Tímabundinn dvalarstaður fyrir flóttafólk

Skipulagsmál

Loftmynd af Laufásvegi.

Ríkið mun leigja í tvö ár bakhús á lóð nr. 19 og hús á lóð nr. 21-23 á Laufásvegi og verða húsin nýtt sem tímabundin heimili fyrir flóttafólk. Vinnumálastofnun sér um reksturinn og sendi byggingarleyfisumsókn til byggingarfulltrúa sem var grenndarkynnt fyrir nágrönnum.

Kynnt fyrir íbúum í nágrenni

Að lokinni grenndarkynningu til íbúa í nágrenni húsanna sem áður hýstu sendiráð Bandaríkjanna, var erindið lagt fram í umhverfis- og skipulagsráði þann 22. febrúar og athugasemdir íbúa kynntar. Í svörum skipulagsfulltrúa kemur meðal annars fram að:

  • Um er að ræða íbúðarhúsnæði sem verður tímabundinn dvalarstaður umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi á meðan þau bíða úrlausna umsóknar sinnar hjá íslenskum stjórnvöldum.
  • Um er að ræða húsnæði sem mætti líkja við námsmannaíbúðir, þar sem íbúar deila með sér eldhúsi og setustofum, í þessu tilviki fólk sem hefur sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi.
  • Starfsmaður á vegum Vinnumálastofnunar verður til taks fyrir íbúa sem einnig verður tengiliður íbúa við aðra starfsmenn stofnunarinnar og hlutaðeigandi aðila utan húsnæðisins.
  • Umrædd áform samræmast meginmarkmiðum Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 í húsnæðismálum og um landnotkun á svæðum íbúðarbyggðar og einnig þeim sérákvæðum sem gilda um landnotkunarflokkinn. Í markmiðum um íbúðarbyggð kemur fram að leitast „verði við að tryggja fjölbreytt framboð húsagerða og búsetukosta fyrir alla félagshópa.
  • Skilgreining íbúðarbyggðar í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 er í grunninn víðfeðm og heimilar húsnæðislausnir og úrræði fyrir alla félagshópa, auk þess sem almenn samfélagsþjónusta er heimil og önnur þrifaleg atvinnustarfsemi.
  • Nýir íbúar hússins munu flytja þangað á þeim tíma sem telst vera dagvinnutími. Utan þess tíma er ekki gert ráð fyrir að umgangur verði meiri en almennt gildir um íbúðir.
  • Rútur hafa ekki heimild til þess að keyra um svæðið svo þær verða ekki notaðar til þess að koma með fólk eða sækja það.
  • Gert er ráð fyrir að hýsa allt að 80 einstaklinga hverju sinni að því gefnu að öllum kröfum um aðbúnað, heilbrigði og hollustuhætti sé fylgt, með tilliti til brunavarna hefur slökkviliðið metið svo að húsnæðið geti hýst allt að 85 manneskjur.
  • Gert er ráð fyrir að meðal dvalartími fólks verði 6 mánuðir.
  • Breyting á notkun húsnæðis að Laufásvegi 19, 21-23 er í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2040.

Samkvæmt mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar viðurkennir borgin rétt sérhverrar manneskju til að búa í heilnæmu umhverfi sem fólki og lífríki stendur ekki ógn af. 

Hvað gerist næst?

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti einróma að erindið yrði sent til afgreiðslu byggingarfulltrúa með þeim skilyrðum sem eru talin eru upp í umsögn skipulagsfulltrúa. Einnig er lagt er til að byggingarfulltrúi óski eftir aðkomu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um útfærslu á húsnæðinu áður en byggingarleyfi er samþykkt og um úttekt á því áður en íbúar flytja þar inn.