Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar í Viðey aflýst

Friðarsúlan í Viðey

Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar í Viðey, sunnudaginn 9. október, hefur verið aflýst vegna veðurs.

Venju samkvæmt hefur verið haldin friðsæl athöfn við tendrun Friðarsúlunnar. Friðarsúlan er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið. Ljós Friðarsúlunnar verður eftir sem áður tendrað klukkan 20.00 á sunnudagskvöld, á fæðingardegi eiginmanns hennar, tónlistarmannsins John Lennons.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður gul viðvörun með norðan hvassviðri eða stormi (15-23 m/s) og vindhviður staðbundið yfir 30 m/s á Faxaflóa. Elding sem sér um ferjuferðir út í Viðey segir vindáttina mjög óhagstæða til siglinga yfir sundið og ferjuferðum því aflýst.  Þó veður geti virst ágætt skal öryggi ávallt haft í fyrirrúmi og því er þessi ákvörðun tekin í samráði við þá sem að viðburðinum koma auk Veðurstofu Íslands.

Fylgjast má með tendruninni í beinu streymi á heimasíðu IMAGINE PEACE TOWER . Þess má geta að í sjónvarpsþættinum Landanum sem verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins á sunnudagskvöldið 9. október verður fjallað um Friðarsúluna í Viðey. Þá mun Andrea Jónsdóttir, útvarpskona, fjalla um John Lennon í þætti sínum Pressan á Rás 2 og spila lagið Imagine klukkan 20.00 þegar kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey.

Hugsum okkur frið.