Tónleikar á torgum

Skóli og frístund Menning og listir

""

Blásarasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands mun flytja létta og leikandi tónlist fyrir leikskólabörn á ferð sinni um borgina í dag, miðvikudaginn 26. og á morgun, fimmtudaginn 27. ágúst.

Dagskráin varir í u.þ.b. 20-25 mínútur og er hlaðin okkar uppáhaldslögum og uppáhaldslögum leikskólabarna. Kynnar á viðburðunum eru Hjördís Ástráðsdóttir og Steinunn Arinbjarnardóttir.

Öllum er velkomið að hlýða á tónleikana sem eru haldnir undir berum himni og gaman að sem flestir mæti.

Miðvikudagur 26.08

  • kl. 11:00 Klambratún
  • kl. 11:00 v. Leikskólann Jörfa/Breiðagerðisskóla

Fimmtudagur 27.08

  • kl. 10:00 Árbæjarsafn
  • kl. 10:00 við Grafarvogskirkju
  • kl. 11:00 Gerðuberg (torg við aðalinngang)
  • kl. 11:00 Dalskóli