Vetrarfrí grunnskólum Reykjavíkur

Skóli og frístund

""

Það verður vetrarfrí í grunnskólum Reykjavíkurborgar mánudaginn 25. febrúar og þriðjudaginn 26. febrúar. Að því tilefni verða ýmsir viðburðir fyrir alla fjölskylduna um og eftir helgi.

Fjölskyldan er hvött til að vera saman í vetrarfríinu og foreldrar/forráðamenn geta sótt ókeypis frístund og menningu séu þau í fylgd barna.

Skapandi smiðjur og samvera verður í öllum Borgarbókasöfnum.  Það verður skipulögð dagskrá og frítt inn á sýningar safna borgarinnar og fjölbreytt frístundastarf í hverfum.

Dagskrá í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkur