Vaxandi tungumálaauður í skólum

Skóli og frístund

""

109 tungumál eru töluð í af börnum og ungmennum í skólum landsins og eru þau skráð á gagnvirku Íslandskorti sem aukið var í tilefni af Alþjóðadegi móðurmálsins 21. febrúar. 

Í tilefni Alþjóðadags móðurmálsins 21. febrúar 2021 var blásið til tungumálaleitar í skólum til að kortleggja tungumál töluð af börnum og unglingum á leik- og grunnskólaaldri og um leið stuðla að jákvæðri umræðu um tungumál og fjöltyngi.

Markmiðið er ekki síst að skapa námsmenningu þar sem börn og unglingar finna fyrir stolti yfir tungumálaauði sínum og að öll börn átti sig á mikilvægi tungumálsins fyrir sjálfsmynd og tilfinningalíf hvers og eins.

Á árinu 2021 voru skráð 93 tungumál sem börn og unglingar á Íslandi þekkja, sem er tveimur tungumálum fleira en þegar tungumálaforðinn var kortlagður árið 2014. Í ár komu hins vegar 14 ný tungumál í ljós, sem rötuðu ekki á kortið árið 2014. Því má segja að fjöldi tungumála í íslenskum leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi sé kominn upp í 109. Tungumálin er að finna á Íslandskorti tungumálanna

Þátttaka í kortlagningu tungumálanna var afar góð að þessu sinni en átakið hófst í janúar. Í fyrsta sinn tóku þátt stofnanir á vettvangi frítímans, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar.

Með því að fjalla um mikilvægi móðurmálsins og tungumála yfirleitt eru höfð í heiðri gildi Barnasáttmálans, Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, menntastefnu Reykjavíkurborgar ásamt drögum stjórnvalda að stefnu um menntun barna og ungmenna með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf árið 2020 út Leiðarvísi um stuðning við móðurmál og virkt fjöltyngi í skóla- og frístundastarfi. Hann geymir  iýmsar leiðir og verkefni til að styðja við tungumál í skóla- og frístundastarfi og heima fyrir, skilgreiningar hugtaka og gagnlegar slóðir með fróðleik.

Menntamiðja, Tungumálatorg, Menntavísindastofnun HÍ, Menningarmót – Fljúgandi teppi, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, og Móðurmál – samtök um tvítyngi stóðu í sameiningu að leitinni að tungumálum barna og unglingar árið 2021.

Sjá myndband með ávarpi Vigdísar Finnbogadóttur, velgjörðarsendiherra tungumála UNESCO.