Útileikjadagskrá í Árbæjarsafni

Íþróttir og útivist Mannlíf

Juliette Rowland
Pokahlaup í Árbæjarsafni á útileikjahátíð.

Um verslunarmannahelgina verður venju samkvæmt hvatt til útileikja á Árbæjarsafni. Dagskráin er ætluð krökkum, en hún er að sjálfsögðu opin öllum þeim sem ætla að njóta þess sem Reykjavík hefur upp á að bjóða, þessa mestu ferðahelgi ársins.

Bæði sunnudag og mánudag 31. júlí og 1. ágúst geta gestir til að mynda keppt í pokahlaupi, stígvélakasti, stultuhlaupi og reiptogi milli kl. 13-16.

Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur. Á gamaldags róluvelli eru rólur, vegasalt og sandkassi með leikföngum og á torgi eru skemmtilegu kassabílarnir.

Við mælum með að yngsta kynslóðin heimsæki sýninguna „Komdu að leika“ í safnhúsi sem kallast Landakot en þar er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkum er frjálst að leika sér með. Heitt á könnunni og nýbakað bakkelsi í kaffihúsi safnsins í Dillonshúsi.

Á safninu má einnig finna landnámshænurnar og í haga eru hestar, kindur og lömb. í Dillonshúsi er heitt á könnunni og heimabakað góðgæti. Hillur Krambúðarinnar eru stútfullar af sælgæti og í safnbúðinni fæst gómsætur ís.

Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Safnið er opið í allt sumar á milli kl. 10-17.