Ekki er kennt í grunnskólum Reykjavíkur í dag, fimmtudaginn 15. maí, vegna boðaðrar vinnustöðvunar Félags grunnskólakennara.
Starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva við skólana verður óbreytt og geta börnin komið þar á venjubundnum tíma.
Félag grunnskólakennara hefur boðað vinnustöðvun dagana, 15., 21. og 27. maí hafi samningar ekki tekist.