Styrkir úr borgarsjóði 2019
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2020.
Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
félags- og velferðarmála
skóla- og frístundamála
íþrótta- og æskulýðsmála
mannréttindamála
menningarmála
Umsókn skal berast ekki síðar en kl. 12:00 á hádegi þann 1. október 2019. Nánari upplýsingar: styrkir úr borgarsjóði