Unnið við sjóvarnir við Eiðsgranda og Ánanaust í sumar

Umhverfi

""

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við annan áfanga sjóvarnargarðs frá Eiðsgranda að Sorpu við Ánanaust.

 

  • Sjóvarnargarður tilbúinn við Eiðsgranda

  • Annar áfangi nær frá Ufsakletti að Sorpu

  • Nýr áningarstaður gerður í nágrenni við Ufsaklett

  • Göngustígurinn frá Keilugranda að Sorpu boðinn út í haust

 

Í vetur var unnið að því að breikka og hækka sjóvarnargarðinn frá skólpdælustöðinni við miðjan Eiðsgranda að Ánanaustum. Er þeim framkvæmdum lokið en eftir er að malbika nýjan göngustíg meðfram sjónum. Reiknað er með að sú framkvæmd verði boðin út í haust en áætlanir gera ráð fyrir að allur göngustígurinn, frá Keilugranda að Sorpu, verði malbikaður í einu ásamt nýjum áningarstað við Ufsaklett sem er vinsæll útsýnisstaður. Unnið er að hönnun göngustígs og áningarstaðs.

Á næstunni verður hins vegar ráðist í áframhaldandi endurgerð sjóvarnargarðsins frá hringtorgi við Eiðsgranda og Ánanaust út að Sorpu en þar hefur sjógangur valdið skemmdum á malbikuðum stíg.

Framkvæmdirnar felast í breikkun og hækkun garðsins en mikið mæðir á sjóvarnargarðinum þegar brim gerir og sjávarstaða er há.

Stórgrýti úr Landspítalalóð

Við framkvæmdirnar í vetur var notast við stórgrýti sem safnað hafði verið í garðinn við Ánanaust. Nú verður hins vegar notað efni sem kemur að hluta til úr framkvæmdum við uppbyggingu nýja Landspítalans við Hringbraut en einnig úr nálægum byggingarsvæðum við Ánanaust, Héðinsreit og Steindórsreit. Afgirta svæðið frá dælustöðinni við Eiðsgranda og að bensínstöðinni við Ánanaust verður notað sem lagersvæði fyrir stórgrýti sem notað verður við endurgerð sjóvarnargarðsins og er það ein ástæða þess að ekki er hægt að klára yfirborðsfrágang fyrsta áfanga.

Kaflinn sem var endurgerður í vetur var um 500 metrar að lengd en annar áfangi verður um 450 metrar að lengd. Verkið felst í því að núverandi hleðsla er tekin upp og henni endurraðað og bætt við stærra grjóti í hana eftir því sem við á. Sjóvarnargarðurinn er tvískiptur; fremri hluti hans er nær sjó og tekur við mestu ágjöfinni en aftari hluti garðsins er hærri og fjær sjónum og varnar því að sjór gangi á land.

Hugað að útsýni út á Faxaflóa

Hugað er að sjónlínum akandi út á sjávarflötinn sem og vegfarenda á göngustígum meðfram garðinum en svæðið er mjög vinsælt útivistarsvæði ásamt sandfjörunni við Eiðsgranda þar sem stigi liggur niður í fjöruna.

Á meðan þessum framkvæmdum stendur verður nýr hjólastígur meðfram Eiðsgranda einnig nýttur fyrir gangandi vegfarendur. Eru hjólandi vegfarendur vinsamlega beðnir um að sýna gangandi á þessum kafla tillit á meðan framkvæmdum stendur.  

Reiknað er með að framkvæmdum ljúki sumarið 2022 en þá verða, á þessum kafla frá Sorpu og að Seltjarnarnesi, tveir aðgreindir stígar; annarsvegar fyrir gangandi vegfarendur og hinsvegar fyrir hjólandi umferð.