![""](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/myndir_frettir/frettamyndir_2014_febjuli/veturrammi.jpg?h=c9f93661&itok=re5M8I23)
Það verður vetrarfrí í grunnskólum Reykjavíkurborgar mánudaginn 25. febrúar og þriðjudaginn 26. febrúar. Að því tilefni verða ýmsir viðburðir fyrir alla fjölskylduna um og eftir helgi.
Fjölskyldan er hvött til að vera saman í vetrarfríinu og foreldrar/forráðamenn geta sótt ókeypis frístund og menningu séu þau í fylgd barna.
Skapandi smiðjur og samvera verður í öllum Borgarbókasöfnum. Það verður skipulögð dagskrá og frítt inn á sýningar safna borgarinnar og fjölbreytt frístundastarf í hverfum.