No translated content text
Búið er að úthluta úr viðburðarpotti Sumarborgarinnar fyrir miðborgina. Alls bárust 60 umsóknir en 37 fengu styrki fyrir að glæða borgina lífi í gegnum allt frá dansi, tónlist og gjörningum, yfir sirkus og fjölskyldudagskrá.
Sumarborgin auglýsti eftir umsóknum um styrki til verkefna sem stuðla að samstarfi borgar og aðila í miðborginni. Tilgangurinn er að gera þeim kleift að skipuleggja ýmsa viðburði og uppákomur sem hvetja borgarbúa og aðra landsmenn til að upplifa miðborgina og njóta alls þess sem hún hefur upp á að bjóða.
Helstu skilyrði fyrir styrkveitingu voru:
- Verkefnið skal glæða borgina lífi og varpa ljósi á fjölbreytileika miðborgarinnar.
- Verkefnið skal vera samstarfsverkefni hið minnsta tveggja aðila í miðborginni.
- Verkefnið skal fara fram á tímabilinu frá júní 2020 – ágúst 2020.
- Margir fái að njóta.
Alls bárust um 60 umsóknir þar sem sótt var um fyrir samtals 27.750.000 kr. Sumarborgin hafði til úthlutunar 10.780.000 kr. og veitti vilyrði fyrir 37 styrkjum fyrir þá upphæð.
Framkvæmdir tengdar húsnæði, innan- eða utanhúss, voru ekki styrktar eða markaðssetning einstaka reksturs. Ekki voru veittir styrkir vegna Menningarnætur. Bent er á að pottur Menningarnætur er núna opinn.
Eftirfarandi aðilar og fyrirtæki fengu styrk:
Viðburðapottur Sumarborgarinnar 2020 |
|
|
Umsækjandi |
Verkefni |
Úthlutun kr. |
Fimm plötuverslanir í samstarfi við Tónlistarborgina |
Tónlistardagskrá,Lucky Records, Reykjavík Record Shop, Smekkleysa, 12 tónar, Geisladiskabúð Valda og Tónlistarborgin |
1,000,000 |
12 tónar og listamenn |
Tónleikar undir trénu/Tónleikaröð á föstudögum í allt sumar |
500,000 |
Götubiti ehf |
Götubitahátíð á Miðbakka |
500,000 |
Hönnunarmars |
Tóm rými í miðborginni nýtt sem sýningargluggar |
500,000 |
Reykjavík Fringe festival og Menningarfélagið HneyksList |
Reykjavík Fringe Festival |
500,000 |
Lucy Records og Hlemmur mathöll |
Síðdegistónleikar við Hlemm mathöll |
500,000 |
Nýló ofl rekstraaðilar í myndlist í miðborg |
Góðir fimmtudagar |
400,000 |
Vonarstræti og Vínstúkan 10 sopar |
Viðburðaröð - þegar bílarnir fara er sviðið okkar |
350,000 |
Ásrún Magnúsdóttir og samstarfsaðilar |
Hótelgjörningur |
350,000 |
Tjarnarbíó og Juan pictures |
Myndskreyting á Tjarnarbíó |
330,000 |
Vínstúkan, Sumac og Public House |
Jónsmessuhátíð á Laugavegi |
300,000 |
Kling og Bang, Marshall, Nýló ofl |
Útíhátíð við Marshall húsið |
300,000 |
Sirkus Ananas |
Glappakast - Sirkussýningar fyrir börn í Hljómskálagarðinum |
300,000 |
10 ljóðskáld í samvinnu við gallerí |
Myndmál |
300,000 |
Helga Mogensen/Kirsuberjatréð |
Portmarkaður - Kirsuberjatréð |
300,000 |
Dillon og Chuck Norris |
Sirkus sýningar í portinu i júní |
250,000 |
Hlemmur mathöll |
Fjölskyldudagskrá í sumar |
250,000 |
Grandi mathöll |
Fjölskyldudagskrá í sumar |
250,000 |
Sæta svínið og Fjallkonan |
Tivolí dagar |
250,000 |
Hannesarholt og listamenn |
Tónleikar og syngjum saman |
250,000 |
Gallerí port, Bravo og Macland |
Vinnustofa og tónlist |
250,000 |
Götubiti ehf |
Karnival á Klambratúni |
250,000 |
Atli Bender + listamenn |
Doctor Comicus myndasögusýning |
250,000 |
Aurora Hunters og Iurie FineArt |
Ljósmyndasýning á Skólavörðustíg |
250,000 |
Tveir heimar |
Qigong fyrir alla á Klambratúni |
250,000 |
Kore og Hjólabrettaskóli Reykjavíkur |
Slides and grinds keppni |
200,000 |
Röntgen, Gamla bío og Bardús |
Innipúkinn - útisvæði |
200,000 |
Allir hjóla |
Allskonar hjól fyrir alla til að njóta og upplifa |
200,000 |
Andrými og skógr félag Rvk |
Grasnytjar |
200,000 |
Pera óperukollektív, MATR og Norræna húsið |
Söngljóðasúpa í Norræna húsinu |
200,000 |
Sandra Sano |
Dans Afrika |
200,000 |
Unnur María |
Húllahringjagerðarsmiðjur |
200,000 |
Dansskóli Brynju Pé |
Partýtímar á Ingólfstorgi |
120,000 |
Rekstaraðilar á Laugavegur 2 |
Sumardagskrá |
100,000 |
Vínstúkan, Búkalú og fl. samstarfsaðilar |
Portkonu Kabaret |
100,000 |
Dansskóli Brynju Pé |
Wacking hátíð á Skólavörðustíg |
80,000 |
12 tónar og listamenn |
Laugardagsmarkaður |
50,000 |
|
|
10,780,000 |
Markmið Sumarborgarverkefnisins er meðal annars að efla og kynna miðborgina sem sjálfstæðan áfangastað og styðja þannig við fyrirtæki; verslun, veitingastaði og aðra þjónustu á svæðinu. Mannlíf og menning er efld með margvíslegum hætti auk viðburða eins og með endurhönnun borgarrýma, hreinsun og umhirðu.
Hægt er að fylgjast með því sem er um að vera í borginni á nýjum viðburðavef.