Varanlegur regnbogi verður áfram á Skólavörðustíg

Borgarhönnun

Fyrsti regnboginn árið 2015. Ljósmynd/Gunnar Hersveinn
Regnboginn Skólavörðustíg 2015 - Gunnar Hersveinn

Regnbogi verður áfram á Skólavörðustíg og nú lagður með slitsterku efni. „Það er dásamlegt að regnboginn verði áfram á sínum stað til frambúðar enda kennitákn um mannréttindaborgina Reykjavík þar sem öll eru velkomin,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs.

„Þessi varði skiptir miklu máli í hugum og hjörtum okkar allra sem berjumst fyrir mannréttindum hinsegin fólks sem hefur átt undir högg að sækja. Kennitákn um hinseginleika og hinsegin baráttu á sannarlega heima í hjarta Reykjavíkur.“

    Kennitákn um hinseginleika og hinsegin baráttu á sannarlega heima í hjarta Reykjavíkur

    Dóra Björt Guðjónsdóttir

    Forhönnun Skólavörðustígs sem kynnt var 2021 verður nú aðlöguð að regnboganum og hann festir sig þar með í sessi í götumyndinni. Hinsegin samfélagið verður með í ráðum svo tryggt verði að táknmynd réttindabaráttu þess, regnboginn, eigi áfram veglegan sess á þessum stað. Þetta var samþykkt einróma í umhverfis- og skipulagsráði í morgun, 7. júní.

    Regnboginn á Skólavörðustíg hefur frá því hann var málaður fyrst á götuna árið 2015 orðið að einu sterkasta kennileiti miðborgarinnar og því mikils virði. Gestir og íbúar borgarinnar fara iðulega á þennan stað til að taka „sjálfur“.

    Borgarstjórn ákvað fyrst árið 2019 að regnboginn yrði áfram á Skólavörðustíg ef það hentaði eftir endurhönnun götunnar sem leit dagsins ljós 2021. Þá var ákveðið að skipa starfshóp um framtíðarsýn varðandi regnbogann. Hún liggur fyrir og tillaga um staðsetningu hefur verið samþykkt

    Þetta eru gleðifréttir fyrir allt hinsegin fólk á Íslandi

    Álfur Birkir Bjarnason

    Álfur Birkir Bjarnason formaður Samtakanna 78 fagnar þessu og segir: „Við hjá Samtökunum ‘78 fögnum því innilega að Reykjavíkurborg ætli að falla frá því að afmá regnbogann sem átti að vera ódauðlegur neðst á Skólavörðustíg. Þannig stendur borgin ekki bara við gefin loforð um varanlegan regnboga á þessum stað heldur staðfestir hún einnig að hún ætli að halda áfram að vera mannréttindaborg sem stendur við bakið á fjölbreytileika mannkyns. Þetta eru gleðifréttir fyrir allt hinsegin fólk á Íslandi og festir í sessi eitt mest sótta kennileiti Reykjavíkur."