Skólahald breytist í norðanverðum Grafarvogi næsta haust

Skóli og frístund

""

Frá og með skólaárinu 2020-2021 verða þrír grunnskólar starfræktir í norðanverðum Grafarvogi. 

Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að frá og með hausti 2020 verði þrír grunnskólar starfræktir í norðanverðum Grafarvogi. Borgaskóli og Engjaskóli verði fyrir nemendur í 1.-7. bekk og Víkurskóli verði sameinaður unglingaskóli fyrir nemendur í 8.-10 bekk. Gert er ráð fyrir að hver skóli rúmi á þriðja hundrað nemendur. Í Víkurskóla verður lögð áhersla á hugmyndafræði nýsköpunar, frumkvöðlafræði og skapandi hugsun í öllum starfsháttum. Nýsköpun í skóla- og frístundastarfi felur jafnframt í sér áherslu lýðræðisleg vinnubrögð, teymisvinnu og lausnamiðað nám. 

Tillaga meirihlutans felur í sér að skólahald verður aflagt í Korpuskóla þar til börnum í Staðahverfi á aldrinum 6-12 ára hefur fjölgað í 150 og verður þá ákvörðun um skólahald í hverfinu endurskoðuð í samstarfi við foreldra og íbúa. 59 nemendur eru nú í Korpuskóla og hefur fækkað úr 140 nemendum árið 2012 en skólinn er byggður fyrir 170 nemendur.

Lagt er til að innleiðingarhópar verði skipaðir til að tryggja markvisst og farsælt breytingaferli og verði skipan þeirra afgreidd á fundi ráðsins 10. desember næstkomandi. Í greinargerð með tillögunni er lagt til að skipaður verði einn hópur fyrir hvern skóla og það frístundaheimili eða félagsmiðstöð sem honum er næst, og einn yfirhópur sem tryggi að samfella skapist í skipulagi skólahalds, frístundastarfs og samgöngumála. 

Tillagan felur í sér að tryggðar verði samgöngubætur til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og til að tengja betur öll hverfi í norðanverðum Grafarvogi. Göngu- og hjólaleiðir verði bættar til að gera skóla-, frístunda- og íþróttastarf aðgengilegra fyrir íbúa í öllum norðanverðum Grafarvogi.  Undirgöng eða ámóta örugg göngu- og hjólaleið verði sett við Strandveg/Víkurveg á milli Garðsstaða og Breiðavíkur. Sett verði upp gönguljós og þrenging götu við Mosaveg. Unnið verði að úrbótum á almenningssamgöngum í samstarfi við Strætó b.s., með áherslu á fjölgun biðstöðva og tíðari ferðir. 

Í tillögunni kemur fram vilji meirihluta skóla- og frístundaráðs til að skólahúsnæðið í Korpu nýtist áfram í skóla- og frístundastarfi þannig að foreldrar hafi val um skóla- og frístundaúrræði fyrir börn sín. Í því sambandi verði m.a. leitað eftir áhuga sjálfstætt starfandi skóla. 

Á fundi skóla- og frístundaráðs var lagt fram álit borgarlögmanns um að ekki sé nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi áður eða samhliða því að skólahaldi verði hætt í Korpuskála. Að hans mati er með hliðsjón af fyrirhuguðum úrbótum á samgöngum milli hverfa ekki fyrir hendi skaðabótaábyrgð af hálfu borgaryfirvalda gagnvart íbúum Staðahverfis. 

Sjá nánar í greinargerð með tillögunni.