Þorsteinn Gunnarsson ráðinn borgarritari

Stjórnsýsla

""

Borgarráð samþykki á fundi sínum í dag að ráða Þorstein Gunnarsson í starf borgarritara Reykjavíkurborgar. Þorsteinn var metinn hæfastur allra umsækjenda af ráðgefandi hæfnisnefnd sem skipuð var af borgarráði í febrúar 2020.

Þorsteinn er með MPM gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Þorsteinn hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu á sveitarstjórnarstigi. Hann gegndi starfi upplýsinga- og þróunarfulltrúa Grindavíkur um fjögurra ára skeið þar sem hann hafði umsjón með innra og ytra kynningar- og upplýsingastarfi, markaðsstarfi, áætlanagerð og fleiru. Þá gegndi hann starfi sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs hjá Grindavík í þrjú ár þar sem hann bar ábyrgð á íþrótta-, frístunda- og menningarmálum sveitarfélagsins.

Undanfarin fjögur ár hefur Þorsteinn starfað sem sveitarstjóri Skútustaðahrepps og hlotið umfangsmikla reynslu af öllum verkefnum sveitastjórnarstigsins, m.a. á sviði stjórnsýslu, skipulagsmála og umhverfismála. Áður starfaði Þorsteinn meðal annars sem íþróttafrétta- og dagskrárgerðamaður hjá 365 miðlum í átta ár, framkvæmdastjóri ÍBV og upplýsingafulltrúi Vinnslustöðvarinnar, kennari og blaðamaður. Þorsteinn hefur gegnt ýmsum stjórnarstörfum í íþróttahreyfingunni og er í dag aðalmaður í stjórn KSÍ. Hann hefur einnig verið í stjórn ferðamálasamtaka Reykjaness og í stjórn Reykjaness jarðvangs.

Borgarritari er æðsti embættismaður borgarinnar að undanskildum borgarstjóra og einn af staðgenglum hans. Borgarritari hefur yfirumsjón með miðlægri stjórnsýslu og stoðþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar og er tengiliður Reykjavíkurborgar við byggðasamlög og B-hluta félög. 

Starf borgarritara var auglýst laust til umsóknar þann 15. febrúar sl. og var umsóknarfrestur framlengdur til 16.mars. Átján umsóknir bárust um starfið. Í hæfnisnefnd voru Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, sem jafnframt var formaður, Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítala og Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands. Ráðgjafarfyrirtækið Intellecta sinnti utanumhaldi og stuðningi við hæfnisnefndina.