Sundlaugar í Reykjavík lokaðar vegna bilunar í Nesjavallavirkjun

Séð yfir Reykjavíkursvæði úr lofti

Vegna bilunar í Nesjavallavirkjun Orku Náttúrunnar er nú skert flæði á heitu vatni til höfuðborgarsvæðisins. Vegna þessa hefur Reykjavíkurborg lokað öllum sínum átta sundlaugum og óljóst er hvenær hægt verður að opna þær aftur.  

Hluti þeirra véla sem sjá um framleiðsluna í Nesjavallavirkjun eru komnar aftur af stað en virkjunin er ekki á fullum afköstum. Vegna þessa biðja Veitur sem dreifa vatninu til íbúa á höfuðborgarsvæðinu, fólk um að fara sparlega með heita vatnið á meðan á viðgerð stendur.  

Veitur höfðu samband við sína stærstu viðskiptavini með ósk um að heitavatnsnotkun yrði lágmörkuð eins mikið og hægt er til setja heimili og viðkvæma starfsemi í forgang. Reykjavíkurborg hefur orðið við þeirri beiðni og hefur sundlaugum því verið lokað og gervigrasvellir stilltir á lægstu stillingu.