Undirritun vegna samstarfs fyrir börn í viðkvæmri stöðu

Skóli og frístund Velferð

Aðilar sem skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu fyrir börn í viðkvæmri stöðu. Hópmynd í borgarstjórnarsal, Einar borgarstjóri í miðjunni

Skrifað var undir samstarfsyfirlýsingu í dag vegna barna í viðkvæmri stöðu í Reykjavík. Yfirlýsingin miðar að því að þróa áfram samvinnu á grundvelli laga og stefnu Reykjavíkurborgar til að tryggja umönnun og vernd barna gegn ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, skóla- og frístundaþjónusta og deild barna og fjölskyldna á miðstöðvum Reykjavíkurborgar, Barnaverndarþjónusta Reykjavíkur og framhaldsskólar í Reykjavík hafa ákveðið að vinna saman til að stuðla að farsæld fyrir börn sem eru í viðkvæmri stöðu.

Samstarfsyfirlýsing vegna barna í viðkvæmri stöðu undirrituð í borgarstjórnarsalnum.

Skrifað var undir samstarfsyfirlýsinguna í borgarstjórnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag.

Vel heppnuð fyrirmynd í Vestmannaeyjum

Aðdragandi samstarfsyfirlýsingar er vinna sem unnin var af ríki og Vestmannaeyjabæ árið 2020. Lengi hefur verið skortur á samstarfi milli stofnana ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að málefnum barna í viðkvæmri stöðu sem eru aðilar að ofbeldismálum, annars vegar þeirra sem beita ofbeldi og hinsvegar þeirra sem verða fyrir ofbeldi.

Í framhaldi af vel heppnaðri yfirlýsingu í Vestmannaeyjum var ákveðið að gera sambærilega tilraun með borgarhluta (Suðurmiðstöð, Breiðholt), bæjarfélagi (Mosfellsbær) og landshluta (Norðausturland). Samstarfsaðilar voru þeir sömu og nú, sveitarfélag með skólum, frístundastarfi, félagsþjónustu og barnavernd, sýslumaður, heilsugæsla og lögreglan. Samstarfsyfirlýsingin er í takt við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þar sem samstarfsaðilum ber að fylgjast með þörfum barna, bregðast við og koma á samstarfi.

Vinnustofur haldnar fyrir allar miðstöðvar borgarinnar

Mikill metnaður hefur verið lagður í að koma á samningi fyrir alla borgina og tóku á annað hundrað manns þátt í vinnustofu í Valsheimilinu í haust, þar sem málefnið „Börn í viðkvæmri stöðu“ var til umræðu. Sambærilegar vinnustofur verða haldnar fyrir allar miðstöðvarnar í Reykjavík. Markmið vinnustofanna er að auka líkur á farsæld barna með því að efla samvinnu aðila innan borgarhluta sem sinna þeim og sérstaklega aðila sem eiga snertiflöt við börn sem teljast vera í viðkvæmri stöðu vegna ýmiss konar ofbeldis og vanrækslu. 

Áhersla er lögð á samvinnu um almennar forvarnir og að tengja verkefnið við forvarnaráætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var fyrr á þessu ári.