Víðavangshlaup ÍR 2019

Mannlíf

""

ÍR verður haldið í 104. sinn á sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl. 12. Hlaupið er 5 km götuhlaup sem einnig er Íslandsmótið í 5 km götuhlaupi og hluti af Powerade sumarhlauparöðinni.

Það má því búast við flestum af keppnishörðustu hlaupurunum á Íslandi sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn í vegalengdinni. Einnig er hægt að taka þátt í 2,7 km skemmtiskokki (án tímatöku) sem hentar vel yngstu hlaupagörpunum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppnishlaupum. Skemmtiskokkið er ræst 12:10 og er tilvalið fyrir fjölskyldur að sameinast þar og fagna komu sumarsins.

Hægt er að forskrá sig hér og verður opið til kl. 11 á hlaupdag en unnt er að skrá sig á hlaupsstað frá kl. 09:30 til kl. 11. Einnig er hægt að skrá sig í ÍR heimilinu í Skógarseli þann 24. apríl milli kl. 16:30 og 19:00 en þangað geta hlauparar sótt keppnisgögn sínn. Afhending gagna á hlaupadegi verða í Ráðhúsinu , á milli kl. 09:30 og 11:00 eða þar til 60 mínútum fyrir hlaup.

Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á keppnisstað og hafa hugfast að það getur tekið nokkurn tíma að leggja bílum í miðbænum. Bent er á bílastæði í Hörpunni eða að nýta sér þjónustu almenningsvagna. Kílómetrar og beygjur eru vel merktar með fánum og starfsmenn hlaupsins munu vakta helstu staði.

Árið 1916 var Víðavangshlaup ÍR haldið haldið í fyrsta sinn og þar með hófst sá íþróttaviðburður sem á sér lengsta samfellda sögu í íslenskri íþróttasögu. Það þótti við hæfi að halda hlaupið í miðbænum á sumardaginn fyrsta og síðan þá hefur hlaupið verið órjúfanlegur hluti af hátíðahöldum dagsins í Reykjavík. 

Skemmtiskokkið hefst í Lækjargötunni til móts við MR en endar á sama stað og 5 km. Það verður því stöðugur straumur hlaupara á öllum aldri og af öllum getustigum á þessari leið og gaman fyrir áhorfendur að fylgjast með og hvetja hlauparana til dáða.

Upplýsingar um lokanir gatna í Reykjavík er að finna hér