Vistkerfi nýsköpunar á Lækjartorgi

Gróðurhúsið - Nýsköpun 2024

Gróðurhúsið á Lækjartorgi verður vettvangur umræðu og kynninga nú í vikunni meðan nýsköpunarvikan Iceland Innovation Week stendur sem hæst. Dagskránni í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi á miðvikudag og fimmtudag er ætlað að sýna ýmsar hliðar nýsköpunar. Leitast verður við að svara hvað þarf til að nýsköpun vaxi og dafni í Reykjavík og hvernig nýsköpun getur tryggt lífsgæði íbúa nú og í framtíðinni. 

Í hvernig borg blómstrar nýsköpun?

„Við ætlum að draga fram hvernig vistkerfi nýsköpun blómstrar,“ segir Hulda Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri atvinnu- og borgarþróunar hjá Reykjavík. „Við horfum bæði inná við og fjöllum um hvað borgin geti gert í sínu starfi, en einnig horfum við að stóru myndina og hvernig umhverfi nýsköpunar þurfi að vera til að framsækin fyrirtæki og starfsemi geti þrifist sem best og skilað árangri í þágu íbúa.“ 

Fjölmargir örviðburðir sem gefa góða innsýn í nýsköpunarsenuna verða á dagskrá sem hefst formlega með opnum fundi starfræns ráðs Reykjavíkurborgar kl. 12 á miðvikudag og í kjölfarið gefst gestum kostur á að eiga samtal við borgarfulltrúa. Dagskráin í Gróðurhúsinu á Lækjartorgi  dagana 15.-16. maí er öllum opin. Húsið er opið kl. 10 – 16 báða dagana. Dagskráin er hluti af Iceland Innovation Week, en Reykjavíkurborg er bakhjarl hátíðarinnar. 

Dagskrá Reykjavíkurborgar í Gróðurhúsinu er fjölbreytt og á vef má sjá nánari upplýsingar.   

 

MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ, 2024  

12-12.30          Innri nýsköpun - opinn fundur stafræns ráðs 

12.30-13          Spjallað við stjórnmálafólk um nýsköpun og stafræn mál

13-13.30          Hringiða - Nýsköpun að öflugra hringrásarhagkerfi  

13.30-14          Snjallræði - Nýsköpun í þágu samfélagsins   

14-14.30         Borgarnáttúra í þágu velferðar – samstarfsverkefni 11 borga 

15-15.30          Hverfið mitt - hvernig er hægt að hafa áhrif í Reykjavík   
 

 

FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2024

12-12.30          Borgarskipulag og klasamyndun sem drifkraftur nýsköpunar

13-13.30          Fab Lab-smiðjan og sprotafyrirtækið SideWind   

14-14.30          Nýtt rannsókna- og nýsköpunarhús Háskólans í Reykjavík  

15-15.30          Samfélagstorg - hvernig lítur bókasafn framtíðarinnar út?  
  

Tengt efni: