Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 15. janúar, var haldinn 5809. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru Alexandra Briem, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Þór Helgason. Einnig sat fundinn áheyrnarfulltrúinn Helga Þórðardóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Dóra Björt Guðmundsdóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Ívar Vincent Smárason.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 15. janúar 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tilboð að nafnvirði 1.990 m.kr. í verðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVK 44 1 á ávöxtunarkröfunni 3,60% en það eru um 2.016 m.kr. að markaðsvirði og samþykki tilboð að nafnverði 811 m.kr. í óverðtryggðan skuldabréfaflokk borgarsjóðs RVKN 35 1 á ávöxtunarkröfunni 7,83% en það eru um 380 m.kr. að markaðsvirði. Ofangreind tillaga var tekin fyrir og samþykkt á fundi fjárstýringarhóps þann 14. janúar 2026.
Trúnaðarmerkt greinargerð fylgir tillögunni.
- Kl. 9:06 tekur borgarstjóri sæti á fundinum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Halldóra Káradóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010004
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. desember 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að framlengja vilyrði fyrir lóð á Ártúnshöfða vegna verkefnisins Re-inventing Cities, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Oddrúnu Helgu Oddsdóttur sem tekur sæti með rafrænum hætti. MSS22040238
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. janúar 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. janúar 2026 á tillögu götunafnanefndar um nafnabreytingu á Fífilsgötu sem verður Túnfífilsgata, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.- Kl. 9:14 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.
Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25110431
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. janúar 2026, þar sem lögð er fram til kynningar árshelmingsskýrsla Betri samgangna ohf., dags. desember 2025, um stöðu og framgang verkefna.
Davíð Þorláksson og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt borgarfulltrúanum Söru Björgu Sigurðardóttur sem tekur sæti með rafrænum hætti. MSS23070018
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 13. janúar 2026, þar sem lagðar eru fram til kynningar breytingar á fulltrúum Reykjavíkurborgar í starfshópi um skipulagsreglur Reykjavíkurflugvallar. MSS26010085
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 13. janúar 2026, þar sem erindisbréf starfshóps um hreystileikskóla er lagt fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS26010046
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 13. janúar 2026, þar sem erindisbréf starfshóps um leiksvæðastefnu fyrir alla aldurshópa er lagt fram til kynningar, ásamt fylgiskjölum. MSS26010059
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. janúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 04:30 til American Bar aðfaranótt mánudagsins 26. janúar nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS25120126Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. janúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 04:30 til Just Wingin It aðfaranótt mánudagsins 9. febrúar nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS26010070Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. janúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 04:30 til Keiluhallarinnar aðfaranótt mánudagsins 9. febrúar nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS25120121Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 6. janúar 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki að veita jákvæða umsögn um tímabundið áfengisleyfi með vísan til 2. mgr. 17. gr. l. nr. 85/2007, til kl. 04:30 til American Bar aðfaranótt mánudagsins 9. febrúar nk. Jákvæð umsögn borgarráðs er háð því að aðrar lögbundnar umsagnir séu einnig jákvæðar.
Samþykkt. MSS25120131Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 18. desember 2025. MSS25010008
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 29. september, 6. og 27. október og 24. nóvember 2025. MSS25010028
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir Strætó bs. frá 20. og 22. október, 5. og 14. nóvember og 12., 17. og 22. desember 2025. MSS25010029
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 14. janúar 2026.
5. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls sex mál (MSS26010028, MSS26010060, MSS24100050, MSS26010064, MSS25100046, MSS26010031). MSS25120150
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26010048
- Kl. 9:37 tekur Dóra Björt Guðjónsdóttir sæti á fundinum og aftengist fjarfundarbúnaði.
- Kl. 9:38 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum.Fylgigögn
-
Fram fer umræða um bruna í skemmu í eigu Reykjavíkurborgar í Gufunesi. MSS26010096
-
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 12. janúar 2026, þar sem lagt er fram til kynningar minnisblað borgarritara um tillögur Vöggustofunefndar og stöðuna á eftirfylgni þeirra, ásamt fylgiskjölum.
Borgarfulltrúarnir Andrea Jóhanna Helgadóttir, Ásta Þórdís Skjalddal, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Kjartan Magnússon, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og Stefán Pálsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26010077
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á skýrslu nefndar um heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins (upptökuheimili barna) 1974-1979.
- Kl. 10:46 tekur Róbert Marshall sæti á fundinum.
- Kl. 11:57 víkur Dóra Björt Guðjónsdóttir af fundi.Ellý Þorsteinsdóttir, Trausti Fannar Valsson og Urður Njarðvík taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt borgarfulltrúunum Andreu Jóhönnu Helgadóttur, Ástu Þórdísi Guðjónsdóttur Skjalddal, Einari Sveinbirni Guðmundssyni, Jóhönnu Dýrunni Jónsdóttur, Oktavíu Hrund Guðrúnar Jóns og Stefáni Pálssyni sem taka sæti með rafrænum hætti. MSS26010078
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Lagt er til að því sé beint til umhverfis- og skipulagssviðs að fjölga gangbrautum í Vogahverfi þá sérstaklega með tilliti til gönguleiða að leikskólanum í Naustavogi, að göngubrú Sæbrautar og að matvöruverslunum í hverfinu.
Frestað. MSS26010097
Fundi slitið kl. 12:05
Alexandra Briem Einar Þorsteinsson
Hildur Björnsdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Sanna Magdalena Mörtudottir Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 15.1.2026 - Prentvæn útgáfa