Starfsemi Hjallastefnunnar í Reykjavík flyst tímabundið í Skógarhlíð

Skóli og frístund

Börn í sandkassa og með bolta

Skólastarf Barnaskólans í Reykjavík og leikskólans Öskju flyst tímabundið í Skógarhlíð og hefst skólastarf þar að loknum sumarleyfum. Foreldrar barna í Öskju fá undanþágu á uppsagnarfresti á samningi við aðra leikskóla borgarinnar kjósi þeir að börnin haldi áfram dvöl sinni þar.

Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt nýtt rekstrarleyfi fyrir Öskju að Skógarhlíð 6, og jafnframt auka fjárveiting fyrir framkvæmdir við breytingar á húsnæðinu við Skógarhlíð þangað sem starfsemi leikskólans og Barnaskólans í Reykjavík flytur í ágúst. Áætlað er að skólastarfið verði í Skógarhlíð þar til haustið 2023 þegar flutt verður í framtíðarskólahúsnæði.

Húsnæðisvandi leystur og leikskólaplássum fjölgað

Þetta er í samræmi samstarfsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Hjallastefnunnar sem samþykkt var í borgarráði í maí s.l. Með þessu er búið að leysa húsnæðisvanda grunnskóla og leikskóla Hjallastefnunnar sem áður voru til húsa við Nauthólsveg. Með flutningi í Skógarhlíðina verður einnig hægt að fjölga leikskólaplássum sem í boði verða hjá Öskju um tuttugu.

Foreldrar hvattir til að segja upp öðrum dvalarsamningum

Á óvissutíma með húsnæðismál Öskju sóttu margir foreldrar um og fengu pláss fyrir börn sín í borgarreknum leikskólum. Til að tryggja að börnin geti nú haldið áfram dvöl hjá Öskju samþykkti borgarráð í gær undanþágu frá eins mánaðar uppsagnarfresti á dvalarsamningi. Þannig er mælst til að foreldrar sem voru áður með börn í Öskju og hafa skrifað undir dvalarsamninga við aðra leikskóla segi þeim upp sem allra fyrst eða eigi síðar en 2. ágúst næstkomandi kjósi þeir að vera áfram með börn sín í leikskólanum Öskju.