Tilvalið að hvíla bílinn á morgun

Samgöngur Umhverfi

""

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs verður líklega töluverður í borginni á morgun, 2. nóvember. Besta ráðið til að draga úr mengun er að hreyfa ekki bílinn.

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) er hár í borginni í dag, fyrsta dag nóvembermánaðar eins og í gær samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Köfnunarefnisdíoxíðmengunin í borginni kemur frá útblæstri bifreiða og er mikil á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg.

Líklegt er að svipuð staða verði uppi á morgun 2. nóvember og af þeim sökum vill Reykjavíkurborg hvetja borgarbúa og alla sem geta breytt út af vananum til að hvíla bílinn  á morgun. Tilvalið er að kynna sér strætóleiðir í kvöld eða ganga eða hjóla til og frá áfangastaða.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra. Búast má við svipuðum veðuraðstæðum næstu daga.

Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndunarvegi. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum ættu að hvetja samborgara sína til að láta bílinn vera á morgun. Annars þarf fólk að forðast útivist og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs og annarra mengandi efna á http://reykjavik.is/thjonusta/loftgaedi-i-reykjavik. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Önnur loftgæðafarstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsett í nágrenni Egilshallar við gatnamótin Fossaleyni/Víkurvegur. Verið er að uppfæra svifrykstæki í hinn farstöðinni og hún því ekki í gangi.