Sumarlokanir á Borgarbókasafninu

Menning og listir

Bókasafn, ungur maður situr á mjúkum bás og les, kona snýr baki í áhorfanda og gengur framhjá

Öll átta söfn Borgarbókasafnsins skiptast á að vera lokuð í sumar, en þetta er gert til að mæta hagræðingarkröfu Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024. Búast má við skerðingu á þjónustu við notendur safnsins vegna þessa.

Notendur eru hvattir til að skila bókum í þau söfn sem eru opin hverju sinni, en ekki reiknast sektir á safnefni sem tilheyrir sérhverju safni á meðan það er lokað. Á vef Borgarbókasafnsins má nálgast nánari upplýsingar um sumarlokanirnar. 

Sumarlokanir Borgarbókasafnsins eru sem hér segir:

15. júní – 7. júlí: Lokað í Sólheimum
1. júlí – 14. ágúst: Lokað í Klébergi
6. júlí – 28. júlí: Lokað í Gerðubergi, Gróf og Spöng
27. júlí – 18. ágúst: Lokað í Árbæ, Kringlu og Úlfarsárdal

Upplýsingar á vef Borgarbókasafnsins: 

Á íslensku
Á ensku

Texti sem sýnir sumarlokanir Borgarbókasafns 2024, hvítur texti á bláum grunni