Tvö ljóslistaverk valin á Vetrarhátíð 2024

Menning og listir

Vetrarhátíð 2022, manneskja labbar framhjá ljósum í glugga í miðbænum.

Reykjavíkurborg og Veitur stóðu fyrir samkeppni um tvö ljóslistaverk í almannarými borgarinnar fyrir Vetrarhátíð 2024, í desember síðastliðnum. Dómnefnd hefur farið yfir innsendar tillögur og liggur niðurstaðan fyrir.

Verkin sem urðu fyrir valinu eru:  

Glitsteinar- verk eftir Katerina Blahutova, myndlistarkonu og Francesco Fabris, hljóðlistamann. 

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Verkið er ljósaskúlptúr sem kallar fram tengingar við veturinn og myrkrið, en líka við samband manns og náttúru. Manngerðir ísmolar úr meðhöndluðu plasti minna á fallvaltleika jökulíss og hlut mannsins í þeim breytingum sem eru að eiga sér stað í náttúrunni. Staðarval er forvitnilegt og mun verkið koma vegfarendum sem eiga leið hjá á óvart.“

Hafnar.haus Hringekja- verk eftir Owen Hindley, stafrænan myndlistarmann og Þorstein Eyfjörð, hljóðlistamann. 

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars: „Hugmyndin um að virkja samfélag skapandi listamanna í listamannareknum vinnustofum á Vetrarhátíð er opin og áhugaverð. Eins og hún er byggð upp býður hún upp á fjölbreytta nálgun ólíkra verka og sýnileika þess hóps sem starfar í Hafnarhaus um leið og vakin er athygli á óvenjulegu sjónarhorni í bæjarmyndinni.“

 

Markmið samkeppninnar var að virkja hugvit og nýsköpun sem styður við skapandi og lifandi borg. Listafólkið að baki verkunum hlýtur styrk upp á eina milljón króna fyrir hvort verk. Upphæðinni skal varið í framkvæmd verksins og þóknun til listafólksins.

Í dómnefndinni sátu Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður, Sesselja Jónasdóttir, verkefnastjóri List í ljósi og Markús Þór Andrésson, deildarstjóri Listasafns Reykjavíkur. Keppnisritari og trúnaðarmaður var Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg. 

Veitur og Reykjavíkurborg þakka öllum sem sendu inn tillögur og óska vinningshöfunum innilega til hamingju. Við hlökkum til Vetrarhátíðar 2024 dagana 1.-3. febrúar næstkomandi.