Unnið í húsagötum í dag

Samgöngur Umhverfi

Unnið að því að ryðja göngustíga í Hólahverfi í Breiðholti í gær, sunnudag. Mynd/Róbert Reynisson
moksturstæki að störfum á göngustíg

Vetrarþjónusta Reykjavíkurborgar byrjaði það verk að ryðja húsagötur borgarinnar í gær og verður unnið áfram í þeim í þessari viku. Búast má við að hreinsun húsagatna taki fjóra til fimm daga. Alltaf er lögð áhersla á að vinna í öllum hverfum samhliða svo engin hverfi verði útundan.

Tekur fjóra til fimm daga

Þetta er mikið verk og búast má við því að hreinsun húsagatna taki fjóra til fimm daga. Göturnar sem verið er að ryðja eru samtals 1200 kílómetrar að lengd en það er hátt í allur hringvegurinn. Þar af eru húsagöturnar 240 kílómetrar sem er um það bil leiðin milli Reykjavíkur og Blönduóss.  Í stígakerfinu er síðan verið að snjóhreinsa í kringum 800 kílómetra sem er svipað og vegalengdin til Raufarhafnar.

Allt tiltækt lið Vetrarþjónustu borgarinnar var að störfum um helgina. Stofnbrautir eru færar og eru strætóleiðir í fyrsta forgangi hvað þjónustu varðar. Sumar stofnbrautir eru þröngar en það verður farið í að víkka þær út á næstunni.

Unnið í stígum um alla borg

Hvað stígana varðar er búið að taka eina umferð í þjónustuflokki eitt, en í þann flokk falla þeir samgöngustígar sem mest eru notaðir. Verið er að vinna í öðrum stígum samkvæmt forgangsröðun.

Þar sem hiti er í stígum hafa hitakerfi ekki ráðið við þennan mikla kulda og hefur þurft að hálkuverja þær leiðir og byrjaði sú vinna í gær og stendur áfram yfir í dag. Samkvæmt venju voru hjólastígar hálkuvarðir alla helgina og svo aftur nú í morgunsárið frá því um klukkan fjögur í nótt.

Salt og sandur fyrir íbúa

Hægt er að skoða forgangsröðun stíga og gatna á korti á upplýsingasíðu um snjómokstur og hálkuvarnir. Þar eru líka upplýsingar um hvar fólk getur nálgast salt og sand. Það er frost í kortunum næstu daga og fólk er hvatt til að huga að sínu nærumhverfi, moka tröppur, huga að gönguleiðum og þess háttar.