Sundlaugum, íþróttamiðstöðvum og skíðasvæðum lokað

Covid-19 Íþróttir og útivist

""

Sundlaugum, íþróttamiðstöðvum og skíðasvæðum og lokað eftir hertari reglur um samkomur

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu.  Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður.  Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.

Sundlaugar og íþróttamiðstöðvar loka

Sundlaugar borgarinnar verða lokaðar frá og með morgundeginum 24. mars. Tekið skal fram að öll 6 og 12 mánaða kort verða framlengd um þann tíma sem laugarnar eru lokaðar.

Fjölskyldu og húsdýragarðurinn lokar einnig, Ylströndin verður áfram lokuð sem og Skautahöllin.

Þá hefur skíðasvæðum á höfuðborgarsvæðinu verið lokað vegna faraldursins. Það á bæði við um Bláfjöll, Skálafell og einstakar skíðalyftur í hverfum.

Skólar og leikskólar verða áfram opnir en þeir foreldrar eða forráðamenn sem af einhverjum ástæðum senda ekki börn sín í skólann þurfa að tilkynna það líkt og um skólaleyfi væri að ræða og taka um leið yfir ábyrgð á heimanámi barna sinna.

Önnur þjónusta sveitarfélaganna mun áfram haldast órofin eins og kostur er.