Úthlutunaráætlun fyrsta áfanga nýrrar byggðar í Skerjafirði samþykkt

Umhverfi Skipulagsmál

""

Úthlutunaráætlun fyrir norðurhluta skipulagssvæðisins í Skerjafirði var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun. Yfir 300 íbúðir á vegum húsnæðisfélaga í fyrsta áfanga

Svæðið sem um ræðir liggur að núverandi byggð í Skerjafirði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs og af öryggissvæði flugbrauta til norðurs og austurs.

Í rammaskipulagi svæðisins var lögð áhersla á vistvæna byggð sem tekur tillit til náttúru og nær- liggjandi byggðar. Rammaskipulagið sem var unnið af ASK arkitektum, EFLU og Landslagi fékk á dögunum verðlaun frá Skipulagsfræðingafélagi Íslands.  Í áliti dómnefndar segir m.a.: „Rammaskipulag Skerjafjarðar markar að nokkru leyti tímamót í gerð rammaskipulags hér á landi og eru skipulagshöfundar framsæknir í viðleitni sinni til að leggja áherslu á góða umgjörð fyrir fjölbreytilega flóru íbúa og lifandi samfélag.“

Á reitum 1-15 er gert ráð fyrir um 750 íbúðum, eða frá 16-88 íbúðum á reit. Íbúðagerðir eru fjölbreyttar; allt frá raðhúsum í nokkuð stór fjölbýlishús. Á þessum hluta er gert ráð fyrir einu bílageymsluhúsi í miðju hverfisins, þar sem einnig er gert ráð fyrir staðsetningu matvöruverslunar á jarðhæð ásamt annarri smásöluverslun og torgi.

Gert ráð fyrir 300 íbúðum á svæðinu


Á reitum 1-3
verða seldar minni lóðir með útboðsfyrirkomulagi á sama hátt og í Úlfarsárdal. Þarna gefst smærri aðilum færi á að fá áhugaverðar byggingarlóðir.

Reitur 4 verður seldur í heilu lagi. Það verkefni hentar stærri verktakafyrirtækjum sem hafa kallað eftir slíkum lóðum í sölu.

Reitur 5 fer undir verkefnið „Hagkvæmt húsnæði“ sem snýr að uppbyggingu á íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendum.

Reitur 6 var í rammaskipulagi tekinn undir skólahúsnæði en nú er skoðað að hafa skólann nær sjónum og yrði reitur 6 þá einnig settur á sölu til stærri uppbyggingaraðila eins og reitur 4.

Reitur 7 fer til Félagsstofnunar Stúdenta. FS hefur vilyrði fyrir 160 íbúðum og hefur lýst yfir áhuga á að byggja litlar 3ja herbergja íbúðir 70-80 m² brúttó.

Reitur 8 er bílastæðahús hverfisins þar sem gert er ráð fyrir matvöruverslun og/eða veitingahúsi á jarðhæð.

Reitur 9 fer til Bjargs íbúðafélags sem hefur fengið vilyrði fyrir 100 íbúðum í nýjum Skerjafirði.

Reitur 10 verður seldur til stærri þróunaraðila á sama hátt og reitur 4 og 6.

Gert er ráð fyrir að deiliskipulagsvinna verði á hendi borgarinnar, unnin af ASK arkitektum, með aðkomu þróunaraðilanna. Með því verður tryggt að skipulagsvinna geti unnist hratt og örugglega, ásamt því að tryggt er að götur, torg og græn svæði fá skilmerkilega umfjöllun í deiliskipulagi.

Greiningar og úttektir

Frá samþykki rammaskipulagsins hefur margskonar rýni- og rannsóknarvinna farið fram. Tilgangur rýnivinnunnar er annars vegar að draga fram í dagsljósið óvissuþætti sem myndu annars koma í ljós þegar framkvæmdir hefjast og hins vegar að tryggja að bestu mögulegu gögn séu til staðar fyrir þróunaraðila sem munu taka þátt í deiliskipulagsvinnu fyrir svæðið með Reykjavíkurborg.

Efla verkfræðistofa heldur utan um tæknilega ráðgjöf verkefnisins ásamt því að yfirfara útfærslu samgöngukerfa (gangandi, hjólandi, akandi), staðsetningu og fjölda bílastæða, aðgengi að bílastæðahúsum o.fl.

Skerjafjörður minnisblað