No translated content text
Covid-19 smit hafa komið upp í Álftamýrarskóla, Barnaskóla Hjallastefnunnar og Hvassaleitisskóla og þarf því að fresta skólasetningu.
Fresta þarf skólasetningu í Hvassaleitisskóla, Álftamýrarskóla og Barnaskóla Hjallastefnunnar vegna sóttvarnaraðgerða vegna Covid-19 smita sem komið hafa upp í Álftamýrarskóla, Barnaskóla Hjallastefnunnar og Hvassaleitisskóla.
Skólasetningu sem ráðgerð var eftir helgi verður frestað af þeim sökum. Skólarnir verða í sambandi við foreldra til að upplýsa þá frekar og veita leiðsögn um heimavinnu nemenda.
Starfsemi frístundaheimila í Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla verður með óbreyttu sniði.