Borgarráð - Fundur nr. 5626

Borgarráð

Ár 2021, fimmtudaginn 20. maí, var haldinn 5626. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:04. Viðstödd voru, auk borgarstjóra, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Eyþór Laxdal Arnalds, Hildur Björnsdóttir og Valgerður Sigurðardóttir. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Daníel Örn Arnarson, Vigdís Hauksdóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 354/2021 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Heiða Björg Hilmisdóttir og Dóra Björt Guðjónsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Þorsteinn Gunnarsson, Ólöf Magnúsdóttir og Ívar Vincent Smárason.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. maí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 5. maí 2021 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 2-8 við Blikastaðaveg, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. maí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 12. maí 2021 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hvassaleitisskóla að Stóragerði 11A, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Skipulagið er til bóta fyrir skólasamfélagið í heild enda hugmyndirnar komnar þaðan. Athugasemdin um að taka alfarið burt stæðin og nýta einungis stæði í borgarlandi er áhugaverð og rétt að skoða þá hugmynd betur í tengslum við gerð hverfisskipulags fyrir hverfið.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Breyting á skipulagi er til þess að auka öryggi barna á leið í skólann og til að tryggja öryggi við og bæta leiksvæði á skólalóðinni. Tillagan byggir á hugmyndum aðila skólasamfélagsins sem sátu í undirbúningshópi í hönnunarferlinu. Í honum sátu fulltrúar nemenda, foreldra og starfsfólks. Það var samdóma álit allra aðila að mikilvægt væri að tryggja betur öryggi nemenda með því að færa umferð út af skólalóðinni. Gert er ráð fyrir sérstöku stæði fyrir starfsfólk, svo það þarf ekki að nýta sér stæði í nálægum götum og áfram verður sleppistæði fyrir foreldra sem skutla börnum sínum til skóla. Þegar kemur að deiliskipulagsbreytingum í grónum hverfum er mikilvægt að haft sé samráð við íbúa um breytingarnar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði fram tillögu í skipulagsráði um að skipulagsyfirvöld hlusti á íbúa við Brekkugerði og Stóragerði vegna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Hvassaleiti og nágrenni. Tillagan var felld með þeim rökum að málið væri afgreitt. Það hefði verið þessum meirihluta að meinalausu að hlusta á samstíga ákall íbúa sem benda á atriði um öryggi barna þeirra. Skipulagsyfirvöld eru í þjónustu borgarbúa en ekki öfugt. Skipulagsmál er ekki einkamál fárra aðila í meirihluta borgarstjórnar eða embættismanna. Enginn veit betur um hættur í hverfum en íbúarnir sjálfir. Fulltrúi Flokks fólksins telur að best hefði farið á því að fresta þessu máli enda hér farið gegn vilja íbúa sem hafa verið samstíga í málinu. Þetta er m.a. spurning um öryggi og öll viljum við að öryggi barna sem eru að koma í og úr skóla sé sem allra mest. Vinna á þetta með íbúum ekki síst þeim sem breytingarnar snerta mest. Aðgerðir þessar eru að ósk skólans en finna hefði átt lausn sem allir hefðu getað sætt sig við.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. apríl 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 28. apríl 2021 á kynningu á lýsingu að deiliskipulagi fyrir Prestshús að Kjalarnesi, ásamt fylgiskjölum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2021, ásamt fylgiskjölum. 
    Samþykkt. 

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. maí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 12. maí 2021 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lækjargötu 10 og 12, Vonarstræti 4-4b og Skólabrú 2 vegna lóðarinnar nr. 12 við Lækjargötu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. maí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 5. maí 2021 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturbugtar vegna lóðarinnar nr. 18 við Mýrargötu, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að halda þessari gönguleið opinni fyrir almenning. Víða er þrengt að aðgengi fólks að gömlu höfninni meðal annars með fyrirhuguðum byggingum í nágrenninu. Mikilvægt er að ekkert sé í vegi fyrir fólki, hvorki ruslageymslur eða annað þar sem þessi gönguleið er þröng en mikilvæg til að halda flæði gangandi fólks.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 6. maí 2021, sbr. synjun skipulags- og samgönguráðs frá 5. maí 2021 á breytingu á skiptingu lóðarinnar nr. 31B við Reykjavíkurveg, ásamt fylgiskjölum.
    Synjun skipulags- og samgönguráðs er staðfest. 

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    -    Kl. 9:30 tekur Dóra Björt Guðjónsdóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við endurnýjun gönguleiða í eldri hverfum á árinu 2021, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun 2 er 250 m.kr.
    Samþykkt. 

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að endurnýja gönguleiðir í eldri hverfum sem er víða mikilvægt enda margar gönguleiðir að koma illa undan vetri. Á þessum gönguleiðum er örugglega oft einnig hjólað. Nokkuð hefur borið á að rafhjól eru skilin eftir á miðjum gönguleiðum/stígum þar sem þau skapa mikla hættu, sérstaklega ef stígar eru þröngir. Flokkur fólksins bendir á að ef hjól, rafhjól og hlaupahjól eiga að verða hluti af samgöngukerfi þurfa gamlir göngustígar og leiðir ef því er að skipta að verða nothæfir fyrir slík farartæki. Best og öruggast er auðvitað að aðgreina gangandi og hjólandi umferð eins og kostur er og hlýtur það að verða framtíðin.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir við gerð hjólastíga 2021, ásamt fylgiskjölum. Áætlaður heildarkostnaður er 1.500 m.kr.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hér er verið að samþykkja heimild til útboðs á hjólastígum fyrir 1,5 milljarð. Verkefnið er hluti af bæði Samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru Bústaðavegur við Sprengisand, Bústaðavegur, brú yfir Kringlumýrarbraut og rampur, Elliðaárdalur-Höfðabakki að Vatnsveitubrú, Kjalarnes við Hringveg, Elliðaárdalur stígur í stað stokks, undirbúningur og hönnun, Svarthöfði, tenging við Stórhöfða, Gufunes tenging við Borgarveg, Gufunes strandstígur, Rauðavatnsstígur, Snorrabraut (Hverfisgata-Sæbraut), Borgartún norður (Snorrabraut-Katrínartún), Sörlaskjól og Faxaskjól, Háaleitisbraut (Bústaðavegur-Fossvogur), Álmgerði og Hæðargarður, Elliðaárdalur (Rafstöð að Bíldshöfða), Þverársel sunnan við íþróttasvæði ÍR. Á hefðbundnu ári fara um 500 m.kr. í gerð hjólastíga en nú er sú upphæð þrefölduð, bæði vegna samgöngusáttmála og aukinnar fjárfestingar borgarinnar í hjólastígum.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framkvæmdin er hluti af verkefnum hjólreiðaáætlunar Reykjavíkurborgar sem er að mati fulltrúa Flokks fólksins metnaðarfull áætlun. Markmiðið að aðskilja gangandi og hjólandi umferð frá megin stofnleiðum borgarinnar. Hér er um einn áfanga að ræða en verkefnið er langtímaverkefni. Þetta plan lítur ágætlega út. Stærsta stökkið er að hafa aðgreinda stíga hjólandi og gangandi. Nú gengur, hleypur og hjólar fólk gjarnan með tónlist í eyrunum og heyrir því ekki eins vel þegar einhver nálgast það. Úr geta því orðið árekstrar. Víða eru eldri stígar blandaðir, hjóla- og göngustígar sem eru upphaflega hannaðir sem göngustígar. Þá þarf að lagfæra til að þeir verði öruggir og þægilegir fyrir bæði hjólandi og gangandi. Það ætti almennt ekki að vera vandamál. Rýmið er oftast nægilega mikið og hægt er að búa til aflíðandi beygjur og minnka brekkur. Járnslár sem víða eru á stígum eru hættulegar hjólreiðafólki. Ef stígar eru hugsaðir sem alvöru hluti af samgöngukerfi borgarinnar er mikilvægt að vera með eins lítið af brekkum og hægt er. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður minnst á að mikilvægi þess að taka fræðslu um reglur á hjólastígum (hjólakennslu) inn í skólana sem dæmi.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út framkvæmdir vegna verkefna umferðaröryggisáætlunar 2021. Kostnaðaráætlun 2 er 250 m.kr.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Umferðaröryggisáætlun er heildstæð áætlun til að bæta öryggi gangandi vegfarenda í Reykjavík. Um er að ræða öruggari gönguþverandi, hraðaminnkandi aðgerðir, gangbrautir, lýsingu, merkingar og fleira fyrir alls um 250 m.kr.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa lagt áherslu á að auka öryggi gangandi vegfarenda og lagt áherslu á að merkingar gangbrauta sé samræmdar og í samræmi við umferðarlög, vel merktar og upplýstar.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Hér eru kynntar margar framkvæmdir sem snúa að bættu öryggi gangandi og er fulltrúi Flokks fólksins afar glaður með það. Mikilvægt er að íbúaráðin komi að því að forgangsraða verkefnunum. Gæði og hagkvæmni eiga að vera aðal áherslan eins og alltaf. Eftir því er tekið að EFLA verkfræðistofa er látin sjá um undirbúninginn. Fulltrúa Flokks fólksins finnst alltaf erfitt að sjá hvað mikið fjármagn fer til einkaráðgjafafyrirtækja og ítrekað kemur upp sú spurning hvort hreinlega ætti ekki að hafa sérfræðinga (eins og þá hjá EFLU) á launaskrá borgarinnar til þess að sinna m.a. annars undirbúningi á svona verkefni. Með því myndi skapast mikil hagræðing og sparnaður.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að bjóða út verkefni vegna þéttingar byggðar 2021. Kostnaðaráætlun 2 er 170 m.kr.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hér er verið að bjóða út eðlilegan og sjálfsagðan frágang á gangstéttum og lýsingu gatna. Gagnrýnivert er að heiti málsins sé ekki í samræmi við innihald þess.

    Ólöf Örvarsdóttir og Ámundi V. Brynjólfsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. maí 2021, sbr. samþykkt skipulags- og samgönguráðs frá 12. maí 2021 á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi fyrir Rauðhóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Búið er að skemma flesta Rauðhóla. Heilu hólunum var mokað í burtu, grafið í aðra og þeir skemmdir og nú stendur eftir alls konar form af „hólum“, allt skemmdir af mannanna völdum. Skemmdir vegna efnistöku eru skerandi og ættu að minna alla á að ganga vel um náttúruna. Hægt er að nota Rauðhólana sem efni í fræðslu um hvernig á ekki að ganga um náttúruna. Til stendur að gera nýtt göngustígakerfi og er það af hinu góða. Nú er spurning hvort og hvernig hægt er að gera það besta úr þessum skemmdum. Rauðhólar eru vannýtt svæði með tilliti til útivistar og mun bætt göngustígakerfi vonandi verða til bóta.

    Ólöf Örvarsdóttir og Björn Axelsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  12. Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, um breytingu á gjaldskrá fyrir hundahald, ásamt fylgiskjölum. Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Með þessu er verið að lækka hundagjöld um allt að helming þannig að þau verða nú lægst á höfuðborgarsvæðinu. Von okkar er að hundaskráningum fjölgi svo unnt verði að kortleggja betur hvar flesta hunda er að finna í borginni svo hægt sé að einblína sérstaklega á betri hundagerði og bætta þjónustu á þeim svæðum. Ef skráningar aukast verulega er stefnt að frekari lækkun gjalda. Þetta er liður í þeirri vegferð borgarinnar að bæta, einfalda og auka skilvirkni þjónustu við dýr og dýraeigendur. Búið er að sameina þjónustu við dýr á einum stað með stofnun Dýraþjónustu Reykjavíkur (DÝR) með starfsstöð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Málefni katta voru flutt frá Meindýraeftirlitinu og Hundaeftirlitið lagt niður. Samhliða er verið að leyfa hundahald formlega í Reykjavík auk þess sem fjárfest verður í betri og fleiri hundagerðum. Talið er að á um 40% heimila í Reykjavík búi gæludýr. Með þessum breytingum viljum við gera dýrum og gæludýraeigendum hærra undir höfði enda dýr mikilvægur hluti af borgarsamfélagi auk þess sem gæludýr geta haft ýmisleg jákvæð áhrif á umhverfi sitt og þannig full ástæða til að hvetja til dýraeignar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að fyllsta öryggis sé gætt þegar hundar eru hafðir inn á veitingastöðum og börum. Rétt er að endurskoða skilyrði og reglur með hliðsjón af reynslu síðustu mánaða.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Að innheimta hundagjald og skrá aðeins hunda af öllum gæludýrum er óviðunandi og ósanngjarnt ef horft er til þessa hóps sem heldur gæludýr. Vissulega hefur orðið einhver þróun til betri áttar, t.d. eru störf dýraþjónustunnar nú eilítið gagnsærri en áður. En staða þessara mála í borginni er almennt ekki nógu nútímaleg og góð borið saman við aðrar borgir.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna innleiðingar á nýju síma- og samskiptakerfi, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Mál þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem hér fara á eftir eru hluti af stafrænni umbreytingu Reykjavíkur. Alls er kostnaðarmat á þeim níu liða verkefnapakka sem hér er verið að óska heimildar til að fara í útboð fyrir um 1,7 ma.kr. Stafræn umbreyting snýst um nútímavæðingu þjónustu á forsendum íbúans með bættu aðgengi að þjónustu. Af þessu skapast mikið hagræði fyrir borgina, íbúa og umhverfið með minna veseni, minni mengun og minni sóun. Þetta er krafa nútímans og vegferð sem öll stærri fyrirtæki sem leggja áherslu á góða þjónustu eru á. Verkefnið er hluti af græna planinu þar sem stafrænni umbreytingu er hraðað og ráðist í verkefni á þremur árum sem hefðu ellegar tekið tíu ár.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum. Halda mætti að borgin væri fyrst nú að komast út úr torfkofanum, með fullri virðingu fyrir torfkofum. Áætlað er að 10 milljarðar fari á næstu árum í stafræna umbreytingu. Hér er verið að veita 1,8 milljarði í nýtt síma- og samskiptakerfi, endurnýjun á netskápum og netskiptum, allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, innleiðingu Microsoft Office 365, innleiðingu á kerfi til að halda utan um hugbúnaðarleyfi og búnað, hefja innleiðingu á alþjónustu á prentumhverfi, rafrænt fræðslukerfi, úthýsingu tölvuvélasala í gagnaver og öryggis- og aðgangskerfi í stjórnsýsluhús. Öll þessi mál eru trúnaðarmerkt. Hvað þolir ekki dagsljósið? Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum meirihluta? Samstæðan skuldar hátt í 400 milljarða og er rekin á lánum. Borgarsjóður er yfirskuldsettur og áætlað er að taka 34 milljarða króna rekstrarlán á árinu. Þá er farið í þetta rugl sem lýsir best mikilmennskubrjálæði. Reykjavíkurborg er eins og áður segir ekki hugbúnaðarfyrirtæki heldur sveitarfélag.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins gerir sér grein fyrir að margt þarf að laga og bæta í upplýsingatæknimálum borgarinnar. Það er þessi „grandiose“ hugsun sem einkennir framsetningu mála og liggur að baki ákvarðanatöku þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem skelfir fulltrúa Flokks fólksins. Tal um allsherjar innleiðingu o.s.frv. hræðir einnig. Hvergi kemur fram að leitað sé samvinnu við aðra til að halda niðri kostnaði, t.d. gera samning við nágrannasveitarfélög og deila þannig kostnaði og þar með afurðum/lausnum. Eitt er að eiga sér drauma í þessum málum en hitt er að horfa á raunveruleikann og gera sér grein fyrir að innspýting upp á 10 milljarða á 3 árum, er útsvarsfé borgarbúa. Nauðsynlegt er að fá nákvæmari hagræðingaráætlanir og hvað hefur verið reynt að gera til að finna hagkvæmustu leiðir á sama tíma og gætt er að gæðum að sjálfsögðu. Engu er til sparað að því er virðist í fjölda verkefna. Fulltrúa Flokks fólksins finnst svona viðhorf eigi ekki við í rekstri sveitarfélags. Halda mætti að verið sé að stofna hugbúnaðarfyrirtæki á vegum Reykjavíkurborgar. Annað sem veldur áhyggjum er umfang í umgjörð, kaup á búnaði/húsgögnum og leiga á viðbótarhúsnæði í kringum þjónustu- og nýsköpunarsvið en fulltrúi Flokks fólksins hefur óskað eftir upplýsingum um sundurliðaðan kostnað í því sambandi.

    Óskar J. Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Finnur Kári Guðnason, Friðþjófur Bergmann, Kjartan Kjartansson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna endurnýjunar á netskápum og netskiptum á starfsstöðum borgarinnar, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

  15. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að fara í innkaup til að framhalda allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum. Halda mætti að borgin væri fyrst nú að komast út úr torfkofanum, með fullri virðingu fyrir torfkofum. Áætlað er að 10 milljarðar fari á næstu árum í stafræna umbreytingu. Hér er verið að veita 1,8 milljarði í nýtt síma- og samskiptakerfi, endurnýjun á netskápum og netskiptum, allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, innleiðingu Microsoft Office 365, innleiðingu á kerfi til að halda utan um hugbúnaðarleyfi og búnað, hefja innleiðingu á alþjónustu á prentumhverfi, rafrænt fræðslukerfi, úthýsingu tölvuvélasala í gagnaver og öryggis- og aðgangskerfi í stjórnsýsluhús. Öll þessi mál eru trúnaðarmerkt. Hvað þolir ekki dagsljósið? Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum meirihluta? Samstæðan skuldar hátt í 400 milljarða og er rekin á lánum. Borgarsjóður er yfirskuldsettur og áætlað er að taka 34 milljarða króna rekstrarlán á árinu. Þá er farið í þetta rugl sem lýsir best mikilmennskubrjálæði. Reykjavíkurborg er eins og áður segir ekki hugbúnaðarfyrirtæki heldur sveitarfélag.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Veita á heimild til að hefja allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði. Með því að orða þetta með þessum hætti er greinilega eitthvað stórt í aðsigi. Orðið „allsherjar“ þarfnast frekari skýringar. Borgarfulltrúi Flokks fólksins fagnar hins vegar öllu því sem stuðlað getur að aukinni notkun fjarfundarbúnaðar. Bæði sparar það tíma og peninga sem annars færu í ferðir og er þá ekki síst átt við ferðir á milli landa ef svo ber undir. Þess vegna vonast borgarfulltrúinn til að spara megi umtalsverða fjármuni ef aukin notkun fjarfundarlausna verður innleidd með aukinni tækni. Hitt er að borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur séð að nú þegar er til staðar töluvert af, að því er virðist, „dýrum“ fjarfundarbúnaði á nokkrum stöðum í stjórnsýsluhúsum borgarinnar sem varla getur verið með öllu úreltur.

    Óskar J. Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Finnur Kári Guðnason, Friðþjófur Bergmann, Kjartan Kjartansson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili þjónustu- og nýsköpunarsviði að hefja innkaupaferli vegna breytinga á leyfasamningum fyrir innleiðingu á Microsoft Office 365 á alla starfsstaði borgarinnar, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum. Halda mætti að borgin væri fyrst nú að komast út úr torfkofanum, með fullri virðingu fyrir torfkofum. Áætlað er að 10 milljarðar fari á næstu árum í stafræna umbreytingu. Hér er verið að veita 1,8 milljarði í nýtt síma- og samskiptakerfi, endurnýjun á netskápum og netskiptum, allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, innleiðingu Microsoft Office 365, innleiðingu á kerfi til að halda utan um hugbúnaðarleyfi og búnað, hefja innleiðingu á alþjónustu á prentumhverfi, rafrænt fræðslukerfi, úthýsingu tölvuvélasala í gagnaver og öryggis- og aðgangskerfi í stjórnsýsluhús. Öll þessi mál eru trúnaðarmerkt. Hvað þolir ekki dagsljósið? Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum meirihluta? Samstæðan skuldar hátt í 400 milljarða og er rekin á lánum. Borgarsjóður er yfirskuldsettur og áætlað er að taka 34 milljarða króna rekstrarlán á árinu. Þá er farið í þetta rugl sem lýsir best mikilmennskubrjálæði. Reykjavíkurborg er eins og áður segir ekki hugbúnaðarfyrirtæki heldur sveitarfélag.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Þjónustu- og nýsköpunarsvið óskar heimildar til að hefja innleiðingu á Microsoft Office 365 á alla starfsstaði borgarinnar. Borgarfulltrúi Flokks fólksins heyrði af því á sínum tíma að búið væri að innleiða Microsoft Office 365 í allt skólaumhverfið borgarinnar. Fulltrúanum er kunnugt um að þar er um að ræða svokölluð skólaleyfi og veltir fyrir sér hvort þau séu ekki ódýrari? Heildarkostnaður þessa verkefnis er 605.000.000 kr. á tímabilinu júní 2021 til mars 2022. Yfir 600 milljónir í Microsoft Office. Er það besta tilboðið? Ekki er vitað til þess að kannað hafi verið hvort sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gætu sameinast í leyfakaupum af Microsoft og jafnvel ná með því betri tilboðum vegna aukins fjölda leyfa sem yrði vegna slíks sameiginlegs útboðs.

    Óskar J. Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Finnur Kári Guðnason, Friðþjófur Bergmann, Kjartan Kjartansson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja kaup og innleiðingu á kerfi sem heldur utan um hugbúnaðarleyfi borgarinnar og búnað, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun:

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum. Halda mætti að borgin væri fyrst nú að komast út úr torfkofanum, með fullri virðingu fyrir torfkofum. Áætlað er að 10 milljarðar fari á næstu árum í stafræna umbreytingu. Hér er verið að veita 1,8 milljarði í nýtt síma- og samskiptakerfi, endurnýjun á netskápum og netskiptum, allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, innleiðingu Microsoft Office 365, innleiðingu á kerfi til að halda utan um hugbúnaðarleyfi og búnað, hefja innleiðingu á alþjónustu á prentumhverfi, rafrænt fræðslukerfi, úthýsingu tölvuvélasala í gagnaver og öryggis- og aðgangskerfi í stjórnsýsluhús. Öll þessi mál eru trúnaðarmerkt. Hvað þolir ekki dagsljósið? Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum meirihluta? Samstæðan skuldar hátt í 400 milljarða og er rekin á lánum. Borgarsjóður er yfirskuldsettur og áætlað er að taka 34 milljarða króna rekstrarlán á árinu. Þá er farið í þetta rugl sem lýsir best mikilmennskubrjálæði. Reykjavíkurborg er eins og áður segir ekki hugbúnaðarfyrirtæki heldur sveitarfélag.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins gerir sér grein fyrir að margt þarf að laga og bæta í upplýsingatæknimálum borgarinnar. Það er þessi „grandiose“ hugsun sem einkennir framsetningu mála og liggur að baki ákvarðanatöku þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem skelfir fulltrúa Flokks fólksins. Tal um allsherjar innleiðingu o.s.frv. hræðir einnig. Hvergi kemur fram að leitað sé samvinnu við aðra til að halda niðri kostnaði, t.d. gera samning við nágrannasveitarfélög og deila þannig kostnaði og þar með afurðum/lausnum. Eitt er að eiga sér drauma í þessum málum en hitt er að horfa á raunveruleikann og gera sér grein fyrir að innspýting upp á 10 milljarða á 3 árum, er útsvarsfé borgarbúa. Nauðsynlegt er að fá nákvæmari hagræðingaráætlanir og hvað hefur verið reynt að gera til að finna hagkvæmustu leiðir á sama tíma og gætt er að gæðum að sjálfsögðu. Engu er til sparað að því er virðist í fjölda verkefna. Fulltrúa Flokks fólksins finnst svona viðhorf eigi ekki við í rekstri sveitarfélags. Halda mætti að verið sé að stofna hugbúnaðarfyrirtæki á vegum Reykjavíkurborgar. Annað sem veldur áhyggjum er umfang í umgjörð, kaup á búnaði/húsgögnum og leiga á viðbótarhúsnæði í kringum þjónustu- og nýsköpunarsvið en fulltrúi Flokks fólksins hefur óskað eftir upplýsingum um sundurliðaðan kostnað í því sambandi.

    Óskar J. Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Finnur Kári Guðnason, Friðþjófur Bergmann, Kjartan Kjartansson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja útboðsferli á áætlun alþjónustu við prentumhverfi, leigu og þjónustu vegna prentara fyrir endanotendur í tölvuumhverfi Reykjavíkurborgar, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.

  19. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 14. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu, fyrir hönd mannauðs- og starfsumhverfissviðs, að hefja útboðsferli sem er á áætlun nýrra upplýsingakerfa um kaupa á fræðslukerfi fyrir Reykjavíkurborg, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.

  20. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 13. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja útboðsferli á úthýsingu vélasala Reykjavíkurborgar í gagnaver, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum. Halda mætti að borgin væri fyrst nú að komast út úr torfkofanum, með fullri virðingu fyrir torfkofum. Áætlað er að 10 milljarðar fari á næstu árum í stafræna umbreytingu. Hér er verið að veita 1,8 milljarði í nýtt síma- og samskiptakerfi, endurnýjun á netskápum og netskiptum, allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, innleiðingu Microsoft Office 365, innleiðingu á kerfi til að halda utan um hugbúnaðarleyfi og búnað, hefja innleiðingu á alþjónustu á prentumhverfi, rafrænt fræðslukerfi, úthýsingu tölvuvélasala í gagnaver og öryggis- og aðgangskerfi í stjórnsýsluhús. Öll þessi mál eru trúnaðarmerkt. Hvað þolir ekki dagsljósið? Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum meirihluta? Samstæðan skuldar hátt í 400 milljarða og er rekin á lánum. Borgarsjóður er yfirskuldsettur og áætlað er að taka 34 milljarða króna rekstrarlán á árinu. Þá er farið í þetta rugl sem lýsir best mikilmennskubrjálæði. Reykjavíkurborg er eins og áður segir ekki hugbúnaðarfyrirtæki heldur sveitarfélag.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins skilur það að endurnýja þarf búnað sem kominn er til ára sinna og virkar ekki sem skyldi lengur. Fulltrúi Flokks fólksins styður að leitað sé allra leiða til lausna svo framarlega sem betri þjónusta, hagræðing og sparnaður hljótist af því. En ekki er hægt að sjá neinar upplýsingar um hagræðingu, hvar eru hagræðingartölur? Hvaða aðrir möguleikar hefðu verið í stöðunni sem dæmi og eins hvort ekki væri hægt að taka verkefnin í skrefum. Málið er lagt þannig upp að það er eins og allt sé ónýtt, eldgamalt drasl sem má nú sópa út. Borgarfulltrúinn er ekki sérfræðingur í vélarsölum en spyr sig samt hvort minni salur gæti hýst gögn borgarinnar. Við lestur þessa máls og annarra sambærilegra sem koma frá þjónustu- og nýsköpunarsviði fæst sú tilfinning að engu er til sparað en minnt er á hvaðan fjármagnið kemur þ.e. frá fólkinu í borginni.

    Óskar J. Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Finnur Kári Guðnason, Friðþjófur Bergmann, Kjartan Kjartansson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  21. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 12. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja undirbúning, innkaup, uppsetningu og innleiðingarferli á öryggis- og aðgangskerfi fyrir Ráðhús Reykjavíkur, Tjarnargötu 12 og Höfðatorg, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Að gefnu tilefni er mikilvægt að innkauparáð fylgist vel með útboðum sem þessum enda um verulega háar fjárhæðir að ræða. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu að jafnræðis sé gætt milli tilboðsgjafa.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Reykjavíkurborg er ekki hugbúnaðarfyrirtæki. Reykjavíkurborg er sveitarfélag sem samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber að halda uppi lögbundinni þjónustu og grunnþjónustu. Sú þjónusta er í molum. Halda mætti að borgin væri fyrst nú að komast út úr torfkofanum, með fullri virðingu fyrir torfkofum. Áætlað er að 10 milljarðar fari á næstu árum í stafræna umbreytingu. Hér er verið að veita 1,8 milljarði í nýtt síma- og samskiptakerfi, endurnýjun á netskápum og netskiptum, allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði, innleiðingu Microsoft Office 365, innleiðingu á kerfi til að halda utan um hugbúnaðarleyfi og búnað, hefja innleiðingu á alþjónustu á prentumhverfi, rafrænt fræðslukerfi, úthýsingu tölvuvélasala í gagnaver og öryggis- og aðgangskerfi í stjórnsýsluhús. Öll þessi mál eru trúnaðarmerkt. Hvað þolir ekki dagsljósið? Hvað er eiginlega í gangi hjá þessum meirihluta? Samstæðan skuldar hátt í 400 milljarða og er rekin á lánum. Borgarsjóður er yfirskuldsettur og áætlað er að taka 34 milljarða króna rekstrarlán á árinu. Þá er farið í þetta rugl sem lýsir best mikilmennskubrjálæði. Reykjavíkurborg er eins og áður segir ekki hugbúnaðarfyrirtæki heldur sveitarfélag.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Fulltrúi Flokks fólksins gerir sér grein fyrir að margt þarf að laga og bæta í upplýsingatæknimálum borgarinnar. Það er þessi „grandiose“ hugsun sem einkennir framsetningu mála og liggur að baki ákvarðanatöku þjónustu- og nýsköpunarsviðs sem skelfir fulltrúa Flokks fólksins. Tal um allsherjar innleiðingu o.s.frv. hræðir einnig. Hvergi kemur fram að leitað sé samvinnu við aðra til að halda niðri kostnaði, t.d. gera samning við nágrannasveitarfélög og deila þannig kostnaði og þar með afurðum/lausnum. Eitt er að eiga sér drauma í þessum málum en hitt er að horfa á raunveruleikann og gera sér grein fyrir að innspýting upp á 10 milljarða á 3 árum, er útsvarsfé borgarbúa. Nauðsynlegt er að fá nákvæmari hagræðingaráætlanir og hvað hefur verið reynt að gera til að finna hagkvæmustu leiðir á sama tíma og gætt er að gæðum að sjálfsögðu. Engu er til sparað að því er virðist í fjölda verkefna. Fulltrúa Flokks fólksins finnst svona viðhorf eigi ekki við í rekstri sveitarfélags. Halda mætti að verið sé að stofna hugbúnaðarfyrirtæki á vegum Reykjavíkurborgar. Annað sem veldur áhyggjum er umfang í umgjörð, kaup á búnaði/húsgögnum og leiga á viðbótarhúsnæði í kringum þjónustu- og nýsköpunarsvið en fulltrúi Flokks fólksins hefur óskað eftir upplýsingum um sundurliðaðan kostnað í því sambandi.

    Óskar J. Sandholt, Arna Ýr Sævarsdóttir, Finnur Kári Guðnason, Friðþjófur Bergmann, Kjartan Kjartansson og Þröstur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    -    Kl. 10:40 víkur Helga Björk Laxdal af fundinum og Ívar Vincent Smárason tekur við ritun fundarins. 

    Fylgigögn

  22. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2021, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fara í viðræður um sölu á hlut Reykjavíkurborgar í Neyðarlínunni. Borgarstjóra barst bréf frá stjórn Neyðarlínunnar ohf., dagsett 23. október 2020, þar sem óskað er eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um möguleg kaup á hlutum hennar í félaginu. Í dag á Reykjavíkurborg 18,50% af hlutafé Neyðarlínunnar eða 3.515.000. kr. að nafnvirði. Neyðarlínan býðst til að kaupa hlutaféð miðað við tilsvarandi hlutdeild í bókfærðu eigin fé félagsins m.v. áætlaða stöðu í lok október sl.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Eignarhald Reykjavíkurborgar á Neyðarlínunni komst í kastljós fjölmiðla þegar að formaður mannréttindaráðs gagnrýndi Neyðarlínuna harðlega sem varð til þess að Neyðarlínan krafði Dóru Björt Guðjónsdóttur um afsökunarbeiðni vegna grófra og tilhæfulausra ásakana á hendur starfsfólki Neyðarlínunnar. Borgarfulltrúinn hefur ekki enn orðið við beiðni Neyðarlínunnar en með breyttu eignarhaldi er ekki hætta á viðlíka frumhlaupi af hálfu fulltrúa eigenda. Málið allt er borginni til mikillar skammar.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  23. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til borgarráð samþykki að útboð skuldabréfa Reykjavíkurborgar verði á eftirfarandi dagsetningum á síðari hluta ársins 2021: 11. ágúst, 8. september, 13. október, 10. nóvember og 8. desember Ekki verður ákveðið hversu háa fjárhæð er stefnt að því að bjóða út í hvert sinn eða í hvaða skuldabréfa flokki er boðið út í heldur er sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs heimilt að ákveða fyrirkomulag útboða í hvert sinn.

    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins og leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Um síðustu áramót voru heildarskuldir borgarinnar 386 milljarðar. Nú er gert ráð fyrir að taka lán a.m.k. í fimm skipti á árinu af hálfu borgarsjóðs. Ekki sér fyrir endann á skuldasöfnun borgarinnar en reksturinn er orðinn ósjálfbær.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  24. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi viðauka 1 við innheimtureglur Reykjavíkurborgar vegna innheimtu fasteignagjalda af atvinnuhúsnæði skv. II. kafla í lögum nr. 22/2021. Fjármála- og áhættustýringarsvið hefur sett í viðauka 1 við innheimtureglur Reykjavíkurborgar reglur varðandi innheimtu fasteignagjalda af atvinnuhúsnæði vegna áranna 2020-2022. Lögveð hefur verið lengt í 4 ár vegna gjalda á árunum 2020-2022 auk þess sem sveitarfélög hafa fengið heimild til gerðar greiðsluáætlana og lækkun dráttarvaxta. Skilyrði fyrir gerð greiðsluáætlana og lækkun dráttarvaxta er að gjaldandi eigi við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins eða gjaldendum sem leigja húsnæði til rekstraraðila sem sömu skilyrði eiga við um.

    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráð samþykkti í mars 2020 aðgerðir til að mæta þeirri stöðu sem upp var komin í ferðaþjónustu vegna COVID-19. Hér er samþykktur viðauki við innheimtureglur Reykjavíkurborgar vegna innheimtu fasteignagjalda af atvinnuhúsnæði til að mæta þeirri stöðu sem mörg ferðaþjónustufyrirtæki eru í. Hér er um að ræða nýjar reglur varðandi innheimtu fasteignagjalda af atvinnuhúsnæði vegna áranna 2020-2022. Lögveð hefur verið lengt í 4 ár vegna gjalda á árunum 2020-2022 auk þess sem sveitarfélög hafa fengið heimild til gerðar greiðsluáætlana og lækkun dráttarvaxta. Skilyrði fyrir gerð greiðsluáætlana og lækkun dráttarvaxta er að gjaldandi eigi við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins eða gjaldendum sem leigja húsnæði til rekstraraðila sem sömu skilyrði eiga við um.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa bent á að lengja þurfi í gjaldögum fyrir þá sem hafa orðið illa úti í kórónuveirufaraldrinum. Hér er verið að bregðast við þessum vanda að hluta.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  25. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til borgarráð samþykki meðfylgjandi viðauka 2 við innheimtureglur Reykjavíkurborgar varðandi heimild til greiðsludreifingar almennra krafna vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Fjármála- og áhættustýringarsvið hefur sett í viðauka 2 við innheimtureglur Reykjavíkurborgar reglur varðandi heimild til greiðsludreifingar almennra krafna vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Momentum, greiðslu- og innheimtuþjónusta, sem sér um milliinnheimtu fyrir Reykjavíkurborg verður heimilt að gera sérstakt greiðslusamkomulag til allt að 10 mánaða við greiðendur almennra krafna útgefnum af Reykjavíkurborg eftir að áhrifa kórónuveirufaraldursins var vart, þ.e. kröfum gefnum út 1. mars 2020 eða síðar. 
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  26. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki afnotasamning um 6m² svæði vestan lóðar Laugavegar 21 undir gróðurhús, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  27. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 17. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki afnotasamning um 5m² svæði í Laugarnesi undir loftgæðamæli Faxaflóahafna, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  28. Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 18. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að ganga til samninga við Faxaflóahafnir um kaup á lóðarskika sem staðsettur er við svæði 1 í Vogabyggð, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir, Óli Jón Hertervig og Helga Benediktsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  29. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 18. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki úthlutun lóðar og sölu byggingarréttar að Lambhagavegi 8.
    Samþykkt.

    Fylgigögn

  30. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að Reykjavíkurborg sæki um og gerist aðili að bandalaginu Cities Coalition for Digital Rights. Borgarstjóri verði fulltrúi Reykjavíkurborgar í bandalaginu og sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs staðgengill hans.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað.

  31. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, varðandi ársfjórðungsskýrslu græna plansins fyrir janúar til mars 2021, ásamt fylgiskjölum.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Þrátt fyrir fögur fyrirheit um sjálfbærni í græna planinu er ljóst að planið gengur ekki upp. Rekstur borgarinnar og skuldasöfnun er algerlega ósjálfbær eins og sést í ársreikningum borgarinnar. Þá hefur húsnæðisverð hækkað um 14% og enn meira í sérbýli á síðustu tólf mánuðum og er ljóst að framboð af byggingarlóðum er mjög takmarkað hvað varðar magn og fjölbreytileika. Einsleitar áherslur meirihlutans í húsnæðismálum hafa valdið skorti sem ógnar ekki bara húsnæðismarkaði heldur líka verðstöðugleika með tilheyrandi vaxtahækkunum. Þá vekur athygli að losun CO2 ígilda eykst um 15% milli ára þrátt fyrir áætlanir um að draga úr losun. Ekkert grænt við það.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Lögð er fram ársfjórðungsskýrsla græna plansins. Fram kemur að unnið er að einföldun, m.a. á skólaþjónustu. Þessi vinna gengur alltof hægt og enn hægar gengur að sinna börnum í vanda og vanlíðan sem bíða eftir þjónustu fagfólks. Skólaþjónustan er löngu sprungin. Biðlisti til fagfólks skóla er í sögulegu hámarki en nú bíða 1.033 börn eftir aðstoð fagaðila vegna ýmissa vandamála og vanlíðunar. Biðlistinn hefur lengst um 77 börn á tveimur mánuðum. Þann 1. mars voru 956 börn á bið eftir skólaþjónustu. Þeim hefur fjölgað síðan þá og voru 1.033 1. maí sl. Meirihlutinn lyftir ekki fingri til að taka á þessari neikvæðu þróun. Vandinn bara vex. Fulltrúi Flokks fólksins þreytist ekki á að nefna þetta enda er mikið í húfi. Hér er verið að leika sér að eldi. Barn í vanda og vanlíðan sem ekki fær nauðsynlega og viðeigandi aðstoð er líklegra til að grípa til örþrifaráða. Vaxandi vanlíðan barna í Reykjavík og aukning á depurð, kvíða, sjálfsskaða og sjálfsvígshugsunum hefur verið áhyggjuefni lengi. Á meðan börnin í borginni bíða er 10 milljörðum varið í stafræna umbreytingu sem er að minnsta kosti helmingi hærri upphæð en þyrfti til að styrkja tæknilega grunninnviði ef vel og skynsamlega væri haldið á spilunum og hagræðingar og hagkvæmni gætt.

    Fylgigögn

  32. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, varðandi ársfjórðungsskýrslu borgarvaktar í velferðar- og atvinnumálum fyrir janúar til mars 2021, ásamt fylgiskjölum.

    -    Kl. 11:30 tekur Helga Björk Laxdal sæti á fundinum að nýju og tekur við ritun fundarins.
    -    Kl. 11:35 víkur Þorsteinn Gunnarsson af fundinum. 

    Fylgigögn

  33. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 24. mars 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 24. mars 2021 á tillögu um einhverfudeild í Réttarholtsskóla, ásamt fylgiskjölum. Einnig lögð fram umsögn aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks, dags. 17. maí 2021, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Tillögu um að stofnuð verði einhverfudeild í Réttarholtsskóla ber að fagna svo fremi sem úrræðinu fylgir nægt fjármagn og verði gert úr garði með fullnægjandi hætti. Jafnframt er mikilvægt að allir þeir sem starfi við deildina hafi sérþekkingu á málefnum einhverfra nemenda. Tekið er undir umsagnir, þ.m.t. umsögn skólaráðs, um að húsnæðið verði gert úr garði með fullnægjandi hætti, ekki síst hvað viðkemur rými, ljósi og hljóði svo fátt eitt sé nefnt. Fulltrúi Flokks fólksins hefur nokkrar áhyggjur af hvað margir sóttu um (38) en fáir fá pláss (8) og hvar mörkin eru dregin þegar sagt er að þau börn gangi fyrir sem „rekast illa í almennum bekk“ eins og kemur fram í gögnum. Þessi deild hefði þurft að vera stærri og deildarskipt ef vel hefði átt að vera því þarna verður sérþekking til staðar fyrir einhverf börn.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  34. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 12. maí 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 11. maí 2021 á tillögu um þjónustusamninga við tónlistarskóla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  35. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 12. maí 2021, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 11. maí 2021 á tillögu um tónlistarskólasamninga, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Helgi Grímsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  36. Lagt fram bréf innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, dags. 18. maí 2021, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að breyta heiti skrifstofunnar í innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Nafnabreytingin er hluti af þeirri vegferð að sameina á einum stað starfsemi innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, starfsemi umboðsmanns borgarbúa og starf persónuverndarfulltrúa, með það að markmiði að einfalda og um leið styrkja starfsemi og skipulag þeirra aðila sem sinna eftirliti með starfsemi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Samhliða þessari breytingu er verið að innleiða nýja gátt fyrir vernd uppljóstrara.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Mikilvægt er að kjarnahlutverk innri endurskoðunar verði áfram innri endurskoðun. Hætta er á hagsmunaárekstrum ef innri endurskoðun er ráðgjafi þess sem á síðan að endurskoða. Betur færi á því að hlutverk innri endurskoðunar væri einskorðað við innri endurskoðun.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    Við skoðun á þessu nafni leitast fulltrúi Flokks fólksins við að reyna að skynja hvort nafnið sé lýsandi fyrir það hlutverk sem umboðsmaður borgarbúa hafði þegar hann var og hét, hlutverk sem innri endurskoðun hefur nú. Hlutverkið hans fólst m.a. í að hafa eftirlit með stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og tryggja rétt borgarbúa gagnvart henni. Þetta nýja nafn, Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar, er gott eins langt og það nær en í nafninu felst þó ekki beinlínis að verið sé sérstaklega að tryggja rétt borgarbúa. Fulltrúi Flokks fólksins saknar tilvísunar í „borgarbúann“. 

    Hallur Símonarson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  37. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 17. maí 2021, varðandi drög að lýðheilsustefnu Reykjavíkur til 2030.
    Samþykkt að vísa drögum að lýðheilsustefnu Reykjavíkur til 2030 til umsagnar fagráða Reykjavíkur.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Lýðheilsa og lífsgæði eru lykiláherslur í framtíðarsýn og áherslum borgarinnar á öllum sviðum. Það þýðir að Reykjavík á að vera sannkölluð heilsuborg, hvort sem litið er til hins andlega, líkamlega eða félagslega. Stefna Reykjavíkurborgar á sviði lýðheilsu er að fjölga æviárum þar sem íbúar búa við góða heilsu og vellíðan. Hún hefur það markmið að skapa umhverfi og aðstæður sem auka jöfnuð, heilsu og hamingju þannig að allir borgarbúar hafi tækifæri á að njóta lífsins í borg þar sem þeim finnst gott að búa í sátt og samlyndi. Áhersla er á forvarnir gegn hættu og vá en markið er sett hærra en að vera eingöngu laus við vandamál og hættu, og áhersla lögð á heilsueflingu þar sem markmiðið er góð heilsa og vellíðan allra borgarbúa.

    Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Svavar Jósefsson og Unnur Margrét Arnardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  38. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2021:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að þróa hugmyndir um aukna nýtingu Hagatorgs og skilgreina það sem torg í biðstöðu. Markmiðið sé að kanna tækifærin sem felast í því að hugsa Hagatorg sem fjölnota almenningsrými eða almenningsgarð sem taki einnig mið af nálægð þess við Melaskóla, Hagaskóla og nærliggjandi byggingar. Rýni á samgöngumálum og umferðaröryggi verði hluti af verkefninu með sérstakri áherslu á öruggar göngutengingar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að samþykkja að gera hringtorgið Hagatorg að torgi í biðstöðu. Markmiðið er að hugsa torgið sem fjölnota almenningsrými eða almenningsgarð sem taki mið af nálægð torgsins við Melaskóla, Hagaskóla og nærliggjandi byggingar. Rýni á samgöngumálum, umferðaröryggi með sérstakri áherslu á öruggar göngutengingar.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Hagatorg er með mikla sérstöðu sem stórt grænt rými í vesturborginni enda orðið fátt um fína drætti hvað varðar græn svæði í vesturborginni. Tækifæri kunna að felast í því að efla það sem almenningsrými. Bráðabirgðalausnir Samfylkingar og Viðreisnar í leikskólamálum samrýmast með engu móti þróun almenningsrýmis við Hagatorg.

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: 

    „Ég held að þau hljóti að hafa verið að reykja eitthvað mjög sterkt“ sagði Kári Stefánsson um ríkisstjórnina í viðtali við visir.is þann 3. maí sl. Sama held ég eigi við borgarstjóra og meirihlutann um áform að planta bráðabirgðaleikskóla á Hagatorg. Nú á að gera Hagatorg að „torgi í biðstöðu“. Það þýðir aðeins eitt, að þrengja á mjög að bílaumferð á þessu svæði. Fyrst var þrengt að bílaumferð með því að setja strætóstoppistöð við torgið sem var ólöglegt. Þá fundu upplýsingafulltrúarnir 10 upp á því að segja að Hagatorg væri ekki endilega hringtorg þó að það liggi í hring. Hagatorgshugmyndir borgarstjóra eru komnar í hringavitleysu og eingöngu til þess fallnar að ofbjóða borgarbúum. Það er gott. Það er ekkert grænt við þennan meirihluta og stefnan er að útrýma öllum grænum svæðum austan Höfðabakka. Ekki einasta að ráðist er inn á græn svæði í rótgrónum hverfum. Nú er stefnan meira að segja tekin á hringtorg borgarinnar. Hvað næst? Þurrka upp tjörnina?

    Fylgigögn

  39. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2021:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að ráðist verði í endurbætur á aðalvelli Þróttar og gerð á nýjum gervigrasvelli í Laugardal í samræmi við hjálagt bréf sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar til borgarstjóra, dags. 29. apríl sl. Þetta er í samræmi við samþykkt borgarráðs frá 18. febrúar sl. og niðurstöðu sameiginlegs starfshóps Reykjavíkurborgar, Þróttar og Ármanns. Fjármála- og áhættustýringarsviði verði falið að útbúa viðauka vegna breytinganna með tilfærslum innan gildandi áætlunar og leggja fyrir borgarráð til samþykktar.

    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Verið er að breyta fjárfestingaráætlun í kjölfar þess að borgarráð samþykkti endurbætur á aðalvelli Þróttar og gerð á nýjum gervigrasvelli í Laugardal. Þróttur er með eina fjölmennust knattspyrnudeild landsins og mikilvægt að búa vel að iðkendum með góðri aðstöðu. Þá röðuðust íþróttamannvirki í Laugardal efst á lista í forgangsröðun íþróttamannvirkja. Fjármála- og áhættustýringarsviði er því falið að útbúa viðauka vegna breytinganna með tilfærslum innan gildandi áætlunar og leggja fyrir borgarráð til samþykktar.

    Fylgigögn

  40. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að samkomulagi á milli Knattspyrnufélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar. Samkomulagið felur í sér uppbyggingu á lóð KR við Frostaskjól auk þátttöku borgarinnar í byggingu nýs fjölnota íþróttahúss á svæðinu með vísan til samþykktar borgarráðs þann 3. september 2020 um forgangsröðun íþróttamannvirkja sem höfð yrðu til hliðsjónar í fjárfestingaráætlun til ársins 2030.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Um er að ræða samkomulag milli borgarinnar og KR sem felur í sér uppbyggingu á lóð KR og þátttöku borgarinnar í byggingu nýs fjölnota íþróttahúss á svæðinu. KR er með fjölmenna knattspyrnudeild og mikilvægt að búa vel að iðkendum í Vesturbænum og nágrenni.

    Fylgigögn

  41. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Hjálagt erindisbréf stýrihóps um heildstæða innkaupastefnu er lagt fram til samþykktar. Óskað er eftir því að borgarráð skipi þrjá fulltrúa í stýrihópinn. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að móta heildstæða innkaupastefnu í víðum skilningi fyrir Reykjavíkurborg, sérstaklega með tilliti til græna plansins og loftslagsáætlunar Reykjavíkurborgar. 
    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað. 

  42. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að þrjár staðsetningar færanlegra leikskólaeininga vegna verkefnisins Brúum bilið verði settar í forgang, þar sem þörfin er talin mest. Þær staðsetningar sem um ræðir eru Nauthólsvegur 81, Vogabyggð 5 og Eggertsgata 35, sbr. hjálagða greinargerð starfshóps um skipulagslegar forsendur fyrir nýju leikskólahúsnæði á fimm stöðum í borginni, dags. 30. apríl sl.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. 

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Í lok apríl samþykkti borgarráð að fjölga leikskólaplássum með leigu á færanlegum einingum og leikskólarútum, til þess að mæta stórauknum fjölda barna í borginni, vistun yngri barna, minnkun gróðurhúsalofttegunda, ásamt því að mæta þörfum íbúa innan hverfis. Undir sama verkefni voru lagðar til fimm staðsetningar á nýjum leikskólum en nú er lagt til að setja þrjár þeirra í forgang. Um er að ræða Nauthólsveg 81, Vogabyggð 5 og Eggertsgötu 35.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: 

    Samfylkingin lofaði að 12 mánaða börn fengju leikskólapláss á kjörtímabilinu og það hefur verið svikið. Nú eru yfir 700 börn á biðlista. Þegar einungis 12 mánuðir eru til borgarstjórnarkosninga liggur ekki fyrir áætlun um hvernig eigi að efna þessi loforð. Nýjasta hugmyndin er að koma upp bráðabirgðahúsum og leikskólarútum. Þetta sýnir andvara- og getuleysi að standa ekki við gefin loforð. Fyrr á þessum fundi var samþykkt að efla Hagatorg sem almenningsrými, það stingur í stúf að leggja til að nýta það sem sérrými undir bráðabirgðaleikskóla.

    Fylgigögn

  43. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 18. maí 2021, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að taka þátt í fjármögnun á ljósverki eftir Ólaf Elíasson í turni Hallgrímskirkju. Hlutur borgarinnar verði 20 m.kr. á móti styrk ríkisins og annarra aðila, auk tekna af aðgangseyri. Vart þarf að nefna að list Ólafs Elíassonar er á heimsmælikvarða og tíðindi í sjálfu sér að verki sem endurvarpi regnboga sé fundinn staður í kirkju. Fáar staðsetningar slíks verks eru meira afgerandi en kirkjuturn Hallgrímskirkju og kallast verkið á áhugaverðan hátt á við regnbogalitina sem nú eru orðnir varanlegir neðst á Skólavörðustíg. Líkt og fram kemur í umsögnum Listasafns Reykjavíkur og menningar- og ferðamálasviðs er listrænt gildi verksins ótvírætt og talið að það muni enn frekar styrkja Hallgrímskirkjuturn og Skólavörðuholt sem áhugaverðan áfangastað borgarbúa og gesta borgarinnar. Heildarkostnaður er áætlaður 110 m.kr. Styrk borgarinnar verði deilt niður á þrjú ár og verður fjármagnaður af kostnaðarstað 09205, ófyrirséð. R21020076

    Samþykkt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hallgrímskirkja var reist á sínum tíma fyrir tilstuðlan Alþingis, Reykjavíkurborgar og Þjóðkirkjunnar. Hún hefur verið táknmynd Reykjavíkur frá því hún var reist og á undanförnum árum að einum vinsælasta ferðamannastað landsins en um 1-1.5 milljón ferðamanna heimsækja kirkjuna árlega. Táknmynd kirkjunnar og vinsældir hennar eru því ótvíræð. Hér er verið að samþykkja 20 m.kr. framlag borgarinnar til jafns við ríkið til þess að í turninum geti orðið til listaverk eftir hinn heimsþekkta listamann Ólaf Elíasson. Tilgangurinn með því er að styrkja Hallgrímskirkjuturn enn frekar sem áfangastað og setja hann í enn meira samhengi við nágrenni sitt með endurvarpi á regnboga úr kirkjuturninum.

    Fylgigögn

  44. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. apríl 2021, sem var samþykkt á fundi borgarráðs þann 29. apríl 2021 og færð í trúnaðarbók:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að í tilefni 10 ára afmælis tónlistarhússins Hörpu að Reykjavíkurborg, sem annar eigandinn, færi Hörpu að gjöf ásamt ríkinu sem meðeiganda, annars vegar nýjan flygil og hins vegar listaverkið Vindhörpu eftir Elínu Hansdóttur, í afmælisgjöf með þeim fyrirvara að ríkið samþykki að greiða helming á móti. Því yrði um sameiginlega afmælisgjöf ríkis og borgar að ræða. Áætlaður kostnaður við nýjan flygil er 25 m.kr. og við listaverkið Vindhörpu rúmar 30 m.kr. auk virðisaukaskatts og er hlutur Reykjavíkurborgar helmingur af því. Hlutur Reykjavíkurborgar er því um 30 m.kr. og er gert ráð fyrir kostnaðinum í fjárfestingaáætlun ársins.

    Greinargerð fylgdi tillögunni. R21040268

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Mikið er gott að vera góður og gefa gjafir þegar þær koma ekki úr eigin vasa. Að leggja til rúmlega 60 milljóna afmælisgjöf í tilefni þess að Harpa tónlistarhús eigi 10 ára afmæli er hrein ögrun við skattgreiðendur á landinu öllu. Eigendur hússins eru Reykjavíkurborg og ríkið sem hafa þurft að inna að hendi fleiri hundruð milljóna vegna vegna botnlauss tapreksturs á þessum 10 ára starfstíma hússins. Nær væri að gefa Hörpu þessar 60 milljónir í viðhald hússins sem ekki hefur verið sinnt á þessu árabili.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins lagði fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins:

    Harpa tónlistarhús á 10 ára afmæli. Harpa er í eigu borgarinnar og ríkisins. Lagt er til að borgarráð samþykki að færa Hörpu, ásamt ríkinu, veglega gjöf. Það þýðir að eigendur eiga að gefa sjálfum sér gjöf. Er ekki mjög líklegt að nágrannasveitarfélögin vilji líka gefa Hörpu gjöf, svona fyrir að fá að njóta Hörpu án endurgjalds? Hefur slíkri hugmynd verið skotið að þeim?

    Fylgigögn

  45. Lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. maí 2021, við framhaldsfyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um fjölda leigjenda og hlutfall ráðstöfunartekna, sbr. 82. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. apríl 2021. R20100012

    Fylgigögn

  46. Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. maí 2021, ásamt fylgiskjölum, við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Miðflokksins um minnisblað um tvær mismunandi uppgjörsaðferðir Orkuveitu Reykjavíkur, sbr. 84. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. apríl 2021. R21040130

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Hér birtist tilgangur B-hluta félaga Reykjavíkurborgar. Verið er að búa til langa armslengd kjörinna fulltrúa frá upplýsingum sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum. Það er algjörlega óásættanlegt og trúnaðarleyndin er óþolandi. Í þessu tilfelli er samkvæmt utanaðkomandi sérfræðingum um að ræða hátt í 100 milljarða mun á milli tveggja mismunandi uppgjörsaðferða, þ.e. samkvæmt kostnaðarverðsreglu og gangvirðisreglu Orkuveitu Reykjavíkur. Þegar borgarfulltrúi Miðflokksins vildi sannreyna þær upplýsingar með því að óska eftir minnisblaði sem útbúið var fyrir Orkuveituna af Deloitte var svarið að um væri að ræða „vinnugögn“ í skilningi upplýsingalaga. Því er hafnað. Þegar utanaðkomandi aðili er fenginn í greiningarvinnu í svo veigamiklu máli sem veltur á hátt í 100 milljörðum er ekki hægt að skýla sér á bak við undanþáguákvæði upplýsingalaga. Því er óskað á ný eftir minnisblaðinu sem Deloitte vann fyrir Orkuveituna.

    Fylgigögn

  47. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um framlengingu úrræðis um tímabundna breytingu á innheimtureglum, sbr. 39. lið fundargerðar borgarráðs frá 18. febrúar 2021. Einnig lögð fram umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 12. apríl 2021. R20030221
    Tillögunni er vísað frá. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Fylgigögn

  48. Lagðar fram fundargerðir aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks frá 15. og 29. apríl 2021. R21010023

    Fylgigögn

  49. Lagðar fram fundargerðir fjölmenningarráðs frá 12. apríl og 10. maí 2021. R21010020

    Fylgigögn

  50. Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 6. maí 2021. R21010004

    Fylgigögn

  51. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Árbæjar og Norðlingaholts frá 11. maí 2021. R21010024

    Fylgigögn

  52. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Breiðholts frá 3. maí 2021. R21010025

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 2. lið fundargerðarinnar:

    Fulltrúi Flokks fólksins fagnar þessari bókun og fagnar því yfirleitt að málefni tengd Arnarnesvegi komi loks inn á fund íbúaráðs Breiðholts. Í bókuninni er óskað eftir að farið sé í umhverfismat fyrir framkvæmd vegatengingar við Arnarnesveg. Fulltrúi Flokks fólksins bókaði síðast um málið í borgarstjórn að: „Fyrirhugaðar framkvæmdir við Arnarnesveg hafa verið kærðar. Hagur borgarinnar af þessari framkvæmd er lítill, en ókostir eru margir. Þúsundir fugla, þar á meðal lóur, hrossagaukar og spóar verpa á svæðinu og verulega er þrengt að fyrirhuguðum vetrargarði og framtíðarþróun hans er því í uppnámi. Byggja á framkvæmdina á 18 ára umhverfismati. Því er velt upp hvort fólk sem „dílar og vílar“ með þetta svæði hafi ekki séð það með eigin augum heldur skoði það aðeins á kortum. Fulltrúi Flokks fólksins hvetur sem flesta til að koma á staðinn og sjá hvernig landið liggur. Á sama tíma og þetta er að gerjast talar meirihlutinn um grænar áherslur, aukið gildi náttúruverndar og útivistar. Engu að síður er búið að kvitta upp á að setja hraðbraut þvert yfir Vatnsendahvarfið og ekki aðeins skaða lífríkið heldur er brautin einnig ofan í leiksvæði barna, skíðalyftunni og svo auðvitað væntanlegum vetrargarði.“

    Fylgigögn

  53. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Grafarvogs frá 5. maí 2021. R21010027

    Fylgigögn

  54. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis frá 6. maí 2021. R21010028

    Fylgigögn

  55. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Kjalarness frá 12. maí 2021. R21010029

    Fylgigögn

  56. Lögð fram fundargerð íbúaráðs Laugardals frá 10. maí 2021. R21010030

    Fylgigögn

  57. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 26. apríl 2021. R21010015

    Fylgigögn

  58. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 31 mál. R21050018

    Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun undir 22. lið yfirlitsins:

    Gott er að hafa tungur tvær. Hér er lagt fram álit borgarlögmanns um hæfilegt ábyrgðargjald Félagsbústaða hf. vegna eigandaábyrgðar Reykjavíkurborgar. Þar kemur fram að Félagsbústöðum hf. sé markaður skýr tilgangur og markmið og í samþykktum vísað til þess að félagið sé ekki rekið í hagnaðarskyni heldur að sinna félagslegri, lögbundinni þjónustu. Einnig kemur fram að þessi skýra afmörkun á hlutverki Félagsbústaða og framkvæmd á vegum félagsins er talin fullnægja skilyrðum 2. mgr. 59. gr. EES-samningsins og því ekki nauðsynlegt að leggja ábyrgðargjald á lán til Félagsbústaða. Í samþykktum segir að tilgangi félagsins um að starfa í þágu almannaheilla megi ekki breyta og í 5. gr. samþykktanna er kveðið á um að félagið skuli ekki rekið í hagnaðarskyni og í 7. gr. er arður ekki greiddur út til eiganda. Hér kemur það skýrt fram að Félagsbústaðir eru ekki fjárfestingafélag og á ekki fjárfestingaeignir. Því má ekki færa félagið á gangvirði inn í samstæðu Reykjavíkur eins og gert hefur verið. Á þessu minnisblaði má öllum vera ljóst að Félagsbústaðir eru og hafa verið færðir með röngum hætti inn í samstæðuna allt frá árinu 2014 og nemur froðan í bókhaldinu sem af því hefur skapast hátt í 60 milljarða.

    Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins á tvö mál á lista embættisafgreiðslna sem lagður er fyrir borgarráð. Um er að ræða fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um kostnað vegna ferða sviðsstjóra og stjórnenda þjónustu- og nýsköpunarsviðs sl. 4 ár og fyrirspurn um starfsánægjukönnun slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem kynnt var á síðasta borgarráðsfundi. Í þessu sambandi vill fulltrúi Flokks fólksins fara fram á að trúnaði verði aflétt af starfsmannakönnuninni. Sjálfsagt er að má út einhverjar persónugreinanlegar upplýsingar ef eru en mestu skiptir að gagn eins og þetta sé opið og gagnsætt. Að fela eða þagga vanlíðan, vandamál og jafnvel áreitni- og eineltismál sem eiga sér stað á vinnustöðum borgarinnar er ekki hagur neins. Vanlíðan og vandi sem birtist í þessari könnun verður ekki til á einni nóttu. Þarna hafa vandamál kraumað í mörg ár og hafa jafnvel verið hunsuð af yfirmönnum. Að stimpla könnun af þessu tagi sem trúnaðarmál viðheldur gömlum og úreltum viðhorfum um að ekki megi tala opinskátt um þessi mál. Nú í nýrri bylgju eru gerendur ofbeldis/eineltis margir hverjir að stíga fram og vilja taka ábyrgð. Meirihlutinn vill varla standa í vegi fyrir þessari þróun, hvað þá vera gerendameðvirkur.

    Fylgigögn

  59. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. R21050019

    Fylgigögn

  60. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Óskað er eftir upplýsingum um hversu margar breytingar hafa verið gerðar á hönnun gatnaframkvæmda í Gufunesi frá 2018 og hvers vegna. Þá er óskað skýringa á því hvers vegna eingöngu hafa verið aðlagaðar götur að Kukl og GN stúdíó en ekki Loftkastalanum. R21050218

    Vísað til meðferðar skipulags- og samgönguráðs.

    -    Kl. 12:45 víkur Eyþór Laxdal Arnalds af fundinum.

  61. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hversu margir sem leigja hjá Félagsbústöðum eða af Reykjavíkurborg greiða meira en 25% af ráðstöfunartekjum sínum í leigu? R20100012

    Vísað til umsagnar Félagsbústaða.

  62. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Mikill dráttur hefur orðið á að svara innliggjandi fyrirspurnum frá borgarfulltrúa Miðflokksins þrátt fyrir margítrekaðar áminningar um að svarfrestur væri löngu liðinn. Hvað veldur þessum drætti í stjórnsýslu Reykjavíkur? R21050219

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar.

  63. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Hvað hefur hlutdeildarlánaleið ríkisins skilað mörgum kaupsamningum til ungs fólks og fyrstu kaupenda í Reykjavík frá upphafi til þess dags sem fyrirspurninni er svarað? R21050220

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

  64. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Borgarfulltrúi Miðflokksins vildi sannreyna ábendingu frá utanaðkomandi sérfræðingum um að mismunandi uppgjörsaðferðir Orkuveitu Reykjavíkur myndu nema hátt í 100 milljörðum. Hér er átt við hvort gert er upp samkvæmt kostnaðarverðsreglu og gangvirðisreglu. Deloitte vann minnisblað fyrir Orkuveituna og var óskað eftir að minnisblaðið yrði sent borgarráðsfulltrúum. Því var hafnað á þeim grunni að um „vinnugögn“ væri að ræða í skilningi upplýsingalaga. Það stenst enga skoðun og er ósk borgarfulltrúa Miðflokksins lögð fram á ný að borgarráðsfulltrúar fái minnisblaðið sent. Upplýsingum má ekki halda frá kjörnum fulltrúum samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Borgarfulltrúi Miðflokksins gefur Orkuveitunni frest til 1. júní að verða við þessari beiðni. Að öðrum kosti verður málið sent sveitastjórnarráðuneytinu til úrskurðar. R21050225

  65. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvaða áhrif vaxtahækkun Seðlabanka Íslands, sem tilkynnt var þann 19. maí 2021 hefur á skuldastöðu og afborganir lána hjá Reykjavíkurborg. Svarið óskast sundurliðað milli A-hluta borgarsjóðs annars vegar og einstakra fyrirtækja Reykjavíkurborgar hins vegar. R21050226

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

  66. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvort stefnt sé að því að breyta gjaldskránni vegna akstursþjónustu fatlaðra og ef það á ekki að gera það hvaða rök standa að baki því að breyta ekki gjaldskránni. Það er mismunun að fötluðum einstaklingum sem eru tilneyddir að nota ferðaþjónustu fatlaðra sé gert að greiða hærra gjald en aðrir sem geta notað annarskonar samgönguleiðir. Í 29. gr. gjaldskrárinnar um akstursþjónustu kemur fram að sveitarfélögum er heimilt að innheimta gjald fyrir akstursþjónustu samkvæmt gjaldskrá sem sveitarstjórnir skulu setja og skal gjaldið vera sambærilegt gjaldi fyrir almenningssamgöngur á viðkomandi svæði. Hér segir að gjaldið skuli vera sambærilegt gjaldi fyrir almenningssamgöngur. Þarna er ekki um neitt val að ræða hjá sveitarfélögunum. Árskort eru seld með almennum hætti og ættu þar með að vera þau kjör sem öllum standa til boða. Þetta ætti þá að vera það gjald sem miðað er við, því ákvæðið er tengt við almenningssamgöngur. Í athugasemdunum sem fylgdu frumvarpinu sem varð að lögunum kemur fram að tilgangurinn með lagabreytingunni var að innleiða með efnislegum hætti 20. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Mikilvægust er 5. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í þessu samhengi sem kveður á um bann við hvers kyns mismun á grundvelli fötlunar, á öllum sviðum, alltaf alls staðar.  R21050227

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

  67. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu kaupir Reykjavíkurborg ekki skólavörur af Múlalundi, verndaðri vinnustofu SÍBS. Það er þrátt fyrir þá staðreynd að um 80% starfsmanna Múlalundar eru með lögheimili í Reykjavík. Í þrjú ár hefur Múlalundur reynt að ná borginni að samningaborðinu án árangurs. Þetta kemur fram í fréttum vikunnar. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um hverju þetta sætir. Þetta er ekki í neinum takti við áhuga flokkanna á atvinnumálum fatlaðra. Í lögum um opinber innkaup er skýr heimild í 18. gr. til að velja sérstaklega vörur frá vernduðum vinnustöðum. Í Múlalundi hefur fólk með skerta starfsorku starfað við að framleiða ýmis konar skrifstofuvörur um áratuga skeið. Vegna stafrænna umbreytinga hafa forsvarsmenn Múlalundar þurft að finna ný verkefni og eitt af þeim er að framleiða margskonar vörur fyrir skólakerfið, meðal annars plastvasa og möppur með lituðum kili og glærri forsíðu sem margir þekkja. Í stað þess að skipta við Múlalund hefur Reykjavíkurborg kosið að kaupa innfluttar skólavörur. Þetta er miður. Önnur sveitarfélög hafa sýnt allt önnur viðbrögð. Þessi starfsemi er fyrst og fremst velferðarmál enda er starfið afar félagslega og tilfinningalega mikilvægt. Verið er að skapa atvinnu svo þarna má slá tvær flugur í einu höggi. R21050228

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs, innkaupaskrifstofu.

  68. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að vita hvað þessi könnun um framtíð Reykjavíkurborgar kostaði borgarsjóð. Könnunin er sögð hluti af sviðsmyndagreiningu Reykjavíkurborgar og Deloitte um það hvernig borg Reykjavík verður árið 2035 með tilliti til efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. Þessi könnun er illa tímasett að mati Fulltrúa Flokks fólksins þar sem nú er aðeins eitt ár eftir að kjörtímabilinu. Ekki er vitað hvaða flokkar/hverjir munu vera við stjórnvölinn næstu ár og áherslur næsta meirihluta alls endis óþekktar. Ýmist gæti því þróun á innviðum og tækifærum borgarinnar staðið í stað, þokast lítillega fram á við eða tekið stórt skref í framþróun. Vöxtur og þróun borgarinnar vinnst ekki nema í samráði við fólkið í borginni enda þótt kjörinn meirihluti leiði vinnuna. Ef sífelldar deilur og uppákomur einkenna borgarbraginn tefur slíkt fyrir jákvæðri framtíðarþróun. R21050229

    Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

  69. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fram kom hjá fulltrúa meirihlutans í borgarstjórn í ræðu að „gríðarvirkt starf er hjá skólahljómsveitum fyrir börn í öllum hverfum borgarinnar en starfið sjálft er mjög skapandi og í sífelldri mótun og endurskoðun.“ Fulltrúi Flokks fólksins ætlar ekki að mótmæla því að starfið sé skapandi en dregur það í efa að það sé rétt að virkt starf sé hjá skólahljómsveitum fyrir börn í öllum hverfum borgarinnar. Fulltrúi Flokks fólksins spyr hvernig þetta sé mögulegt. Skólahljómsveitir eru 4 og hverfi eru 10. Fjórum hljómsveitum er því skipt niður á hverfin og dekkar ein hljómsveit um 3-4 hverfi. Af 15.500 nemendum þá stunda á sjötta hundrað nemendur nám í skólahljómsveitunum fjórum. Segja má að það sé útilokað að allir þeir nemendur sem þess óska, rúmist í þessum fjórum hljómsveitum. Í ljósi þessa vill fulltrúi Flokks fólksins fá upplýsingar um fjölda umsókna í skólahljómsveitir borgarinnar undanfarin 3 ár. Hversu lengi að meðaltali eru nemar í hljómsveitunum? Eru biðlistar og ef svo er í hvaða hljómsveitir og hvað eru þeir langir? Hefur þurft að neita barni um þátttöku í einhverja skólahljómsveit borgarinnar vegna þess að ekki er pláss ef horft er til síðastliðinna þriggja ára? R21050230

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

  70. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Það er erfitt að ná inn til borgarinnar í gegnum síma, ljóst er að þjónustuverið annar ekki símtölum og ekki er hægt að ætlast til að fólk hafi endalaust tíma til að bíða á línunni. Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um þjónustuverið, s.s. meðallengd biðtíma þeirra sem bíða eftir að ná sambandi sundurliðað eftir dögum og tíma árs. Einnig er óskað eftir upplýsingum um fjölda símtala á dag að meðaltali og fleira í sambandi við þjónustuverið, s.s. hvernig gengur að þjónusta þá sem hringja inn t.d. að tengja fólk við svið, deildir sem afgreitt geta erindi þeirra. R21050231

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

  71. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Flokkur fólksins var með fyrirspurnir í velferðarráði um niðurstöður greiningar á stöðu aldraðra kvenna og karla í heimahjúkrun í Reykjavík og hjúkrunarrýmum, vísað er í skjal þessu tengt. Segir í greiningunni að vinnubrögð Reykjavíkurborgar varðandi kynjuð fjármál séu til fyrirmyndar og að óskandi sé að önnur sveitarfélög tileinki sér þessa aðferðafræði. Spurt er: Um hvaða vinnubrögð og aðferðafræði er verið að ræða? Hvaða vinnubrögð eru til fyrirmyndar og hvar er þessi sérstaka aðferðafræði? Hvað er borgin að gera öðruvísi og betra í kynjuðum fjármálum og sem leiðir til bóta fyrir konur en önnur sveitarfélög? „Konur lýsa meiri þörfum en karlar“ en samt eru þær metnar með minni þörf en karlar sem vísar mögulega til þess að verið sé mismuna mati á þjónustuþörf eftir kynjum. Segir að vegna „vinnubragða/aðferðafræði eru kynjuð fjármál að bæta konum upp mismun“. Hvernig tengist þetta að „vegna vinnubragða eru kynjuð fjármál að bæta þeim þennan mismun“? Er verð að meina að „kynjuð fjárhagsáætlun“ bætir konum upp mismun á mati því að þær eru að fá meiri þjónustu (lýsa meiri þörfum) þótt þær séu metnar með minni þörf en karlar? Rétt er að konur eru fleiri í þessum aldurshópi og sannarlega hefur hallað á þær í samfélaginu en hvernig það tengist þessari greiningu og kynjuðum fjármálum er ekki skýrt. R21050232

    Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs.

  72. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Samþykkt um hundahald í Reykjavík er í endurskoðun á vegum umhverfis- og skipulagssviðs og Dýraþjónustu Reykjavíkur. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir því að fá afhent fyrirliggjandi drög að endurskoðaðri samþykkt og kynningu á henni á vettvangi borgarráðs. R21050233

    Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.

  73. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Fulltrúi Flokks fólksins óskar að vita hvað felst í þessari „allsherjar innleiðingu á fjarfundarbúnaði“. Einnig óskar borgarfulltrúi eftir upplýsingum um hvað verður um þann fjarfundarbúnað sem þjónustu- og nýsköpunarsvið og áður skrifstofa þjónustu og reksturs hefur verið að fjárfesta í undanfarin ár og fram hefur komið að sé til í stjórnsýsluhúsum borgarinnar. Er meiningin að kaupa nýjan fjarfundarbúnað til viðbótar við þann sem fyrir er eða verður þeim búnaði skipt út öllum? R21050181

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

  74. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins veit til þess að búið er að innleiða Microsoft Office 365 í allt skólaumhverfi borgarinnar. Þar er um að ræða svokölluð skólaleyfi sem hljóta að vera ódýrari en þau leyfi sem þarf að kaupa af Microsoft vegna innleiðingar Office 365 í skrifstofuumhverfi Reykjavíkurborgar. Í framhaldi af því spyr borgarfulltrúi Flokks fólksins um hversu mikill kostnaðarauki verður af þessari innleiðingu miðað við þann kostnað sem Reykjavíkurborg hefur verið að greiða Microsoft fyrir þann Office hugbúnað sem í notkun hefur verið árum saman í skrifstofuumhverfi borgarinnar. Einnig langar borgarfulltrúann að vita hvort borgin hafi nokkurn tíma kannað hvort hægt hefði verið fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að sameinast í leyfakaupum af Microsoft og jafnvel ná með því betri tilboðum vegna aukins fjölda leyfa sem yrði vegna slíks sameiginlegs útboðs. Hefur borgin kannað möguleika á sameiginlegu útboði til að fá betri samninga? R21050179

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

  75. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Borgarfulltrúi Flokks fólksins skilur að endurnýja þarf búnað sem kominn er til ára sinna og vill að leitað sé allra leiða til lausna svo framarlega sem hagræðing og sparnaður hljótist af því. En ekki er hægt að sjá neins staðar svo vel sé hvort hagræðing verði af þessu verkefni miðað við núverandi rekstrarkostnað og síðan árlegan kostnað við úthýsingu næstu árin. Hvaða aðrir möguleikar hefðu verið í stöðunni sem dæmi og eins hvort ekki væri hægt að taka verkefnin í skrefum. Það er eins og allt sé ónýtt og kaupa þurfi allt nýtt. Borgarfulltrúinn er ekki sérfræðingur í vélarsölum en spyr sig samt hvort minni salur gæti hýst gögn borgarinnar. 1. Er búið að reikna til enda hvort hagræðing verði af þessu verkefni miðað við núverandi rekstrarkostnað og svo árlegan kostnað við úthýsingu næstu árin? 2. Án þess að borgarfulltrúinn telji sig sérfræðing í rekstri vélasala, leikur honum forvitni á að vita hvort hægt hefði verið að halda gögnum borgarinnar hjá borginni en þá í nýrri og minni sal en þeir sem fyrir eru. R21050180

    Vísað til umsagnar þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

  76. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn: 

    Nýlega var stofnuð sérstök stoðdeild í Háaleitisskóla vegna móttöku barna hælisleitenda og erlendra barna með litla skólagöngu að baki. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá upplýsingar um hvernig gengur hjá hinni nýstofnuðu stoðdeild, meðal annars hvernig börnin eru að upplifa að stunda nám þar og hvernig samskipti þeirra eru innbyrðis. Spurt er hvort komið hafi upp erfið samskiptamál og eineltismál í barnahópnum og ef svo er hvernig tekið hefur verið á þeim. Í stoðdeildinni eru börn frá mörgum ólíkum menningarlöndum, með ólíkan lífstíl og tungumál. Hvað mörg börn hafa sest á skólabekk í stoðdeildinni og hversu mörg þeirra eru komin í almenna bekki? Hversu langur tími líður frá því að barn kemur til landsins og þar til það sest á skólabekk í stoðdeildinni? Hve langur er dvalartími barna í stoðdeildinni að meðaltali? Hvernig er eftirfylgni með börnum sem farin eru úr stoðdeildinni og eru komin út í almenna bekki? Öll þessi börn hafa búið við erfiðar aðstæður og mörg þeirra hafa orðið fyrir margskonar áföllum. Spurt er einnig um stuðning við kennara og starfsfólk og hvernig sé staðið við bakið á því til að styrkja það í starfi þeirra. Það er mikilvægt að hlúð sé vel að þessari deild. Úrræðið er til að milda fyrstu skref þessara barna í nýju landi, nýjum skólaaðstæðum þar sem þeim er mætt á eigin forsendum. Þess vegna skiptir máli að hverju einu og einasta barni sem kemur við í deildinni líði vel í skólanum þann tíma sem það dvelur þar og að starfsfólkið finni að það eigi vísan stuðning og styrk hjá skóla- og frístundasviði og borgarstjórn. R21050237

    Vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.

Fundi slitið klukkan 12:53

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir

Dóra Björt Guðjónsdóttir Hildur Björnsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
borgarrad_2005.pdf