Skrifað undir nýja kjarasamninga við Sameyki

Atvinnumál

""

Verkfalli aflýst vegna þess að Sameyki skrifaði undir nýja kjarasamninga við Reykjavíkurborg í nótt. 

Verkfalli starfsfólks Reykjavíkurborgar sem eiga aðild að verkalýðsfélaginu Sameyki sem hófst á miðnætti var aflýst í morgun vegna þess að skrifað var undir nýja kjarasamninga við Reykjavíkurborg í nótt.

Á heimasíðu Sameykis eru samningarnir kynntir sem tímamótasamningar að mörgu leyti þar sem tekist hafi að fá í gegn styttingu vinnuvikunnar sem lengi hafi verið baráttumál.

Samkvæmt heimasíðu Sameykis verða samningarnir kynntir félagsfólki á næstu dögum og bornir undir atkvæði.