Trans Ísland fær styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen

Menning og listir Mannréttindi

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Trans Ísland styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Þetta er í 33. sinn sem veittur er styrkur úr sjóðnum og nemur styrkurinn 500 þúsund krónum. 

Trans Ísland fær styrkinn í ár fyrir  baráttu sína, stuðning og málsvörn fyrir transfólk á Íslandi. Félagið var stofnað árið 2007 og hefur síðan verið helsti málsvari transfólks á Íslandi.  Trans Ísland er ungt og framsækið félag sem hefur haldið uppi öflugri kynningar- og fræðslustarfsemi hér á landi auk þess að vekja athygli á alþjóðavettvangi fyrir árangur sinn.

Lagaleg staða transfólks á Íslandi hefur bæst til muna með nýjum lögum um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi á síðasta ári og lagði Trans Ísland sitt á vogarskálarnar við að gera lögin að veruleika. Lögin eru nauðsynlegt skref fram á við í mannréttindabaráttu hinsegin fólks, en enn eru óunnin verkefni hér á landi svo að allir megi njóta sömu réttinda. 

Transfólk er þolendur fordóma, ofsókna og ofbeldis á hverjum degi víða um heim m.a.s. hér á landi.  Trans Ísland gegnir gífurlega mikilvægu hlutverki við að vinna gegn slíkum fordómum í samfélaginu.

Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Tilgangur sjóðsins er að veita styrk til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála. Gunnar Thoroddsen var borgarstjóri í Reykjavík í tólf ár, frá árinu 1947 til ársins 1959. Eftir það var Gunnar þingmaður, fjármálaráðherra, sendiherra, hæstaréttardómari, prófessor við Háskóla Íslands, iðnaðar- og félagsmálaráðherra og loks forsætisráðherra til ársins 1983 auk þess sem hann gengdi fjölda nefndar og trúnaðarstarfa.