Tunnudreifing hafin í Háaleiti-Bústöðum

Sorphirða

Tvær tvískiptar tunnur fyrir matarleifa og blandaðan úrgang.

Byrjað er að dreifa nýjum tunnum fyrir sorphirðu í Háleiti-Bústöðum. Tunnum er úthlutað samkvæmt gerð húsnæðis og fjölda íbúa. Dreifing hefst í Endum og Grófum. Eftir það verður farið í Gerðin, Leiti og Mýrar, þá Löndin og endað í Vegum. Búist er við að dreifingin í hverfinu taki tæpar tvær vikur.

Þetta er síðasta hverfið þar sem verið er að koma á nýrri flokkun og þar með lýkur tunnuskiptum í Reykjavík, um mánuði á undan áætlun.

Hluti íbúa fær gráa tunnu fyrir plast

Hjá hluta íbúa í sérbýlum í hverfinu verða ekki notaðar grænar tunnur undir plast heldur verða gráar tunnur sem hafa verið sérstaklega merktar notaðar í staðinn. Það eru merkingarnar á tunnunum sem gilda og segja til um það hvaða úrgangsflokkur á að fara í tunnuna.

Hvernig fer þetta fram?

Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Tunnum fjölgar þar sem ekki voru endurvinnsluílát fyrir. Að lágmarki er hægt að hafa tvær tvískiptar tunnur í sérbýli með þremur eða færri íbúum.

Öll heimili fá jafnframt körfu og bréfpoka undir matarleifar sem dreift er samhliða tunnuskiptunum.

Nokkrir vinnuflokkar koma að verkinu. Tveir flokkar dreifa samhliða nýjum tunnum, körfum og bréfpokum. Því næst eru gömlu tunnurnar teknar til baka og síðast kemur teymi sem merkir eldri tunnur með nýjum samræmdum flokkunarmerkingum. Miðað er við að útskiptunum ljúki innan eins dags fyrir hvert heimili. 

Skylda að flokka í fjóra flokka við húsvegg

Skylt varð að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við húsvegg hjá heimilum með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023. Þetta er viðamikið umhverfismál en með réttri flokkun er hægt að minnka sóun og endurnýta verðmæti í stað þess að þeim sé hent.

Flokkað verður í eftirfarandi fjóra flokka við heimili:

  • Pappír og pappi
  • Plastumbúðir
  • Matarleifar
  • Blandaður úrgangur

Ef það verða frávik í dreifingu, þannig að tunnur vantar, eða fjöldi á körfum er rangur miðað við íbúðir vinsamlegast sendið póst á upplysingar@reykjavik.is eða hafið samband í síma 411 1111.