Kynningarfundur fimmtudaginn 6. desember kl. 20 í leikskólabyggingu Dalskóla.
Reykjavíkurborg og Sýn hf hafa látið vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir um 1,3 hektara svæði á toppi Úlfarsfells þar sem fyrirhugað er að reisa 50 metra hátt fjarskiptamastur fyrir loftnet og tækniskýli með útsýnispalli.
Umrædd framkvæmd tryggir fullnægjandi útvarps- og fjarskiptaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og til að lágmarka sjónræn áhrif mannvirkja er lagt til að unnið verði með náttúruleg byggingarefni á þann hátt að mannvirkin falli sem best inn í landslagið og umhverfið.
Kynntar verða á fundinum tæknilegar forsendur verkefnisins og skipulagstillaga sem er í kynningarferli.
Fundurinn er haldinn í Leikskólabyggingu Dalskóla, Úlfarsbraut 118-120, 113 Reykjavík, fimmtudaginn 6. desember, kl. 20.
Allir velkomnir.
Tengill
Úlfarsfell kynning
Fundurinn er í leikskólabyggingu Dalskóla: