Ungum sem öldnum býðst að tefla netskák

Covid-19 Velferð

""

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og skóla- frístundasvið blása til sóknar í skákíþróttinni. Boðið verður upp á netskákmót bæði fyrir eldri borgara og nemendur í grunnskólum.

Netskák eldri borgara

Netskámót fyrir alla eldri borgara í Reykjavík verða nokkrum sinnum í viku meðan á samkomubanni stendur Hér eru nokkur einföld skref sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt;

  • Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
  • Gerast meðlimur í hópnum “Skákklúbbur eldri borgara” (https://www.chess.com/club/skakklubbur-eldri-borgara)
  • Skrá sig á mót, en það er hægt allt að 60 mínútum áður en mótin hefjast.
  • Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins á chess.com
  • Gott er að klára fyrstu tvö skrefin sem fyrst. Nota þarf venjulega borðtölvu eða fartölvu þar sem chess.com appið virkar ekki í mótum.

Dagskrá vikunnar 23. mars til 29. mars

Föstudagsmót kl. 14:00 https://www.chess.com/live#t=1166255

Laugardagsmót kl. 10:00 https://www.chess.com/live#r=173244

Netskák grunnskólanema

Það verður boðið upp á uppá netskákmót fyrir alla krakka á grunnskólaaldri nokkrum sinnum í viku á meðan aðrar íþróttir/tómstundir hjá nemendum liggja niðri.  Borgin hvetur nemendur til að taka þátt í þessum skákmótum.

Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt;

Dagskrá vikunnar 23. mars til 29. mars

Fimmtudagsmót 16:30-17:30: https://www.chess.com/live#r=173176

Laugardagsmót 11:00-12:00: https://www.chess.com/live#r=173177

Skólanetskákmót Íslands 29. mars 17:00  (með öllum skólum á landinu) leiðbeiningar hér:  https://www.chess.com/club/skolanetskak 

Gott er að klára fyrstu tvö skrefin sem fyrst. Mælum með að þið notið venjulega borðtölvu/fartölvu, chess.com appið virkar ekki í mótum.