessa aðgerð á um 20 ára gömlu umhverfismati. Það er ekki réttlætanlegt og stríðir gegn öllu tali meirihlutans um græn plön. Einnig þarf að skoða af hverju ekki var athugað með að leggja veginn í stokk eða í göng þar sem hann liggur um dýrmætt grænt náttúru- og útivistarsvæði. Tillagan sem liggur fyrir, með ljósastýrðum gatnamótum við Breiðholtsbraut, mun þess utan valda verulegum töfum á umferð og skapa fleiri vandamál en vegurinn á að leysa. Endurskoða þarf þessa vegalagningu með umhverfið, heildarmyndina og Vetrargarðinn sem þarna á að rísa í huga

    Fylgigögn

  28. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 23. maí 2022. MSS22010017

    Fylgigögn

  29. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 22. apríl og 27. maí 2022. MSS22010014

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 4. lið í fundargerð 22. apríl og 3. lið í fundargerð 27. maí.

    Undir báðum þessum liðum er rætt um búsetu í atvinnuhúsnæði vegna skipan innviðaráðherra i tvo starfshópa. Hópurinn á að fjalla um úrbætur á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu til að fylgja eftir þeim tillögum að úrbótum skv. skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar sem ekki eru nú þegar í vinnslu eða komnar til framkvæmda. Flokkur fólksins vill nefna hér að í húsnæði sem hér er fjallað um er oft fólk sem hefur ekki efni á að leigja sér annað húsnæði. Leiguverð er núna í sögulegu hámarki og ekki fyrir þá efnaminnstu að ráða við. Með vaxandi fátækt í Reykjavík hefur það færst í vöxt hér á landi að fólk búi í húsnæði sem er ekki skráð sem íbúðarhúsnæði, t.d. húsnæði sem er skipulagt undir atvinnustarfsemi. Fólk hefur neyðst til að finna sér skjól í húsnæði sem þessu þar sem öryggi er oft ótryggt og ábótavant. Dæmi eru um að fólki sé vegna öryggissjónarmiða vísað út úr húsnæði sem þessu. Flokkur fólksins hefur ekki fengið upplýsingar um hvort þessu fólki er hjálpað við að fá annað húsnæði eða hvað verður um það yfir höfuð.

    Fylgigögn

  30. Lögð fram fundargerð Strætó bs. frá 20. maí 2022. MSS22010019

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu Strætó bs. þar sem rekstrartap ársins stefnir í að vera um 994 m.kr. þrátt fyrir umtalsverðar hagræðingaraðgerðir á kostnað þjónustu við íbúa, til dæmis má nefna fækkun stoppistöðva. Miðað við fyrirliggjandi rekstrarstöðu mun reynast erfitt að efna nýgefin loforð meirihlutaflokkanna um næturstrætó og gjaldfrjálsar ferðir fyrir börn án þess að reksturinn verði bættur.

    Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í fundargerð strætó frá 20. maí er fjallað um fargjaldaálag en samkvæmt fundargerð er heimilt að leggja fargjaldaálag á farþega sem nýta sér þjónustu á vegum Strætó bs., en greiða ekki rétt fargjald. Sósíalistar telja réttast að skoða rótina og spyrja sig hvers vegna fólk sé ekki að greiða, þar getur fátækt m.a. verið ein ástæða.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Rekstur byggðasamlagsins Strætó er ekki góður. Sagt er að miklar hækkanir á aðföngum skýri kostnaðarhækkanir. Helstu kostnaðarliðir sem hækka mikið eru t.d olía. Fram kemur að verið sé að kaupa vagna en ekki virðist hvarfla að stjórninni að kaupa vagna sem ganga fyrir metani. Metani er safnað í öðru byggðasamlagi, SORPU, sem brennir því á báli þar sem ekki hefur tekist að nýta það.

    Fylgigögn

  31. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 12 mál. MSS22060027

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir erindi stjórnar Félags atvinnurekenda þar sem ítrekaðar eru áskoranir til sveitarfélaga að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2023. Samkvæmt nýbirtu fasteignamati er hækkun mats atvinnuhúsnæðis 10,2% á landinu öllu; 9,6% á höfuðborgarsvæðinu og 11,5% á landsbyggðinni. Án breytinga á álagningarprósentunni þýðir þetta samsvarandi skattahækkun á fyrirtækin. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks skora jafnframt á Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra að endurskoða núverandi tekjumatsaðferð við útreikning fasteignamats atvinnuhúsnæðis. Með aðgerðinni hefur álagður fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði á landinu hækkað úr tæplega 17 milljörðum króna á ári í um 28,8 milljarða – þrátt fyrir breytingar sumra sveitarfélaga á álagningarprósentu.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 12. lið yfirlitsins:

    Hjólhýsa- og húsbílabyggð í Laugardal hefur margsinnis verið til umræðu á síðasta kjörtímabili. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áhyggjur af þessum hópi, t.d. hversu langur biðlisti er eftir langtímastæðum og hvernig gengur að finna nýtt úrræði fyrir íbúa í hjólhýsa- og húsbílabyggð Laugardalsins. Íbúar á svæðinu þurfa langtímalausn. Í fyrra sagði skipulagsfulltrúi í bréfi til íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur þar sem óskað var eftir viðræðum um mögulega staðsetningu á svæði fyrir langtímabílastæði fyrir húsbíla/hjólhýsi að „einkaaðilar á markaði gætu allt eins þjónustað þá gesti á sínu landi sem hafa nýtt sér Laugardalinn frekar en að borgin útvegi land og setji upp grunnþjónustu.“ Um málið var fjallað í fjölmiðlum. Fulltrúi Flokks fólksins óttast að til standi að reka þennan hóp úr Laugardalnum án þess að finna varanlega staðsetningu fyrir hann með húsbíla/hjólhýsi sín í borgarlandinu. Ef á að reka þetta fólk úr Laugardal hvert á það þá að fara? Og hvar eiga einkaaðilar að finna lóðir?

    Fylgigögn

  32. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS22060033

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Athygli vekur að tæplega 60% umsókna um rekstrarleyfi fá neikvæða umsögn. Mikilvægt er að stofnanir á vegum borgarinnar sinni leiðbeiningaskyldu sinni gagnvart atvinnurekendum í borginni og að hindrunum sé rutt úr vegi þeirra sem vilja sækja fram í Reykjavík.

    Fylgigögn

  33. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir öllum upplýsingum sem Reykjavíkurborg hefur sem tengjast samningum vegna uppbyggingar á lóðinni Suðurlandsbraut 34/Ármúli 31. Hér má m.a. nefna viljayfirlýsingar og upplýsingar um greiðslu vegna byggingarréttar. Einnig er óskað eftir skráningu Safírs byggingar ehf. og tilkynningu um stofnun þess félags ef það liggur fyrir. Á fundi borgarráðs 5. maí sl. var samþykkt að Orkureitur ehf. tæki við réttindum í stað Reita fasteignafélags hf. Svo er nú rétt rúmur mánuður liðinn og þá er beðið um að Safír byggingar ehf. taki við réttindum í stað Orkureits ehf. Hvers vegna er Orkureitur ehf. að veita öðrum aðila réttindin svona stuttu síðar? MSS22060104

  34. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvernig er dreifing borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa á póstnúmer borgarinnar? Hvernig er dreifing fulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði á póstnúmer borgarinnar? MSS22060105

  35. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hvað vinna margir í Ráðhúsi Reykjavíkur og hversu mörg hlutastörf eru í boði? Er haldið utan um hversu margir hreyfihamlaðir einstaklingar vinna í ráðhúsinu? Þar sem okkur er ætlað að ganga á undan með góðu fordæmi, til hvaða ráðstafana hefur verið gripið til að auðvelda hreyfihömluðu fólki að fá vinnu í Ráðhúsi Reykjavíkur? MSS22060106

  36. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Óskað er eftir yfirliti um tillögur og fyrirspurnir frá Sósíalistaflokki Íslands úr borgarráði sem fengu ekki afgreiðslu á síðasta kjörtímabili. MSS22060107

  37. Borgarráðsfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Hver er stefna borgarinnar varðandi auglýsingaskilti í borgarrýminu? Getur hver sem er óskað eftir að koma þeim fyrir og má koma þeim fyrir hvar sem er, svo sem í almenningsgörðum eða í nálægð við almenningsgarða? Af hverju var farið fram hjá íbúasamráði í Hlíðum vegna fyrirhugaðs auglýsingaskiltis sem stendur til að setja upp vestanmegin Lönguhlíðar sunnan við gatnamót að Bólstaðarhlíð? Af hverju var einungis húseigendum að Lönguhlíð 7, 9, 11, 13, 15 og 17 gefinn kostur á að veita athugasemdir við þá tillögu? MSS22060108

  38. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu:

    Ábendingar hafa borist um að aðgengis- og samráðsnefnd hafi ekki verið nægjanlega öflug og sterk í störfum sínum og ekki geta barist af nægum krafti fyrir sinn hagsmunahóp. Fulltrúar nefndarinnar þurfa vissulega að vera í mjög góðum tengslum við sitt bakland en umfram allt þurfa pólitískir fulltrúar minnihlutans að hafa næg áhrif og vald til að þeir geti unnið sína vinnu í þágu réttinda þeirra sem hún á að standa vörð um. Nefnd af þessu tagi má ekki virka eins og „mini borgarstjórn“. Lagt er til að gerðar verði breytingar á henni þannig að pólitískir fulltrúar minnihlutans og fulltrúar hagsmunaaðila fái aukin áhrif og vægi til að geta sinnt sínu starfi í nefndinni. Í nefndinni þurfa að vera jöfn hlutföll fulltrúa frá hagsmunasamtökum og pólitískum fulltrúum og jafnvel að fulltrúar hagsmunaaðila séu fleiri. Nefnd af þessu tagi þarf þess utan að vera í betri tengslum við borgarráð og borgarstjórn þannig að hægt sé að koma málum sem nefndin er sammála um að séu mikilvægi í framkvæmd fljótt og vel. MSS22060091

    Frestað.

  39. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Flokkur fólksins hefur ekki séð rök fyrir því af hverju ákveðið var að leggja ofbeldisvarnaráð niður og setja málaflokkinn undir mannréttindaráð. Er ekki með þessari aðgerð verið að gengisfella málaflokkinn? Óskað er skýringa og hvaða rök liggja fyrir þessari ákvörðun. MSS22060090

  40. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Seesaw upplýsingakerfið er kerfi sem ýmis persónuleg mál skólabarna eru skráð í, svo sem einkunnir. Kerfið er bandarískt og eru upplýsingarnar sendar þangað ódulkóðaðar. Nú þarf borgin að greiða fimm milljónir í sekt fyrir að hafa notað kerfið af gáleysi. Þarna er búið að eyða miklum tíma og fjármunum í innleiðingu á kerfi sem ekki var notað í samræmi við fyrirliggjandi öryggiskröfur. Þjónustu- og nýsköpunarsvið tók svo ákvörðun um að henda kerfinu út og ákvað að stofnað yrði sérstakt „lærdómsfélag“ um notkun kerfisins. Flokkur fólksins óskar eftir upplýsingum um hversu miklum fjármunum hafi verið eytt í verkefnið og allt í tengslum við það. MSS22060092

  41. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fram kemur í fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 12. maí að kaupa á sorphirðubifreiðar fyrir Reykjavíkurborg. Flokkur fólksins spyr hvort skoðað hafi verið að kaupa bifreiðar sem ganga fyrir metani en eins og vitað er þá er metan verðlaust hjá SORPU. Ef það hefur ekki verið kannað er óskað skýringar á því. Fullyrt hefur verið af fráfarandi stjórnarformanni SORPU að allt metan sem SORPA framleiðir sé selt. Er það rétt? MSS22060094

  42. Aheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Fulltrúi Flokks fólksins hefur ítrekað vakið máls á að árum saman hafa íbúar, fjölmargir i miðbæ Reykjavíkur átt um sárt að binda vegna hávaðans frá næturklúbbum. Lögð var fram tillaga 2018 um að fylgja skuli reglugerð um hávaðamengun. Tillagan er enn í borgarkerfinu. Óskað er eftir upplýsingum um hvað nýr meirihluta ætli nákvæmlega að gera til úrbóta, hvenær og með hvaða hætti. Ástandið sem hér er lýst er næstum allar helgar og alla helstu frídaga ársins og eru sumir skemmtistaðir eins og Kofinn með dúndrandi hávaða frá kl. 20-01 á fimmtudögum. Íbúarnir hafa orðið fyrir gríðarlegum svefntruflunum af þeim sökum. Sé aftur minnst á Kofann þá tekur hann um 20 manns í sæti og er vart nema 40 fermetrar á stærð. Á þessum litla stað eru hátalarar þannig að allt húsið og nágrennið nötrar og tónlistin berst langar leiðir um byggðina. Þetta eru engin húsakynni fyrir diskótek. Nýr meirihluti hefur lagt mikla áherslu á mikilvægi góðs svefns og vistvænt og heilsusamlegt umhverfi. Engu að síður fær þetta að viðgangast. Flokkur fólksins hefur lagt á borðið ákveðnar lausnir sem vert er að skoða. Það má ekki bíða lengur með að setja sig í samband við íbúa og hagaðila og finna viðunandi flöt í þessu erfiða máli. MSS22060095

Fundi slitið klukkan 10:50

Einar Þorsteinsson Heiða Björg Hilmisdóttir

Alexandra Briem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Hildur Björnsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_1006.pdf